Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 86/2016 Úrskurður 14. október 2016

Mál nr. 86/2016                     Eiginnafn: Skjaldmey

 


 

Hinn 14. október 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 86/2016 en erindið barst nefndinni 13. október.

Öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

1. mgr. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

2. mgr. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

3. mgr. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í máli þessu reynir á annað skilyrði 1. mgr. hér að ofan um að eiginnafn megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Skilningur mannanafnanefndar á íslensku málkerfi er í samræmi við þá túlkun löggjafans sem fram kemur í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 45/1996 sem nú gilda um mannanöfn. Þar segir m.a.: „Íslenskt málkerfi er samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli.“

Allmörg dæmi eru um það í íslensku að samnöfn séu notuð sem mannanöfn. Samnöfn sem merkja titla eða starfsheiti (t.d. biskup, ráðherra, forseti, kóngur, drottning, prestur o.s.frv.) eru hins vegar almennt ekki notuð sem sérnöfn. Dæmi um höfnun vegna þessa er nafnið Prinsessa, mál nr. 25/2015. Það var talið brjóta í bág við íslenskt málkerfi skv. 1. mgr. 5 gr. laganna.

Í eddukvæðum og grískum fornsögnum táknar orðið skjaldmey ‚konu sem stundar hermennsku‘ og hefur einnig merkinguna ‚ódeig baráttukona‘ (Íslensk orðabók 2007:889). Langsótt er hins vegar að halda því fram að skjaldmey sé starfsheiti í nútímamáli. Nafnið Skjaldmey brýtur því ekki í bág við 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Eiginnafnið Skjaldmey (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Skjaldmeyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Skjaldmey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum