Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 5/2013, úrskurður 9. janúar 2013

 

Mál nr. 5/2013                      Eiginnafn:     Greppur

 

Hinn 9. janúar 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 5/2013 en erindið barst nefndinni 8. janúar:

Eiginnafnið Greppur (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Grepps, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Greppur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum