Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 273/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 16. júní 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 273/2021

í stjórnsýslumálum nr. KNU21030054 og KNU21030053

 

Kæra [...],

[...] og barna þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 16. mars 2021 kærðu einstaklingar er kveðast heita [...], vera fædd [...], vera ríkisborgari Sýrlands (hér eftir K) og [...] vera fæddur [...], vera ríkisborgari Íraks (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 25. febrúar 2021 um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda og barna þeirra, [...], fd. [...], ríkisborgara Íraks (hér eftir A), [...], fd. [...], ríkisborgara Íraks (hér eftir B) og [...], fd. [...], ríkisborgara Íraks (hér eftir C) um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Þess er krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi. Í fyrsta lagi með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, og í öðru lagi með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 42. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II.            Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 22. desember 2020. Við leit að fingraförum kærenda í Eurodac gagnagrunninum, þann 28. desember 2020, kom í ljós að fingraför þeirra höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Með umsókn framvísuðu kærendur grískum flóttamannavegabréfum með gildistíma til 2. febrúar 2024 og 12. mars 2024. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun, þann 28. janúar 2021, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 25. febrúar 2021 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 2. mars 2021 og kærðu þau ákvarðanirnar þann 16. mars 2021 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd þann 26. mars 2021, ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn frá kærendum dagana 28. maí 2021 og 7. júní 2021.

M óskaði eftir því í greinargerð að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa M kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga. Að mati nefndarinnar, í ljósi gagna málsins, eru málsatvik með þeim hætti að viðtal við M hefði ekki verið til þess fallið að varpa frekara ljósi á málið. Kærendur njóta aðstoðar löglærðs talsmanns og hafa fengið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í gegnum hann, m.a. í greinargerð og með framlagningu gagna.

III.          Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendum hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Grikklands.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna A, B og C kemur fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í málum foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum þeirra væri best borgið með því að fylgja foreldrum sínum til Grikklands.

IV.          Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð vísa kærendur til viðtala sinna hjá Útlendingastofnun og annarra gagna málsins, þ. á m. greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar hvað málsatvik varðar. Í greinargerð kærenda til Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að ástæður þess að þau vilji ekki fara aftur til Grikklands séu fordómar og mismunun í samfélaginu annars vegar og vegna ónógrar aðstoðar frá grískum yfirvöldum hvað heilbrigðis- og félagsþjónustu varðar hins vegar. Kærendur hafi leigt íbúð í Grikklandi en leitin að leiguíbúð hafi tekið nokkurn tíma því margir leigusalar vilji ekki leigja erlendu fólki. Þá hafi þau greint frá því að hafa neyðst til að flytja úr einu húsnæði í annað vegna nágranna sem hafi ekki samþykkt þau á grundvelli kynþáttar þeirra. Kærendur hafi greint frá því að hafa orðið fyrir persónulegum fordómum í Grikklandi. Ein stærsta ástæðan fyrir því að þau hafi yfirgefið Grikkland hafi verið framganga leikskólakennara A ásamt uppnefningu bekkjarfélaga hans en leikskólakennarinn hafi komið illa fram við barnið. Þá hafi A orðið hræddur við að tala arabísku af ótta við móttökurnar í leikskólanum. Jafnframt hafi leikskólinn ekki viljað taka á móti yngri börnum þeirra.

Í greinargerð kærenda kemur fram að M hafi greint talsmanni sínum frá því að hann hafi ekki þorað að segja frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi verið áreittur og hótað ofbeldi af grískum ríkisborgurum, af ótta við að fulltrúi Útlendingastofnunar myndi greina eiginkonu hans frá því. M hafi verið hótað af meðlimum hægrisinnaða ný-nasistaflokksins Golden Dawn (g. Chrysí Avgí). Ástæður þess hafi verið að M hafi verið að vinna við þýðingar á fasteignaskjölum og túlka fyrir erlenda kaupendur þegar meðlimir flokksins hafi nálgast M og sagt að þeir væru ekki sáttir að fá erlent fólk í það hverfi sem hann hafi verið að aðstoða í. M hafi greint frá því að þessi hópur væri stór og valdamikill og að honum hafi verið hótað öllu illu. Hópurinn hafi elt K þegar hún hafi farið með börnin í leikskólann á morgnanna og mætt fyrir utan heimili þeirra til þess að banka á rúður með tilheyrandi látum. Meðlimir hópsins hafi boðið M að greiða ákveðna upphæð gegn því að þeir myndu láta fjölskylduna í friði. M hafi á þeim tímapunkti ákveðið að flýja Grikkland. Kærendur telja að það sé eðlilegt að M hafi ekki verið reiðubúinn að deila þessum atburði með ókunnugu fólki í viðtali undir miklu álagi. Kærendur telja að þessi málsástæða varpi ljósi á einstaklingsbundnar aðstæður þeirra sem séu talsvert viðkvæmari en þegar hafi verið talið. Kærendur telja að fjölskyldan sé í hættu á enn frekari hótunum og mögulegum ofbeldisverkum í Grikklandi.

Kærendur vísa til þess að ljóst sé að a.m.k. þrír meðlimir fjölskyldunnar þurfi að fá nánari greiningu og læknisþjónustu hér á landi. Kærendur telja að samantekið falli þessi heilsufarsatriði fjölskyldunnar undir skilyrði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga um sérstakar ástæður. Kærendur hafi óskað eftir því að birtingu málsins hjá Útlendingastofnun yrði frestað á grundvelli þess að þrír meðlimir fjölskyldunnar höfðu ekki fengið frekari greiningu eða nauðsynlega viðtalstíma vegna líkamlegra og andlegra kvilla. Kærendur vísa til þess að það sé ekki á forræði umsækjenda um alþjóðlega vernd að bóka lækna- eða sálfræðitíma eða hraða ferlinu á nokkurn hátt. Kærendur vísa til 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga og telja að eðli máls samkvæmt þurfi mat á sérstaklega viðkvæmri stöðu að fara fram áður en Útlendingastofnun tekur ákvörðun. Kærendur telja því að það hafi verið ósanngjarnt af hálfu Útlendingastofnunar að veita jafn skamman frest og raun bar vitni til gagnaframlagningar. Kærendur telja að Útlendingastofnun hafi ekki fullnægt rannsóknarskyldu sinni sem kveðið sé á um í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærendur vísa til þess að mat Útlendingastofnunar á máli kærenda, frásögnum þeirra og heilsufari hafi ekki byggst á fullnægjandi upplýsingum.

Í greinargerð kemur fram að M hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi fundið fyrir andlegri og líkamlegri vanlíðan. Kærendur vísa til þess að engin skýr og hlutlæg gögn hafi legið fyrir um líðan M þegar Útlendingastofnun birti ákvörðun í máli þeirra. Þá gera kærendur athugasemd við það að Útlendingastofnun hafi ekki þýtt grískt læknabréf sem M lagði fram ljósmynd af. Kærendur telja að mat Útlendingastofnunar á gögnunum standist ekki skoðun. Þá fjalla kærendur um heilsufar barnsins B og telja að í ákvörðun Útlendingastofnunar hafi ekki verið lagt mat á heilsufar hans m.t.t. þeirra gagna sem lágu fyrir í málinu og upplýsinga í greinargerð kærenda til Útlendingastofnunar. Þá gera kærendur athugasemd við rökstuðning Útlendingastofnunar vegna tilvísunar í greinargerð til úrskurða kærunefndar í málum nr. KNU19060004 og KNU19060005 frá 12. september 2019 og nr. KNU19090017 og KNU19090018 frá 7. nóvember 2019. Kærendur fjalla þá um heilsufar K en hún hafi glímt við eftirköst þriggja keisaraskurða. Kærendur vísa til þess að þrátt fyrir mat lýtalæknis hafi sýkingar verið viðvarandi og því sé ljóst að K þurfi aðstoð með sína heilsu.

Kærendur fjalla um aðstæður þeirra í Grikklandi og gera athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir. Kærendur gera þ. á m. athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um þá heilbrigðis- og félagsþjónustu, atvinnumöguleika og húsnæði sem þeim standi til boða í Grikklandi. Þá gera kærendur athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að þeim standi raunhæf úrræði til boða vegna kynþáttafordóma og mismununar. Kærendur vísa í greinargerð sinni til fjölmargra heimilda sem þau telja að gefi til kynna að raunveruleg staða flóttafólks í Grikklandi sé önnur en Útlendingastofnun leggi til grundvallar í máli kærenda. Þær heimildir sem kærendur hafi vísað til hafi aðra sögu að segja og vísa þau m.a. til ýmissa skýrslna máli sínu til stuðnings auk ummæla mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins.

Kærendur vísa til þess að með þeim séu þrír ungir drengir en börn teljist óumdeilanlega ávallt til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd, hvort sem þau séu í fylgd með umönnunaraðila eða ekki. Íslenskum stjórnvöldum sé því skylt að hafa ávallt það sem barni sé fyrir bestu í forgangi þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að drengirnir þrír eigi rétt á endurgjaldslausri heilbrigðisþjónustu, menntun, dagvistun á leikskóla og félagslegri aðstoð. Kærendur mótmæla þessu með vísan til málsatvika, frásagnar kærenda og áreiðanlegra heimilda um stöðuna í Grikklandi. Kærendur telja að það hljóti að teljast eitt allra mikilvægasta atriðið að búa flóttafólki og umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstæður sem geri þeim kleift að veita börnum sínum þá umönnun og það öryggi sem þau þarfnist og eigi rétt á. Þá sé brýnt fyrir andlega heilsu og framtíð drengjanna að þeir fái tækifæri til þess að alast upp og þroskast í umhverfi sem uppfylli þarfir þeirra um öryggi og velferð. Endursending fjölskyldunnar til Grikklands samræmist ekki slíku markmiði. Kærendur telja að frásögn þeirra af aðstæðum sínum í Grikklandi auk áreiðanlegra heimilda sem raktar séu í greinargerð þeirra sýni fram á að flóttafólk mæti miklum aðgangshindrunum í Grikklandi. Kærendur vísa í þessu samhengi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU19110022 frá 25. mars 2020 og telja að aðstæður í Grikklandi hafi ekki breyst til batnaðar frá því að nefndur úrskurður féll, hvorki varðandi stöðu flóttafjölskyldna í Grikklandi né varðandi áhrif Covid-19 faraldursins, sem hrundið gæti fordæmisgefandi gildi hans. Kærendur byggja á því að endursending drengjanna með heilsuveilum og berskjölduðum foreldrum sínum til Grikklands, þar sem þeim standi ekki til boða félagsleg aðstoð sé þeim augljóslega ekki fyrir bestu. Kærendur leggja áherslu á að það sé skylda íslenskra stjórnvalda að framkvæma ítarlegt og einstaklingsbundið mat á væntanlegum aðstæðum barnanna í Grikklandi.

Þá fjalla kærendur um mat Útlendingastofnunar á áhrifum Covid-19 faraldursins á ástand og aðstæður flóttafólks í Grikklandi. Kærendur vísa til þess að daglegum smitum hafi fjölgað gífurlega á þeim níu mánuðum eða svo sem hafi liðið síðan kærunefndin komst að niðurstöðu sinni vorið 2020. Þá beri heimildir með sér að faraldurinn hafi haft og muni halda áfram að hafa mikil neikvæð áhrif á réttindi og aðstæður flóttafólks í Grikklandi. Þá telja kærendur jafnframt að enn ríki mikil óvissa í Grikklandi þrátt fyrir tilkomu bóluefnis. Kærendur vísa til úrskurðar kæruefndar í málum nr. KNU19110050 og KNU19110051 máli sínu til stuðnings, en í því máli þurfti eitt barna kærenda á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu að halda.

Kærendur telja að aðstæður í Grikklandi hafi ekki breyst til batnaðar frá því að úrskurður kærunefndar í máli nr. KNU20110005 frá 10. desember 2020 féll, hvorki hvað varðar almenna stöðu flóttafólks í Grikklandi né varðandi áhrif Covid-19 faraldursins á samfélagið þar. Kærendur telja að draga verði þá ályktun að ástandið sé verra í Grikklandi nú en í desember síðastliðnum.

Kærendur byggja á því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar með vísan til 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Kærendur telja að lýsingar þeirra á aðstæðum sínum komi heim og saman við opinberar heimildir um aðstæður þar í landi. Með vísan til þessa verður að telja að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga sem og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barna kærenda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna, þ. á m. viðtöl við kærendur hjá Útlendingastofnun, og er það mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A , B og C sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A, B og C verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A, B og C eru í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt gögnum málanna er ekki ljóst hvenær kærendum og börnum þeirra var veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að þau hafi fengið alþjóðlega vernd í Grikklandi árið 2017. Þá hafa kærendur framvísað grískum ferðaskilríkjum fyrir flóttamenn fyrir sig og fyrir hönd barna sinna, sem eru enn í gildi. Með tölvubréfi, dags. 4. júní 2021, óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá kærendum um það hver réttarstaða þeirra hefði verið í Grikklandi. Í svari frá kærendum, dags. 7. júní 2021, greindu kærendur frá því að hafa verið með réttarstöðu flóttamanns í Grikklandi. Með vísan til gagna málsins og framburðar kærenda telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærendur séu handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærendur og börn þeirra njóta í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 – Country Reports on Human Rights Practices: Greece (United States Department of State, 30. mars 2021);

·         Amnesty International Report 2020/21 – Greece (Amnesty International, 7. apríl 2021);

  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);

·         Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2021);

·         Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2021);

·         Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);

·         EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

·         Excluded and segregated – The vanishing education of refugee children in Greece (Refugee Support Aegean, 13. apríl 2021);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);

·         Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);

·         Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);

·         Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);

·         Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);

·         Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingasíða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (https://help.unhcr.org/greece/living-in-greece/access-to-education/, sótt 16. júní 2021);

·         Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;

·         Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 16. júní 2021);

·         Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 16. júní 2021);

·         Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 16. júní 2021) og

·         World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felist jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa kennitalna (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða kennitölu sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu kennitölu (AMKA) breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin ákveðin heilbrigðisþjónustunúmer sem sé tímabundið úrræði, meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefna kennitölu (AMKA) sem teljist varanlegt úrræði. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um kennitölu (AMKA) í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um kennitölu (AMKA) þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá kennitölu gefna út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið þurfi að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2018 hafi meirihluti þeirra flóttamanna sem þá hafi verið starfandi verið í óskráðu starfi. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer, hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fer einungis fram á grísku en umsækjendur geta leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þarf að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjá um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu ECRE kemur fram að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi sama rétt til þess að ganga í skóla þar í landi og önnur grísk börn fram að 15 ára aldri. Þrátt fyrir það sé áætlað að einungis þriðjungur barna með alþjóðlega vernd hafi verið formlega skráður til náms á árunum 2018-2019. Í skýrslu Refugee Support Aegean (RSA) kemur fram að Covid-19 faraldurinn hafi haft slæm áhrif á menntun flóttabarna. Mörg börn hafi ekki náð að sækja skóla í meira en ár auk þess sem það hafi verið erfiðleikum bundið að skrá sig til náms. Jafnframt eigi stór hluti flóttabarna í erfiðleikum með fjarnám vegna tungumálaerfiðleika og skorts á nauðsynlegum búnaði.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Í skýrslu ECRE kemur fram að handhöfum alþjóðlegrar verndar í Grikklandi sé veitt dvalarleyfi til þriggja ára. Þá fái einstaklingar sem hafa hlotið viðbótarvernd, dvalarleyfi til eins árs sem sé hægt að framlengja að þeim tíma loknum til tveggja ára og sama gildi um þá sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna. Þá kemur fram að umsókn um framlengingu dvalarleyfis skuli fara fram ekki seinna en 30 dögum áður en leyfið renni út. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint kemur fram að það eitt og sér hafi ekki í för með sér að umsókninni verði synjað. Frá árinu 2017 hefur umsókn um endurnýjun farið fram í gegnum tölvupóst. Þeir einstaklingar sem ekki hafa aðgang að tölvu eða eru ólæsir hafi því mætt hindrunum við að fá endurnýjun á dvalarleyfum sínum. Þá kemur fram í skýrslunni að yfirleitt taki um einn og hálfan mánuð að fá dvalarleyfi endurnýjað þó dæmi séu um að endurnýjun hafi tekið um sex mánuði. Við endurnýjun fari fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins. Ef dvalarleyfi rennur út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun eigi hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefi til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun og er gilt í fjóra mánuði. Dæmi séu þó um að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Þá sé vinnumálastofnun Grikklands (e. Manpower Employment Organization (OAED)) gjarnan treg til að taka á móti slíkum vottorðum þar sem vottorðin séu m.a. án myndar af einstaklingnum og ekki vatnsmerkt.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð. 

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málanna eru K og M hjón með þrjú börn sem eru [...] ára gömul. K hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að andlegt heilsufar sitt væri gott síðan hún yfirgaf Grikkland. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni í Keflavík, dags. 8. febrúar 2021 kemur fram að K hafi í þrígang gengist undir keisaraskurð. Frá síðustu aðgerð hafi hún ítrekað fengið sýkingar í örið eftir aðgerðina og hafi því mikla verki almennt. Þar að auki hafi hún svuntu eftir þyngdartap sem geri það að verkum að örið sé sífellt í miklum raka. Við skoðun hafi örið verið stórt og K fundið fyrir eymslum við þreifingu. Gerð hafi verið tilvísun til lýtalæknis. Í göngudeildarnótu frá Göngudeild skurðlækninga á Landspítalanum, dags. 22. mars 2021, kemur fram að K hafi farið í skoðun til lýtalæknis. Þrátt fyrir sögu um krónískar sýkingar séu ekki merki um sýkingu til staðar, örið sé vel gróið, enginn roði eða eymsli og örið sé eðlilegt. Hins vegar sé K með svuntu sem lafi yfir örið og hún sé í yfirvigt. K gæti leitað sér aðstoðar sjálfstætt starfandi lýtalæknis til þess að framkvæma svuntuaðgerð ef það er það sem sé að trufla hana. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hann væri þunglyndur og gæti ekki sofið á nóttunni. Þá greindi M frá því að hann hafi átt erfitt með að anda og hafi fengið lyf við því meðan hann var í sóttkví hér á landi. Hann sé jafnframt með mígreni. Þá hefur M lagt fram ljósmynd af grísku læknabréfi.

M og K hafa greint frá því að barnið B sé hjólbeinóttur og að […] en um sé að ræða fæðingargalla. Í vinnublaði sérfræðings frá Læknastöðinni, dags. 26. maí 2021, kemur fram að B eigi bókaðan tíma í skurðaðgerð þann 15. júní 2021 vegna þessa. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að barnið A væri eftir á í málþroska auk þess sem andlegt heilsufar hans væri ekki gott. Að öðru leyti verður ekki annað ráðið af fyrirliggjandi gögnum en að börnin A og C séu við góða heilsu en fram kemur í gögnum málsins að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga nr. 19/1997. Í umsögn frá leikskóla barnanna A, B og C kemur m.a. fram að þeim vegni vel á leikskólanum og samskipti við foreldra séu góð.

Kærunefnd tekur fram að kærendum var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, þann 28. janúar 2021, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærendur teldu hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls þeirra hjá Útlendingastofnun. Þá var kærendum, sem njóta aðstoðar löglærðs talsmanns á vegum Rauða koss Íslands, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 2. og 4. júní 2021, um framlagningu frekari gagna í málinu. Bárust frekari gögn um heilsufar þann 7. júní 2021. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kærenda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kærenda og barna þeirra og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar þeirra geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kærenda og barna þeirra sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, svo sem áskilið er í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kærenda og barna þeirra ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærendur hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kærenda og barna þeirra tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kærenda og barna þeirra geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærendur hafa jafnframt borið fyrir sig að hafa ekki fengið félagslega framfærslu í Grikklandi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat kærunefndar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kærenda og barna þeirra séu ekki slíkar að þau geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem þau eigi að lögum rétt á og þurfi á að halda í Grikklandi.

Kærunefnd vill þá árétta að líkt og að framan greinir, og fram kom m.a. í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051, virðast vera ýmsar hindranir á möguleikum flóttamanna til þess að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Það er þó mat kærunefndar, m.a. með vísan til gagna sem kærunefnd aflaði sérstaklega frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd geti mætt ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland til þess að þeir geti fengið slík númer. Þá telur kærunefnd það sama eiga við um útgáfu kennitalna (AMKA) til flóttamanna, sem veitir þeim m.a. aðgang að heilbrigðisþjónustu í landinu. Í fyrrgreindum málum var það m.a. mat nefndarinnar að í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi, og þeirrar stöðu sem uppi var á þeim tíma vegna átaka við landamærin og fordæmalausrar stöðu vegna Covid-19 faraldursins, að ástæða hafi verið til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu væru í verri aðstöðu en áður til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldu sinni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir barnanna. Í því máli sem hér er til meðferðar eru kærendur að mestu heilbrigð og vinnufær. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að þau séu fær um að sækja sér þá þjónustu sem þau þurfi á að halda í viðtökuríki. Við meðferð málsins hafa kærendur m.a. greint frá því að hafa leigt húsnæði í Grikklandi. Jafnframt hefur M greint frá því að hafa verið með vinnu í Grikklandi en hann hafi starfað fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og unnið sjálfstætt sem túlkur. Þá hefur K greint frá því að hafa haft aðgang að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi en hún hafa farið í mæðravernd meðan hún var ófrísk og börnin hafi verið bólusett meðan þau dvöldu í Grikklandi. Með tölvubréfi, dags. 4. júní 2021, óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá kærendum um það hvort þau hefðu haft kennitölu og skattnúmer í Grikklandi. Í svari frá kærendum, dags. 7. júní 2021, kom fram að kærendur hefðu fengið útgefin skattnúmer í Grikklandi. Þá greindu kærendur frá því að hafa verið með kennitölu í Grikklandi ásamt barninu A en að börnin B og C hefðu ekki fengið útgefnar kennitölur. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærendur geti sótt um kennitölu fyrir börnin B og C, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar. 

Kærendur hafa jafnframt borið fyrir sig að hafa orðið fyrir fordómum og mismunun í Grikklandi. Þá hefur M greint frá því að honum hafi verið hótað af meðlimum ný-nasistaflokksins Golden Dawn (g. Chrysí Avgí) og hann hafi leitað til lögreglu í kjölfarið. Hefur M lagt fram lögregluskýrslu máli sínu til stuðnings. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærendur geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði þau fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærendur um öryggi sitt geti þau leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu aðstæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærendur hafa ekki sýnt fram á að aðstæður þeirra í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn þeirra til efnismeðferðar hér á landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kærenda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Hafa aðgerðirnar m.a. falist í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg ríki sett á ferðatakmarkanir og á einhverjum tímapunkti lokað fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með alþjóðlega vernd og á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins. Var það m.a. gert hér á landi yfir ákveðið tímabil en óvissa ríkir um það hvenær framkvæmd endursendinga verður komin í sama horf og áður en Covid-19 faraldurinn skall á. Samkvæmt upplýsingasíðu Johns Hopkins háskólans í Bandaríkjunum og vefsíðu Sóttvarnarstofnunar Evrópu hefur nýgengi Covid-19 smita í Grikklandi sveiflast nokkuð en samkvæmt síðarnefndu vefsíðunni er nýgengi smita í Grikklandi síðustu tvær vikur undir meðaltali EES ríkjanna. Yfirvöld í Grikklandi hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til að sporna við útbreiðslu veirunnar, m.a. með lokun landamæra, útgöngubanni á ákveðnum tíma dags, grímuskyldu á almenningsstöðum, vinnustöðum og almenningssamgöngum, banni við að ferðast innanlands nema vegna sérstakra ástæðna, landamæraskimun og sóttkví. Til að greiða fyrir áframhaldandi málsmeðferð og þjónustu til umsækjenda um alþjóðlega vernd hafa yfirvöld útlendingamála í Grikklandi (e. Asylum Services Offices) opnað rafrænan vettvang þar sem einstaklingar eiga þess kost að sækja um vernd. Jafnframt hafa stjórnvöld framlengt gildistíma á útrunnum dvalarleyfisskírteinum sjálfkrafa en ný dvalarleyfisskírteini er hægt að sækja með því að panta tíma fyrirfram hjá yfirvöldum útlendingamála. Þá hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna aðstoðað grísk stjórnvöld í baráttunni við veiruna, m.a. með því að veita aðstoð til flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd í landinu. Hefur stofnunin m.a. veitt viðeigandi stuðning svo flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi fullnægjandi aðgang að heilbrigðisstofnunum og annarri þjónustu. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem eru við lýði vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar og komi ekki til með að hafa teljandi áhrif á stöðu kærenda þar í landi þegar takmörkunum hefur verið aflétt. Í því sambandi lítur kærunefnd einnig til þess að Lyfjastofnun Evrópu hefur samþykkt notkun á fjórum tegundum bóluefna gegn veirunni sem veldur Covid-19 og að vænta megi að notkun fleiri bóluefna verði samþykkt á næstunni. Þá hefur bólusetning hafist í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Grikklands geti ekki eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsóknir kærenda verði teknar til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kærenda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar í greinargerð kærenda til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020, telur kærunefnd að þrátt fyrir að um sama viðtökuríki sé að ræða sé ekki unnt að jafna aðstæðum kærenda í þessu máli við stöðu kæranda í framangreind máli. Í forsendum kærunefndar í framangreindum úrskurði kemur m.a. fram að nefndin telji að neikvæðar afleiðingar Covid-19 faraldursins geti leitt til aðgangshindrana að þjónustu fyrir flóttamenn og umsækjenda um alþjóðlega vernd í Grikklandi. Var umsókn kæranda m.a. af þeirri ástæðu tekin til efnismeðferðar hér á landi. Á þeim tímapunkti sem framangreindur úrskurður var kveðinn upp ríkti mikil óvissa í heiminum um hver áhrif Covid-19 faraldursins yrði á innviði ríkja og réttindi og aðstæður flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Sú óvissa var grundvallarforsenda þeirrar niðurstöðu kærunefndar að leggja fyrir Útlendingastofnun að taka málið til efnismeðferðar. Þá leit kærunefnd einnig til þeirrar framkvæmdar Útlendingastofnunar að taka sambærileg mál til efnismeðferðar á þessum tíma af þessum sömu ástæðum.

Kærunefnd telur að verulega hafi dregið úr óvissu sem til staðar var í maí 2020 m.a. um áhrif faraldursins á innviði viðtökuríkisins og hefur kærunefnd hér að framan lagt einstaklingsbundið mat á væntanlegar aðstæður kærenda í viðtökuríkinu í samræmi við stöðu mála þar í landi eins og þær horfa við nú um stundir. Þó að faraldurinn hafi verið í uppsveiflu í Grikklandi í haust og aftur nú í vor, eins og í flestum öðrum Evrópuríkjum, þá benda gögn ekki til þess að faraldurinn hafi haft þau áhrif þar í landi sem áður var talin hætta á. Kærunefnd telur með vísan til þeirra skýrslna og gagna sem nefndin hefur kynnt sér að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi skerst á síðustu mánuðum vegna Covid-19 faraldursins þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kærenda til efnismeðferðar hér á landi. Þá lítur kærunefnd jafnframt til þess að með tilkomu bóluefnis sjái nú fyrir endann á þeim aðstæðum sem ríkt hafa undanfarna mánuði vegna Covid-19 faraldursins, hér á landi sem og annars staðar, þ. á m. í Grikklandi. Það er því mat kærunefndar að sú óvissa sem ríkti í vor og leiddi til þess að umsóknir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi voru teknar til efnismeðferðar sé ekki lengur til staðar og því sé ekki um sérstakar ástæður að ræða í málinu í skilningi. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar í greinargerð kærenda til úrskurðar kærunefndar í málum nr. KNU19110022 og KNU19110023, tekur kærunefnd fram að þó að um hafi verið að ræða fjölskyldu með börn með vernd í sama viðtökuríki og kærendur, hafi nefndin talið að í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum og þeirrar stöðu sem þá ríkti vegna átaka við landamærin og þeirri fordæmalausu stöðu vegna Covid-19 faraldursins sem uppi var á þeim tíma að ástæða væri til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu væru í verri stöðu en áður til að tryggja grunnþarfir barna sinna. Þá vísa kærendur til úrskurðar kærunefndar í málum nr. KNU19110050 og KNU19110051 í greinargerð sinni. Kærunefnd tekur fram að atvik í því máli voru með öðrum hætti. Barn kærenda hafði orðið fyrir alvarlegum áföllum m.a. verið rænt af leikskóla í heimaríki. Barnið hafði glímt við andleg veikindi og meðal gagna málsins var vottorð frá sálfræðingi þar sem fram kom að staða barnsins væri afar viðkvæm. Því taldi kærunefnd m.a. að heilsufar barns kærenda hefði vægi við mat á því hvort taka ætti umsóknir þeirra til efnismeðferðar. Af þeim sökum telur kærunefnd að þrátt fyrir að um sama viðtökuríki sé að ræða sé ekki unnt að jafna stöðu kærenda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum enda séu aðstæður þeirra ólíkar að öðru leyti.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Líkt og að framan er rakið eru kærendur og börnin A, B og C handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Þá hafi þau dvalið í Grikklandi í um 4 ár og komu hingað í sameiningu. Það er mat kærunefndar á grundvelli framangreinda upplýsinga um aðstæður í Grikklandi og gagna málanna að flutningur kærenda til Grikklands muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist. Að því er varðar aðgengi barnanna að menntun tekur kærunefnd fram að þótt skýrslur bendi til þess að kærendur þurfi að yfirstíga ákveðnar stjórnsýsluhindranir til að skrá börn sín í skóla er að mati kærunefndar ljóst að A, B og C eiga lagalegan rétt á menntun í Grikklandi fram til 15 ára aldurs og í kjölfarið rétt til endurgjaldslausrar grískukennslu. Jafnframt  geta foreldrar sótt um pláss á leikskóla fyrir börn sín frá 2 ára aldri. Til þess að sækja um pláss á leikskóla þurfi að sýna fram á staðfestingu á heimilisfangi og staðfestingu á því að barnið hafi verið bólusett.

Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kærenda og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd í Grikklandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Grikklands samrýmist hagsmunum barnanna þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir barna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barna kærenda að umsóknir þeirra verði ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda og barna þeirra og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður þeirra er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtölum hjá Útlendingastofnun þann 28. janúar 2021 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærendur hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar þann 22. desember 2020. Samkvæmt 32. gr. c reglugerðar um útlendinga, eins og henni var breytt með reglugerð nr. 638/2019, er Útlendingastofnun heimilt að taka til efnismeðferðar umsókn barns sem hefur fengið vernd í öðru ríki, séu meira en 10 mánuðir liðnir frá því umsókn barst íslenskum stjórnvöldum. Ljóst er af gögnum málanna að ákvæðið eigi ekki við um kærendur enda eru ekki liðnir 10 mánuðir frá því umsókn þeirra barst íslenskum stjórnvöldum.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl.,99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann verði þar eða við flutninginn fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærendur eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiði því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærendur njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu verður mál kærenda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kærenda við ákvarðanir Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gera kærendur ýmsar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, þ. á m. við mat stofnunarinnar á einstaklingsbundinni stöðu þeirra og umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi.

Kærendur gera athugasemd við mat Útlendingastofnunar á sérstaklega viðkvæmri stöðu þeirra, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Af þessu tilefni vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, fara fram, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gildi ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu samkvæmt 1. mgr. Skilgreining á stöðu samkvæmt 1. mgr. hefur ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kærenda og barna þeirra tekur kærunefnd fram að kærendum var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali við kærendur var þeim leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem þau teldu hafa þýðingu fyrir mál sín, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hafa kærendur auk þess fengið tækifæri til framlagningar frekari heilsufarsgagna í málinu, svo sem þau hafa gert, og er það mat kærunefndar að mál kærenda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar kærenda og barna þeirra og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þegar litið er til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga setur fram er ljóst að þau gögn sem liggja fyrir í málinu benda ekki til þess að frekari gagnaöflun geti haft áhrif á niðurstöðu. Kærunefnd telur ekki ástæður til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kærenda sem áhrif gætu haft á mat á því hvort rétt sé að taka umsóknir kærenda til efnismeðferð hér á landi.

Þá gera kærendur athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar á heilsufari þeirra, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Í greinargerð kærenda vísa þau til þess að Útlendingastofnun hafi boðað kærendur til birtingar þrátt fyrir að M hafi hvorki lokið tíma hjá sálfræðingi né sérfræðingi vegna höfuðverkja auk þess sem K hafi ekki fengið tilfallandi greiningu vegna heilsufarsvandamála sinna. Í rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar felst m.a. sú skylda stjórnvalds að sjá til þess, að eigin frumkvæði, að málsatvik stjórnsýslumáls séu nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Eitt skilyrði þess að mál teljist nægjanlega rannsakað er að aðila máls hafi verið leiðbeint með fullnægjandi hætti um réttindi og skyldur. Rannsóknarreglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Kröfur til rannsóknar í hverju máli ráðast af lagagrundvelli málsins og einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda, þ.m.t. þeim málsástæðum sem hann ber fyrir sig.

Af gögnum málsins má sjá að sérfróðir starfsmenn Útlendingastofnunar hafi lagt mat á málsástæður og stöðu kærenda. Kærendur komu í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 28. janúar 2021 ásamt talsmanni sínum. Aðspurður kvaðst M glíma við þunglyndi og eiga við svefnerfiðleika að stríða. Þá greindi M frá því að vera með mígreni en hann hefði ranglega verið greindur með krabbamein í Grikklandi. K greindi frá því að vera með vandamál í kjölfar keisaraskurða eftir fæðingu barna sinna. Fulltrúi Útlendingastofnunar tók fram í viðtölum við kærendur að ef þau teldu sig ekki geta beðið eftir læknisskoðun þá væri þeim leiðbeint að hafa samband við þjónustuteymi stofnunarinnar. Þá var kærendum jafnframt leiðbeint í viðtalinu um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærendur teldu hafa þýðingu fyrir mál sín, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls þeirra hjá Útlendingastofnun. Þá lá fyrir í málinu vottorð þess efnis að kærendur hefðu undirgengist læknisskoðun í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga á Göngudeild sóttvarna. Jafnframt hafði K leitað til heilsugæslunnar í Keflavík vegna heilsufarsvandamála sinna áður en Útlendingastofnun tók ákvörðun í málinu.

Af endurriti viðtala við kærendur má sjá að fulltrúi Útlendingastofnunar hafi spurt nánar út í andlegt og líkamlegt heilsufar kærenda, s.s. hvort kærendur hafi leitað til læknis í heima- eða viðtökuríki, hvernig þeim hafi liðið undanfarið og hvaða áhrif andlegir kvillar hafi haft á líf þeirra. Þá var kærendum leiðbeint um að leggja fram frekari gögn í tengslum við heilsufar sitt. Af ákvörðunum Útlendingastofnunar má sjá að lagt var til grundvallar að M glími við þunglyndi og svefntruflanir og að K hefði gengist undir þrjár keisaraskurðaðgerðir og með hliðsjón af því lagt mat á aðgang handhafa alþjóðlegrar verndar að viðeigandi heilbrigðisþjónustu í Grikklandi.

Með tilliti til heildarmats í máli kærenda telur kærunefnd ljóst að ítarlegri rannsókn á heilsufari kærenda og framlagning frekari gagna hefði ekki getað haft áhrif á niðurstöðu í máli þeirra enda er ekkert sem bendir til þess að þau glími við mikil og alvarleg veikindi, sbr. viðmið í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Er það mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Þá tekur kærunefnd fram að við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur K lagt fram gögn frá sérfræðilækni sem bera með sér að hún glími ekki við alvarleg veikindi.

Vegna tilvísunar í greinargerð kærenda til úrskurðar kærunefndar í málum nr. KNU19060004 og KNU19060005 frá 12. september 2019 tekur kærunefnd fram að í því máli lá fyrir að barn kærenda þyrfti að undirgangast hjartaskurðaðgerð og var það mat sérfræðings að aðgerðin þyrfti að fara fram innan ákveðins tíma. Taldi kærunefnd að í ljósi mögulegra aðgangshindrana einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að viðeigandi heilbrigðisþjónustu að ekki væri hægt að fullyrða að barninu stæði til boða sú læknisþjónusta sem hann þyrfti á að halda og innan þess tíma sem heilsufarsgögn málsins báru með sér. Þá vísa kærendur til úrskurðar kærunefndar í málum nr. KNU19090017 og KNU19090018 frá 7. nóvember 2019. Kærunefnd tekur fram að í því máli glímdi barn kærenda við alvarleg veikindi og lá fyrir að barnið þyrfti á skurðaðgerðum að halda. Jafnframt lá fyrir í málinu að barn kærenda þyrfti að vera undir eftirliti lækna næstu árin en óvissa var uppi um það hvort barninu stæði sú þjónusta til boða í viðtökuríki. Því telur kærunefnd að ekki sé ekki unnt að jafna aðstæðum kærenda við stöðu kærenda í framangreindum málum enda séu aðstæður þeirra ólíkar að öðru leyti.

Í greinargerð kærenda til kærunefndar er gerð athugasemd við það að Útlendingastofnun hafi ekki látið þýða grískt læknabréf sem kærendur lögðu fram ljósmyndir af við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála hefur enginn ágreiningur verið uppi um efni skjalsins og framburður kærenda um efni þess lagður til grundvallar við vinnslu málsins.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins komu kærendur hingað til lands þann 22. desember 2020 og sóttu um vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hafa umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og verða alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kærenda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.


 

Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

Þorbjörg I. Jónsdóttir                                                                                    Sindri M. Stephensen


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum