Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 402/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 402/2020

Fimmtudaginn 28. janúar 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. ágúst 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. ágúst 2020, um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 6. júlí 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 19. ágúst 2020 og óskaði eftir greiðslum atvinnuleysisbóta frá 1. júní 2020. Með bréfi, dags. 25. ágúst 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 10. september 2020, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að beiðni kæranda hefði verið samþykkt. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. september 2020, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð með erindum úrskurðarnefndar 29. október og 10. nóvember 2020. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. ágúst 2020, um að greiða kæranda atvinnuleysisbætur frá 6. júlí 2020 í stað 1. júní 2020. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að stofnunin hefði samþykkt beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. júní 2020. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en engin svör bárust frá honum.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum