Hoppa yfir valmynd
%EF%BF%BD%EF%BF%BDrskur%EF%BF%BD%EF%BF%BDarnefnd%20um%20lei%EF%BF%BD%EF%BF%BDr%EF%BF%BD%EF%BF%BDttingu%20ver%EF%BF%BD%EF%BF%BDtrygg%EF%BF%BD%EF%BF%BDra%20fasteignave%EF%BF%BD%EF%BF%BDl%EF%BF%BD%EF%BF%BDna

Úrskurður nr. 94/2015 

 ÚRSKURÐUR ÚRSKURÐARNEFNDAR UM LEIÐRÉTTINGU VERÐTRYGGÐRA FASTEIGNAVEÐLÁNA

nr. 94/2015


Ár 2015, miðvikudaginn 18. mars, er tekið fyrir mál nr. 193/2015; kæra A og B, dags. 4. mars 2015. Í málinu úrskurða Eva Dís Pálmadóttir, Ingi Tryggvason og Kristján Jónasson. Upp er kveðinn svofelldur

 

ú r s k u r ð u r :


I.

Málavextir eru þeir að með erindi til ríkisskattstjóra, dags. 11. nóvember 2014, gerðu kærendur athugasemdir við niðurfærslur á móti leiðréttingarfjárhæð þar sem ekki hafi verið um að ræða 110% leið heldur ólöglegt erlent lán.

Með kæru, dags. 4. mars 2015, hafa kærendur kært framkvæmd leiðréttingar, sbr. 11. gr. laga nr. 35/2014, um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána. Í kæru er því mótmælt að kærendur hafi notið 110% leiðar, heldur hafi verið um að ræða erlent lán sem hafi verið leiðrétt.

Fyrir liggur að ríkisskattstjóri hefur ekki tekið afstöðu til þeirra athugasemda sem kærendur gerðu til ríkisskattstjóra á grundvelli 2. mgr. 10. gr. laga nr. 35/2014 þann 11. nóvember 2014.


II.

Eins og hér að framan greinir leituðu kærendur til ríkisskattstjóra með athugasemd, dags. 11. nóvember 2014, og mótmæltu niðurfærslu á móti leiðréttingarfjárhæð vegna 110% leiðar. Niðurstaða ríkisskattstjóra liggur ekki fyrir vegna þeirrar athugasemdar.

Samkvæmt 2. mgr. 10. gr. laga nr. 35/2014 er heimilt að óska eftir leiðréttingu hjá ríkisskattstjóra telji umsækjendur að niðurstaða útreiknings samkvæmt 9. gr. laga nr. 35/2014 byggist á röngum upplýsingum. Á þeim tíma sem athugasemd er til meðferðar hjá ríkisskattstjóra er ekki unnt að kæra til úrskurðarnefndar, sbr. lokamálsl. 7. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 698/2014, um samræmt verklag og viðmið við leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána.

Samkvæmt framansögðu verður ekki talið að úrskurðarnefnd sé heimilt að fjalla um kæru kærenda að svo stöddu. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefndinni.

Rétt þykir með vísan til 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 að benda kærendum á að sá frestur sem þeir hafa til að samþykkja og kæra útreikning leiðréttingar og framkvæmd hennar er þrír mánuðir frá birtingardegi ákvörðunar. Sá frestur rofnaði þegar þeir gerðu athugasemd til ríkisskattstjóra, sbr. 7. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 698/2014, sbr. einnig 4. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Fresturinn tekur að líða að nýju frá þeim tíma þegar ríkisskattstjóri birtir niðurstöðu sína. Þegar niðurstaða ríkisskattstjóra liggur fyrir er unnt að kæra að nýju ákvörðun um fjárhæð leiðréttingar og framkvæmd hennar, sbr. 14. gr. laga nr. 35/2014.


Ú r s k u r ð a r o r ð : 

Kærunni er vísað frá úrskurðarnefnd um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum