Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0ir%20um%20sj%C3%A1var%C3%BAtveg%20og%20fiskeldi

Ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn um úthlutun byggðakvóta.

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru [A], dags. 3. mars 2021, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 19. febrúar 2021, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 til bátsins [B].

Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

 

 

Kröfur kæranda

Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi hin kærða ákvörðun Fiskistofu, dags. 19. febrúar 2021, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 til bátsins [B] og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 til bátsins í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukæru.         

 

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 3. febrúar 2021, sem birt var á vefsíðu Fiskistofu: www.fiskistofa.is, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 í nokkrum byggðarlögum, m.a. á Borgarfirði eystri í Múlaþingi en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 728/2020, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021. Umsóknarfrestur var til og með 17. febrúar 2021. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hafði þá úthlutað 330 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Múlaþings sem skiptust á byggðarlögin Borgarfjörð eystri, 15 þorskígildistonn, Djúpavog, 300 þorskígildistonn og Seyðisfjörð, 15 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Múlaþingi með bréfi, dags. 30. nóvember 2020.

Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir bátinn [B] með umsókn til Fiskistofu, dags. 17. febrúar 2021.

Hinn 19. febrúar 2021 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta á Borgarfirði eystri ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa eða höfnun umsókna um úthlutun. Kæranda var tilkynnt að hafnað væri framangreindri umsókn félagsins. Ákvörðun Fiskistofu var byggð á því að samkvæmt a-lið 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 728/2020 verði fiskiskip að hafa gilt leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests til að koma til greina við úthlutun. Skipið [B] hafi ekki haft almennt leyfi til fiskveiða síðan 31. ágúst 2020.

Þá kom þar fram að ákvörðunin væri kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu um ákvörðunina, sbr. 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006.

 

 

Málsástæður í stjórnsýslukæru og málsmeðferð

Með stjórnsýslukæru, dags. 3. mars 2021, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, kærði [A] til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins framangreinda ákvörðun Fiskistofu, dags. 19. febrúar 2021, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 til bátsins [B].

Í stjórnsýslukærunni segir m.a. að umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta á Borgarfirði eystri hafi verið hafnað af Fiskistofu á þeim grunni að báturinn hafi ekki verið með veiðileyfi við lok umsóknarfrests. Báturinn hafi misst veiðileyfið vegna vanskila á afladagbók. Þó svo tafir eigi ekki að verða á skilum afladagbókarinnar sé það ekki refsivert brot og endurheimtist veiðileyfið yfirleitt samdægurs. Báturinn sé ekki gerður út yfir vetrartímann og kærandi hafi greinilega ekki fylgst með að veiðileyfið skilaði sér eftir að hann taldi sig hafa sent afladagbókina. Sú tvöfalda refsing sem eigi sér stað með þessari synjun sé úr hófi að áliti kæranda. Kærandi fari því fram á að þessari niðurstöðu verði snúið við.

Með tölvubréfi, dags. 8. mars 2021, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um málið, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.

Í umsögn Fiskistofu, dags. 24. mars 2021, segir að ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn kæranda byggi á því að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta, þ.e. um að fiskiskip hafi leyfi til veiða í atvinnuskyni samkvæmt 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, við lok umsóknarfrests, sbr. a-lið 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 728/2020. Með bréfi Fiskistofu, dags. 24. september 2020, hafi kæranda, eiganda og útgerðaraðila skipsins [B], verið tilkynnt um að aflaupplýsingar fyrir skipið hefðu ekki borist Fiskistofu fyrir ágúst 2020. Upplýst hafi verið um að skipið yrði svipt veiðileyfi, samkvæmt 1. mgr. 17. gr. laga nr. 116/2006, frá og með 12. október 2020 þar til skil yrðu gerð eða skýringar gefnar á ástæðum vanskila. Umrædd veiðileyfissvipting hafi verið þvingunarúrræði til að knýja á um skil aflaupplýsinga skipsins. Afladagbók kæranda fyrir ágúst 2020 hafi verið skilað 3. mars 2021 og veiðileyfissviptingunni hafi verið aflétt frá og með þeim degi. Fiskistofa hafi auglýst 3. febrúar 2021 eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa fyrir Borgarfjörð eystri samkvæmt reglugerð nr. 728/2020 á vefsíðu Fiskistofu: www.fiskistofa.is samkvæmt 5. gr. reglugerðarinnar. Umsóknarfrestur hafi verið til og með 17. febrúar 2021. Kærandi hafi sótt um byggðakvóta 17. febrúar 2021 fyrir skipið [B] en skipið hafi verið án leyfis til veiða í atvinnuskyni þann dag og hafi því ekki uppfyllt skilyrði a-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 728/2020. Fiskistofa bendi á að ekki sé gerður greinarmunur á því af hvaða ástæðu fiskiskip hefur ekki leyfi til veiða í atvinnuskyni í 1. gr. reglugerðarinnar. Skip geti misst veiðileyfi s.s. vegna þvingunarúrræða eða viðurlaga Fiskistofu, einnig megi nefna að aðilar geti gleymt að sækja um veiðileyfi eða veiðileyfið hefur fallið niður, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 116/2006. Þá sé ákvæðið orðað með þeim hætti að skip verði að hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests. Úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa sé úthlutun takmarkaðra gæða sem séu eftirsóknarverð og feli í sér verðmæti og sé Fiskistofu falið að úthluta byggðakvóta samkvæmt reglugerð nr. 728/2020. Hvorki í lögum né í reglugerðinni sé að finna heimild til handa Fiskistofu til að líta framhjá því skilyrði sem synjun Fiskistofu sé byggð á. Fiskistofu sé ekki ætlað að taka tillit til þess af hvaða ástæðu fiskiskip sé ekki með leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests eða leggja mat á það hvort skortur á leyfi á því tímamarki hafi áhrif á úthlutun eða ekki. Höfnun umsóknar kæranda á framangreindum grundvelli geti því hvorki talist refsing eins og haldið sé fram í kærunni né viðurlög, en stjórnvöldum sé einungis heimilt að beita slíkum úrræðum séu til þess skýrar lagaheimildir. Fiskistofu sé ekki heimilt að úthluta byggðakvóta þegar skilyrði úthlutunar séu ekki uppfyllt og því sé ákvörðunin ekki úr hófi heldur þvert á móti í samræmi við gildandi reglur. Með hliðsjón af framangreindu telji Fiskistofa að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

Umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins fylgdu eftirtalin gögn í ljósritum: 1) Bréf Fiskistofu, dags. 19. febrúar 2021, til [A]. 2) Bréf Fiskistofu, dags. 24. september 2020, til [A]. 3) Bréf Fiskistofu, dags. 15. mars 2021, til [A] og tölvupóstur, dags. 3. mars 2021. 4) Auglýsing á vefsíðu Fiskistofu, dags. 3. febrúar 2021.

Með tölvubréfi, dags. 6. apríl 2021, sendi ráðuneytið ljósrit af umsögn Fiskistofu til kæranda og veitti félaginu kost á að gera athugasemdir við umsögnina, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Frestur til þess var veittur til og með 27. apríl 2021.

Engar athugasemdir bárust ráðuneytinu frá kæranda, [A], við framangreinda umsögn Fiskistofu.

 

Rökstuðningur

I. Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.

Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 728/2020, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2020/2021 sem eru: a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2020 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2020. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.

Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 728/2020.

Ekki hafa verið sett sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á Borgarfirði eystri í Múlaþingi fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 samkvæmt framangreindu ákvæði.

Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa á Borgarfirði eystri fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006 og ákvæðum reglugerðar nr. 728/2020.

Eins og gerð hefur verið grein fyrir hér að framan eru í 1. gr. reglugerðar nr. 728/2020 talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2020/2021 en samkvæmt a-lið 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar eru þau m.a. að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, við lok umsóknarfrests. Báturinn [B] hafði ekki leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests um úthlutun byggðakvóta Borgarfjarðar eystri sem lauk þann 17. febrúar 2021 og hafði því ekki veiðileyfi á þeim tíma sem miðað er við í framangreindu ákvæði reglugerðar nr. 728/2020. Það er mat ráðuneytisins að þær ástæður sem koma fram í stjórnsýslukærunni fyrir því að báturinn hafði ekki slíkt leyfi á umræddu tímamarki geti ekki haft þýðingu fyrir niðurstöðu þessa máls.

Einnig er það mat ráðuneytisins að aðrar málsástæður kæranda í stjórnsýslukærunni og öðrum gögnum málsins geti ekki haft áhrif á úrlausn þessa máls.

Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að ekki séu skilyrði fyrir að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 19. febrúar 2021, um að hafna umsókn kæranda, [A], um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 til bátsins [B] en samkvæmt því verður ákvörðunin staðfest.

Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

 

 

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 19. febrúar 2021, um að hafna umsókn kæranda, [A], um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 til bátsins [B].


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum