Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 26/2015 úrskurður 23. mars 2015

Mál nr. 26/2015                     Eiginnafn: Kai
                                                 Millinafn: Kai

 

Hinn 23. mars 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 26/2015 en erindið barst nefndinni 12. mars:

 

Sótt er um eiginnafnið Kai (kk.), til vara millinafnið Kai.

Til að hægt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá þarf öllum skilyrðum 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera fullnægt. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Nafnið skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977, um íslenska stafsetningu.

 

Í málinu reynir á skilyrði (3). Ritháttur nafnsins er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem a er ekki ritað á undan i í ósamsettum orðum. Á þennan rithátt nafnsins er því aðeins heimilt að fallast ef hann telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Til stuðnings við mat á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn hefur mannanafnanefnd stuðst við vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015, og byggðar eru á greinargerð með frumvarpi til laga um mannanöfn og eldri vinnulagsreglum. Er í reglunum byggt á því að hugtakið hefð í lögum um mannanöfn varði einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli 1703 þegar manntal var tekið fyrsta sinni.

 

Vinnulagsreglurnar eru svohljóðandi:

1.      Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.       Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.      Það er nú borið af 10­–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.       Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.      Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.       Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.      Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.      Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera sex karlar  Kai í þjóðskrá sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar og er sá elsti fæddur 1964. Nafnið kemur fyrir í manntölum frá 1910 og 1920 og í ljósi þess telst nafnið hafa öðlast hefð hér á landi. Það er því samþykkt sem eiginnafn.

 

Þar sem fallist er á nafnið Kai sem eiginnafn er engin afstaða tekin til varakröfu umsækjanda um að nafnið verði samþykkt sem millinafn.

 

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um eiginnafnið Kai (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum