Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 37/2019 Úrskurður 24. apríl 2019

Mál nr. 37/2019                    Aðlögun kenninafns: Patreksson

                                            

 

Hinn 24. apríl 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 37/2019.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 10. apríl 2019, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XXX um að sonur hennar skuli vera kenndur til föður síns, Patryk. Óskar hún að kenninafn drengsins verði skráð í þjóðskrá Patreksson.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Patreksson.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum