Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A9lags%C3%BEj%C3%B3nusta%20og%20h%C3%BAsn%C3%A6%C3%B0ism%C3%A1l

Mál nr. 620/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 620/2021

Fimmtudaginn 2. desember 2021

A

gegn

Sveitarfélaginu Hornafirði

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 17. nóvember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála samskipti við starfsmann Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 17. nóvember 2021 og vísaði til þess að hann væri að kæra tiltekinn starfsmann Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna samskipta við hana, en starfsmaðurinn hafi kallað kæranda á fund og borið upp á hann að hann hafi sagt hluti við þriðja aðila sem hann hafi ekki gert. Kærandi krefjist sanngirnisbóta vegna mannorðsmorðs.   

II.  Niðurstaða

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Þannig er grundvöllur þess að unnt sé að leggja fram kæru til úrskurðarnefndar að fyrir liggi stjórnvaldsákvörðun. Um stjórnvaldsákvörðun er að ræða þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um rétt eða skyldur manna í skjóli stjórnsýsluvalds, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Af kæru má ráða að kærandi sé ekki að kæra tiltekna stjórnvaldsákvörðun sem Sveitarfélagið Hornafjörður hefur tekið. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að mál kæranda sé ekki tækt til efnismeðferðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum