Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 267/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 18. júní 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 267/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21060009

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.               Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála í stjórnsýslumáli nr. KNU20110006, dags. 26. nóvember 2020, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar frá 19. október 2020 um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari Afganistan (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 30. nóvember 2020. Þann 17. maí 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku og frestun framkvæmdar og synjaði kærunefnd beiðni kæranda þann sama dag með úrskurði kærunefndar í stjórnsýslumáli nr. KNU21050036. Þann 2. júní 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku í annað sinn ásamt greinargerð.

Af endurupptökubeiðni kæranda má ráða að krafan byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.                  Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda fjallar hann um 1. mgr. 29. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin) og þá fresti sem þar komi fram. Kærandi bendir á að lokaákvörðun í máli kæranda hafi verið tekin með úrskurði kærunefndar, dags. 26. nóvember 2020, sem hafi verið birtur þann 30. nóvember 2020. Frestur samkvæmt 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar hafi því runnið út þann 30. maí 2021. Í ljósi þessa sé farið fram á endurupptöku málsins með vísan til 24. gr. stjórnsýslulaga og þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

III.                Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að taka umsókn um alþjóðlega vernd ekki til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland Dyflinnarreglugerðina, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröðun, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Þann 28. júlí 2020 samþykktu austurrísk stjórnvöld að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd. Byggði samþykki Austurríkis á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Við rekstur máls sem fer samkvæmt fyrirkomulagi Dyflinnarreglugerðarinnar þurfa stjórnvöld að gæta að tilteknum tímafrestum, sbr. m.a. 1. og 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar sem fjallar um fyrirkomulag og fresti. Í því ákvæði felst m.a. að flutningur á umsækjanda skal fara fram innan sex mánaða frá því að lokaákvörðun er tekin um kæru eða endurskoðun. Þó er heimilt í undantekningartilvikum að framlengja frest til flutnings í að hámarki 18 mánuði ef hlutaðeigandi einstaklingur hleypst á brott (e. abscond). Ef umræddir frestir líða leiðir það til þess að ábyrgð á viðkomandi umsókn um alþjóðlega vernd færist sjálfkrafa yfir til þess aðildarríkis sem leggur fram beiðni, sbr. til hliðsjónar dómur Evrópudómstólsins í máli C-201/16 Shiri frá 25. október 2017 (26.-34. mgr. dómsins). Ef frestir samkvæmt 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar líða er íslenskum stjórnvöldum því ekki lengur heimilt að krefja viðkomandi ríki um viðtöku einstaklings í skilningi c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í úrskurði kærunefndar í máli nr. KNU19040090 frá 9. maí 2019 ákvað kærunefnd að þegar mál hefur verið kært til kærunefndar og réttaráhrifum frestað yrði upphafstími þessa frests miðaður við dagsetningu birtingar úrskurðar kærunefndar. Eins og að framan greinir samþykktu austurrísk stjórnvöld endurviðtökubeiðni íslenskra stjórnvalda þann 28. júlí 2020. Þá var endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi birt fyrir kæranda þann 30. nóvember 2020. Rann því upphaflegur sex mánaða frestur til þess að flytja kæranda úr landi út þann 30. maí 2021. Í tilkynningu frá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins frá 16. apríl 2020, C(2020) 2516 final, kemur fram að ekkert ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar heimili frávik frá 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar við aðstæður sambærilegum þeim sem leiða af Covid-19 faraldrinum.

Þann 2. júní 2021 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra um flutning kæranda. Svör Útlendingastofnunar og stoðdeild ríkislögreglustjóra dagana 2. og 7. júní 2021 benda ekki til þess að fresturinn hafi verið framlengdur á grundvelli lokamálsliðar 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, eða að þær aðstæður sem þar eru nefndar séu fyrir hendi, sem gæti framlengt frestinn samkvæmt ákvæðinu.

Að öllu framangreindu virtu er fallist á kröfu kæranda um endurupptöku málsins.

Samkvæmt framansögðu er ekki lengur fyrir hendi heimild til að krefja austurrísk stjórnvöld um viðtöku á kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Umsókn kæranda um alþjóðlega vernd skal því tekin til efnismeðferðar, sbr. 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Gögn málsins benda ekki til þess að ákvæði a- eða b-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna eigi við í máli hans. Er því hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnismeðferðar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

 

 

 

 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

The appellant‘s request for re-examination of his case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Þorbjörg I. Jónsdóttir                                                                                    Sindri M. Stephensen


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum