Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 213/2022-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 213/2022

Fimmtudagurinn 22. september 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. apríl 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2022, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2022, var kæranda tilkynnt að henni bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 58.142 kr., á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 10. febrúar 2022. Með bréfi, dags. 27. apríl 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Sú beiðni var ítrekuð 21. júní, 13. júlí og 9. ágúst 2022. Með bréfi, dags. 9. ágúst 2022, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því hafi hin kærða ákvörðun verið afturkölluð. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. ágúst 2022, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2022, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því hafi hin kærða ákvörðun verið afturkölluð.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum