Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 425/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 425/2021

Fimmtudaginn 18. nóvember 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. ágúst 2021, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. júní 2021, um að fella niður bótarétt hennar í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 19. apríl 2021 og var umsókn hennar samþykkt 14. maí 2021. Þann 28. maí 2021 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Með bréfi Vinnumálstofnunar, dags. 3. júní 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá því fyrirtæki. Skýringar bárust frá kæranda þann 4. júní 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. júní 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar yrði felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Frekari skýringar bárust frá kæranda þann 27. júlí 2021. Í kjölfar endurupptöku Vinnumálastofnunar á máli kæranda í samræmi við 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var fyrri ákvörðun stofnunarinnar staðfest þann 18. ágúst 2021.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 19. ágúst 2021. Með bréfi, dags. 20. september 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 27. október 2021 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. október 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa fengið tilkynningu frá Vinnumálastofnun þann 10. júní 2021 um að hún hafi verið sett á þriggja mánaða biðtíma vegna höfnunar á atvinnutilboði. Kærandi hafi sótt um U2 leyfi þann 30. maí sem sé bótaréttur til að sækja um vinnu erlendis. Til hafi staðið að flytja til C þann 25. júní.

Kærandi hafi fengið atvinnutilboð frá B þann 28. maí. Hún hafi ekki hafnað tilboðinu líkt og fram komi í bréfi frá Vinnumálastofnun heldur hafi hún látið vita að til stæði að flytja utan þann 25. júní og hún gæti því aðeins starfað þangað til. Hún hafi í kjölfarið fengið þriggja mánaða viðurlög vegna höfnunar á umræddu starfi. Kærandi telji þetta afar óréttlátt þar sem það hafi munað tveimur dögum og hún hafi verið búin að undirbúa flutninga. Kærandi hafi ekki getað flust utan eins og til hafi staðið vegna þessara viðurlaga. Hún hafi auk þess ekki getað leitað af starfi hér á landi af heilum hug vitandi það að til stæði að flytja út.

Kærandi segi það ekki rétt að hún hafi hafnað starfinu. Hún hafi þegið starfið til þriggja vikna vegna fyrirhugaðra flutninga en atvinnurekandi hafi ekki viljað ráða hana í svo stuttan tíma og hafi því ekki boðið henni starfið. Hún segi þann sem talað hafi við sig í síma geta staðfest þetta. Kærandi segi þetta hafa valdið sér miklum erfiðleikum og hugarangist. Nú sé hún búin að finna vinnu í C frá og með 1. október. Hún hafi verið tekjulaus frá því í maí og óski því eftir aðstoð við að ná fram réttindum sínum. Aðalrökstuðningur kæranda sé sá að hún hafi ekki hafnað vinnunni en hafi ekki getað ráðið sig vegna aðstæðna, þ.e. vegna fyrirhugaðra flutninga. Hún hafi verið búin að segja upp íbúð og pakka niður og því hafi ekki verið aftur snúið.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 19. apríl 2021. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 19. apríl 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Þann 28. maí 2021 hafi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað atvinnutilboði hjá B sem starfsmaður í sölu- og úrvinnsludeild. Í upplýsingum frá atvinnurekanda komi fram að kærandi hafi hafnað vinnu.

Með erindi, dags. 2. júní 2021, hafi verið óskað eftir afstöðu kæranda til málsins. Þann 4. júní 2021 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar frá kæranda. Þar hafi komið fram að kærandi væri að flytja utan þann 25. júní 2021 og hafi sent inn beiðni um U2 vottorð. Vinnumálastofnun taki fram að kærandi hafi skilað inn umsókn um U2 vottorð þann 2. júní 2021 og umsókn hennar hafi verið samþykkt þann 22. júní 2021.

Skýringar kæranda á höfnun atvinnutilboðs hafi ekki verið metnar gildar og þann 10. júní 2021 hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hennar hafi verið felldur niður í þrjá mánuði. Þann 18. ágúst 2021 hafi frekari skýringar borist frá kæranda og mál kæranda endurupptekið í kjölfarið. Engar nýjar upplýsingar hafi borist frá kæranda sem hafi breytt forsendum ákvörðunar Vinnumálastofnunar frá 10. júní 2021 og hafi fyrri ákvörðun stofnunarinnar verið staðfest.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Ágreiningur í máli þessu snúi að því hvort ástæður kæranda vegna umræddrar höfnunar séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að þeir hafi til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. 

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi: 

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segi orðrétt í 4. mgr. sömu greinar:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu.

Kærandi hafi gefið skýringar á höfnun, bæði fyrir úrskurðarnefnd og til Vinnumálastofnunar. Í máli þessu liggi fyrir að kærandi hafi hafnað starfi hjá B. Kærandi kveðist vera að flytja utan og hafi af þeim sökum hafnað starfinu. Umsókn um U2 vottorð hafi borist stofnuninni þann 2. júní 2021, þ.e. eftir að kærandi hafi hafnað starfinu. Þar að auki sé það afstaða Vinnumálastofnunar að heimild til að hefja atvinnuleit í EES ríki komi ekki í veg fyrir að atvinnuleitandi taki þeim störfum sem bjóðist hérlendis. Flutningur geti einungis talist gild ástæða fyrir höfnun á atvinnutilboði í þeim tilfellum sem atvinnuleitandi þurfi að flytja búferlum vegna stöðu náinna fjölskyldumeðlima. Því sé ekki til að dreifa í máli þessu.

Líkt og áður hafi verið rakið hvíli rík skylda á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Að mati Vinnumálastofnunar séu skýringar kæranda ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að þær skýringar sem kærandi hafi fært fram í máli þessu geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Því telji Vinnumálastofnun að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma í þrjá mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig 1. mgr. 61. gr. sömu laga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda boðið starf hjá B þann 28. maí 2021. Kærandi hefur vísað til þess að til hafi staðið að flytja frá Íslandi 25. júní 2021 og því hafi hún einungis getað unnið í þrjár vikur. Atvinnurekandinn hafi ekki viljað ráða kæranda í svo stuttan tíma og því ekki boðið henni starfið.

Að mati úrskurðarnefndarinnar eru viðbrögð kæranda við framkomnu atvinnutilboði þess eðlis að þau jafngildi höfnun á starfi. Þegar kæranda var boðið starfið hafði hún ekki sótt um og fengið heimild til að leita atvinnu í öðru aðildarríki að samningi um Evrópska efnahagssvæðið samkvæmt VIII. kafla laganna. Kæranda bar því að þiggja framkomið atvinnutilboð en eitt af skilyrðum þess að vera tryggður samkvæmt lögum nr. 54/2006 er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. Í því felst meðal annars að hafa vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara, sbr. d. lið 1. mgr. ákvæðisins. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að þær ástæður og skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 22. september 2020 á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, bar Vinnumálastofnun að láta kæranda sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. júní 2021, um að fella niður bótarétt A í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum