Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 231/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 25. maí 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 231/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21030056

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 17. mars 2021 kærði […], fd. […], ríkisborgari Víetnams (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. mars 2021, um að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar með íslenskum ríkisborgara, sbr. 70. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hennar um dvalarleyfi verði samþykkt. Til vara er þess krafist að málinu verði vísað aftur til Útlendingastofnunar til frekari rannsóknar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.            Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar með íslenskum ríkisborgara þann 26. nóvember 2019. Maki kæranda fór í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 22. október 2020. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. mars 2021, var umsókninni synjað. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála hinn 17. mars 2021 og greinargerð kæranda barst kærunefnd hinn 6. apríl 2021.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að við vinnslu umsóknar kæranda hafi vaknað grunur um að til hjúskapar hefði verið stofnað í þeim tilgangi að afla dvalarleyfis hér á landi. Hafi Útlendingastofnun sent lögmanni kæranda bréf hinn 3. september 2020 og hefði stofnuninni borist svarbréf þann 8. október 2020. Hefði Útlendingastofnun í framhaldi af því sent beiðni um aðstoð til lögreglu vegna gruns um brot á ákvæðum laga um útlendinga. Þá hafi maki kæranda verið boðaður í viðtal hjá Útlendingastofnun hinn 22. október 2020. Hafi Útlendingastofnun sent kæranda bréf hinn 3. febrúar 2021 þar sem fram hafi komið þau atriði sem helst þættu gefa til kynna að um mögulegan málamyndahjúskap væri að ræða. Andmælabréf hefði borist Útlendingastofnun frá lögmanni kæranda hinn 19. febrúar 2021, þar sem fullyrðingum stofnunarinnar var hafnað.

Var það mat Útlendingastofnunar með vísan til gagna málsins að fyrir hendi væri rökstuddur grunur um að til hjúskapar kæranda og maka hennar hefði verið stofnað í þeim tilgangi að afla henni dvalarleyfis hér á landi, enda hefði ekki verið sýnt fram á annað svo óyggjandi væri, sbr. 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga. Var umsókn kæranda því synjað.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð er vísað til þess að kærandi og maki hafi verið skráð í hjúskap þann 16. september 2019 en þau hafi kynnst í gegnum frænku kæranda sem búi á Íslandi. Hafi maki kæranda og frænka hennar leigt saman og samskipti kæranda og maka fyrst verið í gegnum samfélagsmiðla. Hafi maki kæranda farið til Víetnam í september 2019 og búið hjá kæranda, bæði fyrir hjúskap og eftir. Er vísað til þess að fyrstu svör Útlendingastofnunar hafi verið í september 2020, eða um ellefu mánuðum eftir að umsóknin var lögð fram. Í bréfi Útlendingastofnunar, dags. 3. febrúar 2021, hafi stofnunin tilgreint ýmis atriði sem lægju til grundvallar við mat á því að hjúskapurinn væri til málamynda, vinskapur maka kæranda við þriðja aðila, lántaka og millifærslur frá þriðja aðila, skortur á gögnum sem sýndu samskipti í síma og myndir og að kærandi ætti ættingja á Íslandi. Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar, dags. 19. febrúar 2021, hafi verið veittar ítarlegar skýringar á framangreindum efnisatriðum og settar fram leiðréttingar.

Kærandi byggir á því að ákvæði 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga sé undantekningarákvæði sem feli í sér mikla skerðingu á rétti fólks til einkalífs og við túlkun á ákvæðinu beri að beita þröngri lögskýringu og vernda einstaklinga gegn ómálefnalegri íhlutun stjórnvalda í réttindi þeirra. Af því leiði að stjórnvöldum beri skylda til að framkvæma eigið mat og tryggja að slíkt mat fari raunverulega fram í hverju tilviki. Þá beri einnig að horfa til hugtaksins „rökstuddur grunur“, sem vísi m.a. til þess að eitthvað sé stutt ástæðum eða rökum og vísar kærandi í því samhengi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 83/2019, þar sem fram komi að hinn rökstuddi grunur þurfi að beinast að stofnun hjúskaparins. Kærandi gerir athugasemdir við aðferðafræði Útlendingastofnunar við mat á rökstuddum grun, sbr. 8. mgr. 70. gr. laganna. Af beinu orðalagi í niðurstöðukafla ákvörðunarinnar virðist sem Útlendingastofnun horfi nú til þess að í upptalningu í athugasemdum með ákvæðinu sé að finna dæmi með atriðum sem megi líta til við mat á því hvort rökstuddur grunur sé til staðar. Athygli veki að stofnunin tilgreini nú sérstaklega að ekki sé um tæmandi talningu að ræða en í fyrri ákvörðunum hafi hún byggt á því að í tilvitnuðum 11 liðum sé að finna tæmandi talningu á þeim atriðum sem skuli koma til skoðunar. Að sama skapi veki það upp spurningar að önnur atriði, sem stofnunin tilgreini í ákvörðuninni, séu hvergi tilgreind í leiðbeiningum löggjafans eða stjórnvaldsins sjálfs. Þá líti stofnunin fram hjá atriðum sem styðji við frásögn kæranda og maka. Veki það sérstaka athygli að í ákvörðuninni sé vægi annarra efnisatriða úr leiðbeiningunum ekki metið og önnur efnisatriði ekki rannsökuð eða studd öðrum gögnum, s.s. hvort þau þekki til tilvika úr lífi hvors annars eða hvort einhver gögn liggi til grundvallar sem styðji grun stofnunarinnar. Þá telur kærandi rétt að vekja athygli á því að maki kæranda hafi ekki fengið að sjá þá lögregluskýrslu sem Útlendingastofnun hafi byggt á fyrr en eftir að hin kærða ákvörðun var tekin en maki kæranda hafi í viðtali hjá stofnuninni andmælt því sem þar komi fram sem röngu og að ekki hafi verið rétt eftir honum haft. Þá hafi umboðsmaður kæranda óskað eftir upptöku frá heimsókn lögreglu þar sem hann telji að skýrslan endurspegli ekki þau samskipti sem þar fóru fram en Útlendingastofnun hafi ekki svarað því erindi. Byggir kærandi á því að andmælaréttar hafi ekki verið gætt vegna efni skýrslunnar og geti stofnunin því ekki byggt á því sem fram komi í endurriti lögregluskýrslunnar í hinni kærðu ákvörðun. Með vísan til þessa byggir kærandi á því að aðferðafræði stjórnvaldsins og mat þess í hinni kærðu ákvörðun sé haldið slíkum ágöllum að ógilda beri ákvörðunina og veita kæranda dvalarréttindi á Íslandi. Hafi sjálfstætt mat ekki farið fram á umsókn kæranda þar sem hver liður fái sjálfstætt vægi. Þá sé ljóst að tilgreining á tilteknum leiðbeiningum í lögskýringargögnum með ákvæði 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga sé ekki tæmandi og aðeins í dæmaskyni. Sé því ekki málefnalegt sjónarmið að horfa fram hjá eðlilegum skýringum.

Kærandi byggir á því að ekkert þeirra efnisatriða sem tilgreind séu í hinni kærðu ákvörðun hafi með stofnun hjúskaparins að gera, líkt og áskilið sé í 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga. Þá sé ljóst að meirihluti tilgreindra efnisatriða hafi enga eða óverulega þýðingu í heildarmatinu og önnur atriði eigi sér eðlilegar skýringar. Í fyrsta lagi byggi Útlendingastofnun mat sitt á því að maki kæranda eigi vinkonu á Íslandi, […]. Í hinni kærðu ákvörðun sé sérstaklega byggt á því að þau hafi ferðast saman í gegnum tíðina og að til séu myndir af þeim ferðast sameiginlega á samfélagsmiðlum. Þá sé byggt á því að maki kæranda leigi rými hjá […] og hann hafi aðstoðað við að passa dóttur hennar. Sé alfarið horft fram hjá þeirri staðreynd að maki kæranda og […] hafi verið samstarfsfélagar og vinir um áraraðir en hvergi komið fram hvernig vinskapur þeirra eigi að hafa áhrif á hjúskap kæranda og maka hennar. Þá beri stofnuninni að líta til stofnunar hjúskaparins en ekki vinskapar maka kæranda við þriðja aðila, sbr. tilvitnað orðalag í úrskurði kærunefndar nr. 83/2019. Í öðru lagi byggi Útlendingastofnun mat sitt á því að háar millifærslur séu inn á reikning maka frá aðila sem sé skyldmenni kæranda, nánar tiltekið samtals um tvær milljónir kr. sem millifærðar hafi verið í fjórum millifærslum árið 2019. Í fyrirliggjandi greinargerð til Útlendingastofnunar hafi nánari grein verið gerð fyrir umræddum millifærslum en þar komi m.a. skýrlega fram að um sé að ræða lán frá aðila sem maki kæranda hafi þekkt í mörg ár eða allt frá því að frændi kæranda hafi starfað hjá fjölskyldu maka kæranda. Telur kærandi augljóst að framangreint hafi ekkert með umsókn sína að gera eða gefi til kynna að hjúskapur hennar og maka sé til málamynda. Þá telur kærandi að þessar fjárhæðir geti ekki talist „háar“ eða umtalsverðar í nokkrum skilningi auk þess sem Útlendingastofnun hafi ekki borið sig eftir staðfestingum frá lánveitanda.

Í þriðja lagi sé byggt á því í hinni kærðu ákvörðun að kærandi og maki hafi ekki búið saman fyrir hjúskap. Vísar kærandi til þess að þau hafi kynnst í byrjun árs 2019 og verið í sambandi á samfélagsmiðlum þangað til þau ákváðu að gifta sig. Þá hafi þau búið saman frá því að maki kæranda kom til Víetnam, þ.e. fyrir giftingu, og þangað til maki fór aftur til Íslands. Þannig hafi þau í reynd búið saman fyrir giftingu en í lögum sé hvergi að finna viðmið sem tilgreini hvað aðilar skuli hafa búið saman lengi. Í fjórða lagi byggi Útlendingastofnun mat sitt á því að fáar myndir hafi verið afhentar og að framlagðar myndir séu ekki nægilegar, þ.e. að aðeins hafi verið lagðar fram myndir sem teknar séu við tvö tilefni, við komu á flugvöll og á veitingastað. Þá sýni samskiptasaga fram á takmörkuð samskipti. Vísar kærandi til þess að framlagðar myndir séu teknar við þrjú tilefni, þ.e. við komu á flugvöll, á veitingastað og brúðkaupsmyndir. Virðist sem stofnunin hafi horft fram hjá framangreindu sem og þeirrar staðreyndar að kærandi og maki hafi dvalið saman í rúmlega hálfan mánuð en þetta atriði hafi verið ítarlega útskýrt í greinargerð til Útlendingastofnunar og þar bent á að stofnunin geti ekki lagt mikla vigt í að slík gögn séu ekki til staðar. Eigi það sérstaklega við þar sem hvergi segi í umsóknargögnum eða leiðbeiningum á heimasíðu Útlendingastofnunar að umsækjendur kunni að þurfa að framvísa slíkum gögnum. Í málinu séu fyrirliggjandi myndir af þeim saman auk samskipta á samfélagsmiðlum en hvergi sé að finna nokkur fyrirmæli sem gefi til kynna að það þurfi einhvern tiltekinn fjölda mynda eða magn samskipta. Þá sé hvergi að finna nokkur fyrirmæli sem gefi til kynna að það þurfi einhvern tiltekinn fjölda mynda en í umsóknargögnum stofnunarinnar sé hvergi tilgreint að umsækjandi þurfi að leggja fram afrit af myndum eða samskiptasögu, hvorki við afhendingu umsóknar í upphafi eða síðar. Ætli Útlendingastofnun sér síðar að byggja á því að slík gögn skorti beri stjórnvaldinu að leiðbeina umsækjanda við afhendingu umsóknarinnar um að varðveita slík gögn sérstaklega á meðan umsóknin er til meðferðar, sbr. 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 3. mgr. 11. gr. laga um útlendinga. Þá byggir kærandi á því að í hinni kærðu ákvörðun hafi ekki farið fram sjálfstætt mat á einstökum þáttum og þeir vegnir og metnir með hliðsjón af málsatvikum heldur virðist þeir allir fá jafnt vægi.

Loks byggir kærandi á því að Útlendingastofnun hafi ekki gætt að rannsóknarskyldu sinni samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga. Þar sem um sé að ræða mjög íþyngjandi ákvörðun sem beinist að grundvallarmannréttindum um friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu verði að gera ríkari kröfur til afgreiðslu stofnunarinnar en hin kærða ákvörðun beri með sér. Kærandi vísar jafnframt til meðalhófsreglu stjórnsýslulaga og áréttar að dvalarleyfi kæranda yrði ávallt tímabundið og stjórnvöld geti því hæglega gripið til annarra úrræða í kjölfar þess að dvalarleyfi hafi verið veitt, sé áframhaldandi grunur um málamyndahjúskap til staðar. Þá áréttar kærandi að stjórnvöld geti ekki valið að eigin geðþótta hvaða gögn séu lögð til grundvallar heldur verði að gæta meðalhófsreglu og jafnræðis við úrlausn allra mála.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 70. gr. laga um útlendinga er kveðið á um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar eða sambúðar. Í 1. ml. 8. mgr. 70. gr. laganna segir að sé rökstuddur grunur um að til hjúskapar eða sambúðar hafi verið stofnað í þeim tilgangi að afla dvalarleyfis og ekki sé sýnt fram á annað svo að óyggjandi sé veiti það þá ekki rétt til dvalarleyfis. Í athugasemdum við 70. gr. í frumvarpi því er varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. orðrétt:

„Ákvæðinu er ætlað að heimila synjun á veitingu leyfis ef hægt er að sýna fram á að til hjúskapar hafi verið stofnað í öðrum tilgangi en til samvistar, t.d. til að afla dvalarleyfis. Þegar metið er hvort grunur sé á málamyndahjúskap er m.a. litið til þess hvort aðilar hafi búið saman fyrir stofnun hjúskapar, aldursmunar, hvort þau tali tungumál hvors annars, þekki til einstakra atriða eða atvika úr lífi hvort annars og hjúskaparsögu viðkomandi maka og hvort hún veki grunsemdir hvað þetta varðar. Við mat á aðstæðum sem þessum þarf þó að taka tillit til þess að mismunur getur verið á milli menningarheima hvað varðar hefðir og aðdraganda hjúskapar og þekkingu hjóna hvort á öðru við upphaf hjúskapar. Það að aðilar hafi ekki hist áður eða búið saman fyrir stofnun hjúskapar getur ekki verið eini grundvöllur þess að synja um veitingu leyfis á þessum grundvelli heldur verður fleira að koma til sem bendir til þess að um málamyndagerning sé að ræða. Auk þessara þátta getur skipt máli hvort viðkomandi útlendingur hafi áður sótt um dvöl í landinu á öðrum grundvelli, m.a. með umsókn um alþjóðlega vernd og að viðkomandi útlendingur hafi gengið í hjúskap stuttu eftir að þeirri umsókn hafi verið hafnað. Þá getur þurft að líta til þess hvort viðkomandi eigi ættingja hér á landi, maki hérlendis hafi verið giftur á Íslandi og skilið rétt eftir að maki hans eða hann sjálfur hafi öðlast sjálfstæð réttindi hér á landi, hversu oft ábyrgðaraðili hafi verið giftur hér á landi og hvort grunur er um að hann hafi fengið verulegar fjárhæðir sem gætu tengst málinu.“

Í framangreindum athugasemdum er vísað til atriða sem m.a. er unnt að líta til við mat á því hvort um rökstuddan grun sé að ræða í skilningi ákvæðisins. Hins vegar er ljóst að upptalning á þeim atriðum er koma til skoðunar er ekki tæmandi og gilda almennar sönnunarreglur í slíkum málum. Þannig er stjórnvöldum ótvírætt heimilt að líta til annarra atriða en nefnd eru í áðurnefndum lögskýringargögnum enda sé slíkt mat byggt á málefnalegum sjónarmiðum.

Samkvæmt hinni kærðu ákvörðun var það mat Útlendingastofnunar að fyrir hendi væri rökstuddur grunur um að til hjúskapar kæranda og maka hennar hefði verið stofnað í þeim tilgangi að afla kæranda dvalarleyfis hér á landi. Þá hefði kærandi ekki sýnt fram á annað svo óyggjandi væri. Var kæranda því synjað um dvalarleyfi hér á landi, sbr. 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga. Má ráða af ákvörðuninni að Útlendingastofnun byggi mat sitt á eftirfarandi atriðum. Í fyrsta lagi að maki kæranda sé í nánu sambandi við konu að nafni […], þau hafi farið saman til Víetnam hinn 1. september 2019 og gengið í hjúskap, hvort um sig, með víetnömskum mökum sínum síðasta dag ferðarinnar og ferðast svo heim saman til Íslands. Í öðru lagi að samskiptasaga kæranda og maka sé afar takmörkuð og fáar myndir séu af þeim saman. Í þriðja lagi að föðurbróðir kæranda hafi millifært alls þrjár milljónir króna á maka kæranda en millifærslurnar hafi átt sér stað skömmu fyrir ferð maka til Víetnam og á meðan ferð hans stóð. Í fjórða lagi með vísan til efnis lögregluskýrslu, dags. 20. ágúst 2020. Þar kemur fram að lögregla hafi farið í […], þ.e. heimili […], vegna gruns um brot á lögum um útlendinga. Hafi […] komið til dyra og kveðist búa hjá […] af og til í þeim tilgangi að aðstoða hana með barn hennar. Hafi hann kvaðst þess á milli búa í […] ásamt kærustu sinni og aðspurður hvað kærasta hans héti hafi komið hik á […], hann hafi ekki vitað víetnamska nafnið hennar en að hann kallaði hana […], sem væri íslenska nafnið hennar. Aðspurður hafi […] sagt lögreglu að hann væri ekki í hjónabandi og aðspurður út í […] hafi hann sagt það vel geta verið að hún ætti kærasta í heimalandinu, Litháen, en vissi þó ekki til þess. Aðspurður hvort […] væri í hjónabandi hafi […] sagt það ólíklegt að svo væri án hans vitneskju þar sem þau væru nánir vinir.

Af gögnum málsins er ljóst að maki kæranda á í nánum samskiptum við […], þannig er t.d. að finna myndir af þeim á samfélagsmiðlum við ýmis tilefni í ferðalögum erlendis auk þess sem maki býr hjá henni. Það að maki og […] eigi í slíkum nánum samskiptum og hafi á sama tíma farið til Víetnam og gengið í hjúskap síðasta dag ferðarinnar með aðilum sem síðar lögðu bæði fram dvalarleyfis- og dvalarskírteinisumsóknir hjá Útlendingastofnun er þess eðlis að vekja upp rökstuddan grun í skilningi 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga. Framlagðar myndir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun eru fáar og virðast teknar við sömu tilefni. Þá eru framlögð gögn um samskipti á milli kæranda og maka af skornum skammti og ekki í samræmi við staðhæfingar í dvalarleyfisumsókn um að þau séu í samskiptum á samfélagsmiðlum nokkrum sinnum í viku. Hefur slíkt ótvírætt gildi í málinu enda höfðu kærandi og maki ekki hist fyrr en í september 2019 þegar maki og […] fóru til Víetnam. Þá hefur kærunefnd farið yfir endurrit af viðtali maka kæranda hjá Útlendingastofnun, dags. 22. október 2020. Að mati kærunefndar eru svör maka í viðtalinu að miklu leyti yfirborðskennd, s.s. lýsingar á kæranda og fjölskyldu hennar.

Eins og að framan greinir er í lögskýringargögnum með ákvæði 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga m.a. vísað til þess að það hvort grunur sé um að ábyrgðaraðili, þ.e. maki eða annar nátengdur málinu, hafi fengið verulegar fjárhæðir sem gætu tengst málinu geti vakið rökstuddan grun um að til hjúskapar hafi verið stofnað í þeim tilgangi að afla dvalarleyfis. Í greinargerð byggir kærandi á því að umræddar fjárhæðir geti ekki talist „háar“ eða „umtalsverðar“ í nokkrum skilningi. Byggt er á því að þær nemi 2.000.000 kr. Í gögnum málsins er hins vegar að finna millifærslur frá […] á maka kæranda en […] er frændi kæranda, samanlagt að fjárhæð 3.000.000 kr., sbr. millifærslur þann 26. júní 2019 að fjárhæð 100.000 kr., þann 8. ágúst 2019 að fjárhæð 1.900.000 kr. og þann 2. september 2019 að fjárhæð 1.000.000 kr. Þá gaf maki kæranda þær skýringar í viðtali hjá Útlendingastofnun að […] hafi aðstoðað hann fjárhagslega, hann myndi hjálpa […] að smíða pallinn hans til að byrja með en hann geti ekki borgað honum strax. Kærunefnd fellst ekki á framangreindar skýringar. Að mati kærunefndar er um háa fjárhæð að ræða auk þess sem fjárhæðin stafar frá einstaklingi sem er nátengdur kæranda og umræddar millifærslur voru skömmu fyrir og eftir að maki kæranda fór til Víetnam og gekk í hjúskap þar með kæranda. Verður annað vart ályktað en að fjárhæðirnar tengist með beinum hætti hjúskap kæranda og maka.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það mat kærunefndar að fyrir hendi sé rökstuddur grunur um að til hjúskaparins hafi verið stofnað í þeim tilgangi að afla dvalarleyfis, sbr. 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga. Þá hefur að mati nefndarinnar ekki verið sýnt fram á svo óyggjandi sé að til hjúskaparins hafi verið stofnað í öðrum tilgangi en að afla dvalarleyfis. Samkvæmt framansögðu veitir hjúskapur kæranda og maka hennar því ekki rétt til dvalarleyfis vegna fjölskyldusameiningar, sbr. 69. og 70. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun því staðfest.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að þegar 8. mgr. 70. gr. laga um útlendinga á við eru ekki vægari úrræði tiltæk en synjun á umsókn um dvalarleyfi. Þá er ljóst að Útlendingastofnun hefur víðtækar heimildir til gagnaöflunar á grundvelli 2. mgr. 52. gr. laga um útlendinga og 10. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Þá ber stofnuninni skylda til að sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, en í því felst m.a. að stofnunin geti kallað eftir frekari gögnum, s.s. afritum af samskiptasögu. Á það sérstaklega við þegar grunur vaknar um að ákvæði 8. mgr. 70. gr. kunni að eiga við í máli umsækjanda um dvalarleyfi. Gerir kærunefnd því ekki athugasemd við gagnaöflun Útlendingastofnunar í málinu. Þá hefur kærunefnd endurskoðað ákvörðun Útlendingastofnunar og komist að sömu niðurstöðu. Að öðru leyti telur kærunefnd ekki tilefni til umfjöllunar um þau rök sem kærandi hefur fært fram við meðferð málsins hjá nefndinni.

 

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                                             Sandra Hlíf Ocares


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum