Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20um%20uppl%C3%BDsingam%C3%A1l

979/2021. Úrskurður frá 22. febrúar 2021.

Úrskurður

Hinn 22. febrúar 2021 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð
nr. 979/2021 í máli ÚNU 21010020.

Kæra, málsatvik og málsmeðferð

Með erindi sem barst úrskurðarnefndinni 27. janúar 2021, kærði A afgreiðslu Herjólfs ohf., dags. 19. janúar 2021, á beiðni um upplýsingar um gjaldskrá Herjólfs ohf., dags. 11. janúar 2021. Í svari Herjólfs ohf. er vísað til þess að verðskrá Herjólfs ohf. sé opinber á heimasíðu félagsins og kæranda vísað á hlekk á heimasíðunni. Í kæru kemur fram að þess sé óskað að Herjólfur ohf. verði úrskurðaður til að afhenda gjaldskrá fyrir vöruflutninga.

Eins og þetta mál er vaxið taldi úrskurðarnefndin óþarft að beita heimild 2. mgr. 22. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 til að veita Herjólfi ohf. kost á að láta nefndinni í té rökstutt álit á málinu eða afrit af þeim gögnum sem kæra lýtur að. Þá þykir óþarft að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Niðurstaða

Í máli þessu er deilt um afgreiðslu Herjólfs ohf. á beiðni um afhendingu gjaldskrár félagsins. Í svari Herjólfs ohf. til kæranda er vísað til þess að umbeðnar upplýsingar sé að finna á vefsvæði félagsins. Af kæru kæranda verður einnig ráðið að hann óski eftir frekari upplýsingum en þær sem fram koma í verðskrá félagsins sem vísað er til í svari Herjólfs ohf. Í ljósi framangreinds og með vísan til þess hvernig beiðni kæranda var sett fram sem og fyrri samskipta Herjólfs ohf. og kæranda telur úrskurðarnefnd um upplýsingamál Herjólf ohf. hafa svarað kæranda með fullnægjandi hætti og vísað kæranda á hvar umbeðnar upplýsingar sem féllu undir upphaflega beiðni hans er að finna. Þar sem ekki liggur fyrir synjun beiðni um aðgang að gögnum sem kæranleg er til úrskurðarnefndarinnar á grundvelli 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga verður kærunni vísað frá nefndinni.

Úrskurðarorð:

Kæru A frá 27. janúar 2021, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.



Hafsteinn Þór Hauksson
formaður


Símon Sigvaldason Sigríður Árnadóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum