Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 128/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 128/2021

Fimmtudaginn 26. ágúst 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 6. mars 2021, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. febrúar 2021, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 23. júlí 2019. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. febrúar 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans yrði felldur niður í tvo mánuði þar sem kærandi hafi ekki mætt í boðað eftirlit stofnunarinnar þann 11. febrúar 2021.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 6. mars 2021. Með bréfi, dags. 11. mars 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 18. mars 2021, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að hin kærða ákvörðun hefði verið afturkölluð þar sem skýringar kæranda á því hvers vegna hann hafi ekki mætt í boðað viðtal hefðu verið teknar gildar. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. mars 2021, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð þann 29. apríl 2021. Svar barst ekki. 

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. febrúar 2021, um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að stofnunin hefði afturkallað hina kærðu ákvörðun þar sem skýringar kæranda á því hvers vegna hann hafi ekki mætt í boðað viðtal hefðu verið teknar gildar. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en svar barst ekki.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum