Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 125/2021 Úrskurður 12. október 2021

Mál nr. 125/2021                  Eiginnafn:     Annarósa (kvk.)

 

 

 

 

Hinn 12. október 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 125/2021 en erindið barst nefndinni 7. september.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Ef litið er á nafnið Annarósa sem samsett nafn myndað úr nöfnunum Anna og Rósa þá reynir á skilyrði nr. tvö hér að ofan. Sem samsett nafn fer Annarósa (kvk.) gegn hefðbundnum nafnmyndunarreglum í íslensku. Fyrri liður þess er nafnið HHanna Anna, í aukaföllum Önnu. Ekki er hefð fyrir því að í samsettum orðum, sem mynduð eru af tveimur nafnorðum, beygist fyrri liður samsetningarinnar, það gerir aðeins sá síðari. Nafnið Annarósa (í eignarfalli Önnurósu) brýtur þannig í bág við íslenskt málkerfi. Annar möguleiki væri að fyrri liður væri óbreyttur í beygingu (sbr. eignarfallsmyndina Annarósu). Sá möguleiki bryti einnig í bág við íslenskt málkerfi þar sem nefnifallsmyndir veikra kvenkynsorða (s.s. gata, lilja) mynda ekki fyrri lið í samsettum orðum; þar er notað eignarfall (s.s. götuljós, liljuvöndur).

Með vísan til álits umboðsmanns Alþingis frá 2. maí 2005 í máli nr. 4254/2004 og úrskurðar mannanafnanefndar frá 9. maí 2005 í máli nr. 47/2005 (vegna umsóknar um nafnið Annalísa (kvk.)) er einnig hægt að líta svo á að nafnið Annarósa sé ekki samsett úr íslenskum nöfnum heldur íslensk aðlögun á erlendri nafnmynd, sbr. t.d. nafnið Annarosa á dönsku mannanafnaskránni. Sem slíkt tekur eiginnafnið Annarósa (kvk.) íslenskri beygingu í eignarfalli, Annarósu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Annarósa (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum