Hoppa yfir valmynd
%EF%BF%BD%EF%BF%BDrskur%EF%BF%BD%EF%BF%BDarnefnd%20um%20lei%EF%BF%BD%EF%BF%BDr%EF%BF%BD%EF%BF%BDttingu%20ver%EF%BF%BD%EF%BF%BDtrygg%EF%BF%BD%EF%BF%BDra%20fasteignave%EF%BF%BD%EF%BF%BDl%EF%BF%BD%EF%BF%BDna

Úrskurður nr. 40/2015

ÚRSKURÐUR ÚRSKURÐARNEFNDAR UM LEIÐRÉTTINGU VERÐTRYGGÐRA FASTEIGNAVEÐLÁNA

nr. 40/2015 


Ár 2015, fimmtudaginn 5. mars 2015, er tekið fyrir mál nr. 9/2015; kæra A. Í málinu úrskurða Eva Dís Pálmadóttir, Ingi Tryggvason og Kristján Jónasson. Upp er kveðinn svofelldur

 

ú r s k u r ð u r :


I.

Málavextir eru þeir að kærandi sótti um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána þann 30. ágúst 2014. Kæranda var birt ákvörðun um útreiknaða leiðréttingarfjárhæð og framkvæmd hennar sitt í hvoru lagi. Útreiknuð leiðrétting kæranda var 372.569 kr. og var sú fjárhæð birt kæranda 11. nóvember 2014. Kæranda var tilkynnt þann 23. desember 2014 að sú fjárhæð myndaði sérstakan persónuafslátt, sbr. 12. gr. laga nr. 35/2014 um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána.

Með kæru, dags. 4. janúar 2015, hefur kærandi kært framkvæmd leiðréttingar, sbr. 11. gr. laga nr. 35/2014. Skilja verður kæru á þá leið að kærandi krefjist þess að útreiknuð leiðrétting hans myndi ekki sérstakan persónuafslátt og fundin verði leið fyrir hann til að nýta sér þá leiðréttingu sem hann kveðst eiga rétt til. Segir kærandi að það verði að gera án þess að farið sé fram á það af íslenskum stjórnvöldum að þau stjórni því hvar kærandi er búsettur. Kærandi hefur lögheimili erlendis. Telur kærandi lög nr. 35/2014 óréttmæt í garð fyrrverandi húseigenda sem hafi orðið fyrir forsendubresti en hafi ekki möguleika á að nýta sér sérstakan persónuafslátt þar sem þeir hafi ekki tekjur á Íslandi. Kærandi telur ákvörðun ríkisskattstjóra siðlausa, stangast á við jafnræðisreglu og í andstöðu við markmið um að gagnast öllum heimilum sem urðu fyrir forsendubresti. 


II.

Ágreiningsefni máls þessa snýr að framkvæmd leiðréttingar. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem ákvörðun ríkisskattstjóra um ráðstöfun leiðréttingarfjárhæðar byggist á skuldar kærandi ekki fasteignaveðlán.

Um framkvæmd leiðréttingar er fjallað í 11. gr. laga nr. 35/2014, um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána. Í 3. mgr. þeirrar greinar kemur fram að lánveitandi fasteignaveðláns á fremsta veðrétti skuli skipta láni í tvo hluta, frum- og leiðréttingahluta. Ef frumhluti fasteignaveðláns á fremsta veðrétti tæmist en hluta leiðréttingarfjárhæðar er enn óráðstafað skal lánveitandi  á næsta veðrétti á eftir á fasteign umsækjanda skipta því láni í tvo hluta, frum- og leiðréttingarhluta, og svo koll af kolli þar til leiðréttingarfjárhæð er náð eða frumhluti láns tæmist. Fasteignaveðlán umsækjanda sem tryggð eru með veði í fasteign annars einstaklings skulu einungis koma til skiptingar ef ekki er unnt að ráðstafa leiðréttingarfjárhæð að fullu inn á fasteignaveðlán sem hvíla á fasteign umsækjanda.

Í 1. mgr. 12. gr. laga nr. 35/2014 kemur fram að leiðréttingarfjárhæð sem ekki verður ráðstafað skv. 11. gr. myndi sérstakan persónuafslátt. Í 2. mgr. sömu lagagreinar segir að sérstakur persónuafsláttur komi sem viðbót við almennan persónuafslátt við álagningu opinberra gjalda samkvæmt 6. tölul. 1. mgr. 66. gr., sbr. A-lið 67. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, þó þannig að hann skuli deilast jafnt niður á fjögur ár án vísitöluhækkunar. Þegar sérstakur persónuafsláttur hefur verið nýttur á móti reiknuðum tekjuskatti, útsvari og fjármagnstekjuskatti skuli sá hluti staðgreiðslu sem nemur eftirstöðvum sérstaka persónuafsláttarins greiddur út án álags samkvæmt 122. gr. laga nr. 90/2003, og að teknu tilliti til ákvæða 112. gr. sömu laga. Sá hluti sérstaka persónuafsláttarins sem ónýttur kann að vera yfirfærist á milli ára þar til hann er fullnýttur eða ráðstöfunartímabilið útrunnið. Ónýttur sérstakur persónuafsláttur millifærist á milli hjóna og samskattaðs sambýlisfólks við álagningu.

Ekki er byggt á því af hálfu kæranda að ágreiningur sé um útreiknaða leiðréttingarfjárhæð. Ágreiningurinn takmarkast við framkvæmd leiðréttingar, nánar tiltekið það að leiðréttingin myndi sérstakan persónuafslátt hjá kæranda. Ekki er til staðar lagagrundvöllur fyrir því að fundin verði leið fyrir kæranda til að nýta sér þá leiðréttingu sem hann kveðst eiga rétt til, svo sem krafist er í kæru. Þá verður ekki séð að framkvæmd ríkisskattstjóra, sem er í samræmi við lagafyrirmæli, brjóti gegn almennum jafnræðisreglum eða siðferði. Með vísan til framangreinds er ljóst að ráðstöfun leiðréttingarfjárhæðar á þá leið að hún myndi sérstakan persónuafslátt er í samræmi við framangreind lagafyrirmæli sem um hana gilda. Ákvörðun ríkisskattstjóra um að leiðréttingarfjárhæð, 372.569 kr., myndi sérstakan persónuafslátt hjá kæranda verður ekki hnekkt. Kröfu kæranda er því hafnað.


Ú r s k u r ð a r o r ð :

Kröfu kæranda er hafnað.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum