Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 2/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 5. janúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 2/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU22100078

Kæra […]

og barna hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 22. október 2022 kærði […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir nefnd kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 10. október 2022, um að synja kæranda og börnum hennar, […], fd. […], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir A) og […], fd. […], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir B), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að henni og börnum hennar verði veitt staða flóttamanna hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að henni og börnum hennar verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að henni og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka mál hennar og barna hennar til nýrrar meðferðar.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi kom hingað til lands 4. desember 2021 frá Ítalíu hvar hún hafði hlotið alþjóðlega vernd og dvalist allt frá árinu 2005. Kærandi sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Kærandi og börn hennar eru með ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu. Hinn 8. júní 2022 ákvað Útlendingastofnun að taka mál kæranda og barna hennar til efnislegrar meðferðar með vísan til einstaklingsbundinna aðstæðna þeirra. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. 22. mars 2022 og 25. júlí 2022 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 10. október 2022, synjaði Útlendingastofnun kæranda og börnum hennar um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála 22. október 2022. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 7. nóvember 2022. Viðbótarupplýsingar og gögn bárust kærunefnd frá kæranda 14., 17. og 19. desember 2022.

III.    Ákvarðanir Útlendingastofnunar                                                       

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kemur fram að hún byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna ofsókna af hálfu glæpahópsins […] og vegna bágrar efnahagslegrar stöðu sinnar í landinu.

Niðurstaða ákvarðana Útlendingastofnunar var sú að kærandi og börn hennar væru ekki flóttamenn og að þeim skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda og börnum hennar var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barna kæranda, kom fram að þau væri svo ung að árum að ekki yrði talið tilefni til að taka viðtal við þau. Fram kom að umsóknir barna kæranda væru grundvallaðar á framburði móður þeirra og henni hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun í máli móður hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnanna og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli móður þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að börnum kæranda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja móður sinni til heimaríkis.

Kæranda og börnum hennar var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra myndi fresta réttaráhrifum ákvarðanna, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.    Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda koma fram ýmsar athugasemdir við ákvarðarnir Útlendingastofnunar, einkum varðandi mat stofnunarinnar á þörf kæranda og barna hennar fyrir dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Fram kemur að B sé greindur með einhverfu á háu stigi og hafi miklar sérþarfir. Ekki hafi verið fjallað um möguleika hans á stuðningi í heimaríki vegna þess. Þá fái kærandi ekki séð að Útlendingastofnun hafi látið þýða eða rannsaka þau gögn sem legið hafi fyrir um einhverfu B. Einhverfa B og sérþarfir hans muni gera kæranda sérstaklega erfitt fyrir, sér í lagi þar sem hún standi frammi fyrir fátækt, skorti á stuðningi og ofbeldisógn í Nígeríu. Þá hafi A verið beitt kynferðisofbeldi af hálfu föður síns. Gera megi ráð fyrir að A muni þarfnast einhvers konar meðferðar hér á landi, auk þess sem mál hennar sé til rannsóknar hjá íslenskum yfirvöldum. Faðir hennar muni ekki eiga í vandræðum með að finna kæranda í heimaríki og ekki verði hægt að útiloka frekara ofbeldi gegn A. Þá hafi kærandi sannað að hún hafi sjálf verið beitt miklu ofbeldi af barnsföður sínum til langs tíma á Ítalíu. Þrátt fyrir að lögregla hafi sinnt máli hennar á Ítalíu sé ljóst að yfirvöld hafi ekki getað verndað hana fyrir ofbeldi af hálfu barnsföður hennar. Með sama hætti geti barnsfaðir kæranda valdið henni skaða í Nígeríu þar sem lögregluvernd þar sé mun takmarkaðri og verri en á Ítalíu.

Þá hafi Útlendingastofnun talið ferð kæranda til Nígeríu árið 2018 draga úr trúverðugleika frásagnar hennar um að hún búi við ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki sínu. Kærandi mótmælir því mati Útlendingastofnunar. Hún hafi farið til Nígeríu vegna veikinda móður sinnar og aldrei hafi komið til greina að hún settist þar að. Enn fremur liggi fyrir að á þessum tíma hafi kærandi ennþá verið í sambandi með barnsföður sínum og hafi alvarlegustu brotin átt sér stað eftir heimsókn hennar til Nígeríu. Hótanir af hálfu barnsföður kæranda og annarra meðlima glæpasamtakanna […] hafi einnig átt sér stað eftir þann tíma. Þá hafi Útlendingastofnun talið mögulegt að kærandi og börn hennar gætu snúið aftur til Ítalíu þar sem þau væru með ótímabundið dvalarleyfi. Kærandi mótmæli því mati og telur ljóst að hún og börn hennar standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að verða fyrir frekara ofbeldi af hálfu barnsföður hennar á Ítalíu. Þá hafi Útlendingastofnun ekki fjallað um aðstoð við börn sem séu þolendur kynferðisofbeldis líkt og A sé. Ekki verði séð að það hafi verið rannsakað af stofnuninni. Kærandi hafi greint frá því að njóta ekki stuðnings ættingja í Nígeríu enda búi þeir við sárafátækt, en ljóst sé að hún þarfnist mikils sérhæfðs stuðnings vegna einhverfu B.

Kærandi krefst þess aðallega að henni og börnum hennar verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Hún eigi á hættu ofsóknir í Nígeríu vegna aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi í Nígeríu, n.t.t. vegna kyns síns, vegna þess að hún sé þolandi mansals og vegna ótta hennar við glæpasamtökin […]. Fram kemur í greinargerð að nígerískar konur hafi verið taldar mynda sérstakan þjóðfélagshóp, enda verði þær fyrir margs konar mismunun í þjóðfélaginu. Vísar kærandi m.a. til skýrslna alþjóðlegra stofnana og mannréttindasamtaka máli sínu til stuðnings. Kærandi sé þolandi ítrekaðs kynferðisofbeldis, grófs heimilisofbeldis og mansals, auk þess sem hún hafi sætt kynfæralimlestingu sem barn. Samkvæmt heimildum muni kærandi standa frammi fyrir mismunun, hættu á ofbeldi og endurteknu mansali snúi hún aftur til Nígeríu. Í þessu samhengi bendir kærandi á úrskurð kærunefndar útlendingamála nr. 229/2020 frá 25. júní 2020 þar sem fjallað hafi verið um atriði sem líta skuli til við mat á því hvort konur hafi almennt ástæðuríkan ótta við að vera þvingaðar í endurtekið mansal. Meðal þeirra atriða sem líta beri til við matið sé hvort fjölskylda konunnar hafi tekið þátt í smyglinu, hversu mikið smyglarinn viti um bakgrunn konunnar og hvort konan hafi borið vitni gegn smyglaranum. Ljóst sé að barnsfaðir kæranda hafi verið þátttakandi í smygli kæranda og viti allt um bakgrunn hennar, auk þess sem hún hafi ítrekað tilkynnt ofbeldi af hans hálfu til lögreglu.

Auk framangreinds hafi kærandi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu glæpasamtakanna […]. Barnsfaðir kæranda sé meðlimur í samtökunum. Hann hafi ofsótt kæranda og beitt hana hrottalegu heimilisofbeldi á Ítalíu. Hann viti allt um kæranda og fjölskyldu hennar í Nígeríu og telja megi að hann sé í aðstöðu til að valda henni skaða þar. Auk þess að hafa beitt hana ofbeldi hafi hann haft í hótunum við hana í kjölfar þess að lögregla hafi lagt fram ákæru á hendur honum vegna ofbeldisins. Þá hafi kærandi jafnframt sætt hótunum, ofbeldi og ítrekuðum nauðgunum af hálfu annarra meðlima samtakanna á Ítalíu. Kæranda hafi jafnframt verið hótað lífláti eftir að ákæra hafi verið gefin út á hendur barnsföður hennar. Fram kemur að glæpasamtökin […] séu samkvæmt skýrslu EASO á meðal þekktustu svokallaðra bræðralaga sem eigi uppruna sinn í Nígeríu. Starf þeirra einkennist af glæpastarfsemi á borð við morð, mansal, fíkniefnasölu, mannrán o.fl. Telur kærandi að með trúverðugum framburði hennar og framlögðum gögnum um ofbeldi barnsföður hennar hafi hún sannað upp að hæfilegu marki að hún hafi ástæðuríkan ótta við […] í Nígeríu. Telur kærandi að ofsóknaraðilar hennar séu bæði nígerísk yfirvöld, þar sem þau séu þátttakandi í þeirri mismunun sem konur standi frammi fyrir í Nígeríu, og glæpasamtökin […], sbr. a- og c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að henni og börnum hennar verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis.

Til þrautavara krefst kærandi þess að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu slíks dvalarleyfis þegar útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Kærandi vísar m.a. til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga. Þar komi fram að með erfiðum félagslegum aðstæðum sé átt við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki. Sérstaklega sé tekið sem dæmi aðstæður kvenna sem hafi sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt geti til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki felli sig við kynhlutverk sem sé hefðbundið í heimaríki þeirra og eigi því á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Þá komi til greina að minni kröfur séu gerðar til barna við mat á 74. gr. laga um útlendinga. Í greinargerð kæranda kemur fram að framangreint dæmi úr frumvarpi laga um útlendinga lýsi stöðu kæranda vel enda sé hún þolandi kynferðislegs ofbeldis, heimilisofbeldis, mansals og vændis. Jafnframt hafi kærandi sætt kynfæralimlestingu sem barn. Kærandi sé lítið menntuð, sárafátæk og með veikt stuðningsnet. Hún geti því ekki séð fyrir sér og börnum sínum í heimaríki. Þá takmarki sérþarfir B verulega þann möguleika kæranda á að geta unnið. Staða kvenna í Nígeríu sé almennt erfið og séu einstæðar mæður sérstaklega útsettar fyrir mismunun og útskúfun. Jafnframt sé þekkt að þolendur mansals standi frammi fyrir sérstaklega erfiðum félagslegum aðstæðum. Enn fremur búi kærandi og börn hennar við raunverulega ofbeldisógn í Nígeríu af hálfu barnsföður kæranda.

Auk framangreinds liggi fyrir að sonur kæranda, B, sé greindur með einhverfu á háu stigi og hafi miklar sérþarfir. Kærandi hafi eins greint frá verkjum í fæti, hnjám og augum og hafi hún þurft að fá aðhlynningu á sjúkrahúsi á Ítalíu vegna áverka af völdum alvarlegra líkamsárása af hálfu barnsföður síns. Hann hafi t.a.m. veist að kæranda er hún hafi verið ólétt af tvíburum árið 2017 og hafi hún misst bæði fóstrin vegna árásarinnar. Jafnframt þjáist kærandi af svima þegar hún leggist niður sem rekja megi til þess að barnsfaðir hennar hafi sparkað í höfuð hennar. Hvað andlega heilsu kæranda varði þá sé hún hrædd, sérstaklega á nóttunni, og eigi erfitt með svefn. Einnig sé andleg heilsa hennar slæm vegna allra þeirra áfalla sem hún hafi upplifað. Kærandi hafi greint frá því að börn hennar hafi einnig upplifað ofbeldi af hálfu föður síns og eins hafi hann beitt hana ofbeldi fyrir framan börnin. Þá hafi A verið misnotuð kynferðislega af föður sínum og beri hún áverka eftir misnotkunina. Við beitingu 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga beri að taka sérstakt tillit til barna. Eins skuli það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi, sbr. 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Börn í Nígeríu búi almennt við mjög erfiðar aðstæður. Börn kæranda hafi aldrei komið til Nígeríu og öryggi þeirra, velferð og þroska yrði stefnt í hættu yrðu þau send þangað. Auk þess væri framfærsla þeirra afar ótrygg. Móðir barnanna, sem sé illa stödd andlega, lítið menntuð, fátæk og hafi lítið sem ekkert bakland, gæti ekki séð börnunum fyrir heimili eða mat í Nígeríu.

Fallist kærunefnd ekki á að veita kæranda alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða krefst kærandi þess til þrautaþrautavara að kærunefnd feli Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til nýrrar meðferðar. Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað þær aðstæður sem bíði kæranda og syni hennar, B, í Nígeríu, með tilliti til þess að hann glími við einhverfu á háu stigi. Jafnframt virðist sem stofnunin hafi ekki látið þýða fyrirliggjandi gögn varðandi einhverfu hans eða rannsakað þau á annan hátt. Þá hafi ekki verið fjallað um stöðu einhverfra og aðstandanda þeirra í Nígeríu. Telur kærandi það, ásamt öðrum skorti á rannsókn af hálfu Útlendingastofnunar, fela í sér brot gegn 10. gr. stjórnsýslulaga.


 

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kemur fram að til að sanna á sér deili hafi hún framvísað nígerískum vegabréfum fyrir sig og börn sín, auk ítalskra dvalarleyfiskorta. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi og börn hennar séu nígerískir ríkisborgarar.

Réttarstaða barna kæranda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.


 

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 16 Facts About Violence Against Women and Girls in Nigeria (UNICEF, 22. nóvember 2022);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2021 Report on International Religious Freedom: Nigeria (U.S. Department of State, 2. júní 2022);
  • Actors of Protection - Nigeria (EUAA, nóvember 2018);
  • Amnesty International Report 2021/22 – Nigeria (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • […]: Leaked documents shine spotlight on secretive Nigerian gang (https://www.bbc.com/news/world-africa-59630424, 13. desember 2021);
  • Country Information Note – Nigeria: Medical treatment and healthcare (U.K. Home Office, desember 2021);
  • Country of Origin report – Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs, 22. júní 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, október 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, apríl 2022);

  • Country Policy and Information Note: Nigeria: Women fearing gender-based harm or violence (UK Home Office, ágúst 2016);
  • DFAT Country Information Report – Nigeria (Australian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
  • EASO COI Meeting Report: Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 – Rome (European Asylum Support Office, 22. ágúst 2017);
  • Country Guidance: Nigeria; Common analysis and guidance note (EUAA, 19. október 2021);
  • Explanatory Models of Autism in Nigeria: Exploring Sociocultural Beliefs to Inform Systems of Care (Honors Theses, 2021);
  • Freedom in the World 2022 – Nigeria (Freedom House, 24. febrúar 2022);

  • Health care in Nigeria, Challenges and recommendations (https://socialprotection.org/discover/blog/health-care-nigeria-challenges-and-recommendations, 7. febrúar 2019);
  • Information on trafficking including situation for returness of previous trafficking and risk og re-trafficking (Refugee Documentation Centre, RDC, Legal Aid Board, 17. júní 2019);
  • International crackdown on West-African financial crime rings (https://www.interpol.int/en/News-and-Events/News/2022/International-crackdown-on-West-African-financial-crime-rings, 14. október 2022);
  • Italian police arrest alleged Black Axe Nigerian mafia members over trafficking (https://www.theguardian.com/global-development/2022/jan/19/italian-police-arrest-alleged-black-axe-nigerian-mafia-members-over-trafficking);
  • Key socio-economic indicators (EUAA, nóvember 2018);
  • Medical Country of Origin Information Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022);
  • Nigeria: Children and Young People with Disabilities (Asylos, Asylum Research Centre, október 2021);
  • Nigeria – Country Focus (EUAA, júní 2017);
  • Nigeria: Denials and cover up mark 100 days since Lekki shooting (https://www.amnesty.org/en/latest/news/2021/01/nigeria-denials-and-cover-up-mark-100-days-since-lekki-shooting/, 28. janúar 2021);

  • Nigeria: Delstaten Edo – det nigerianska navet för migration och mannskohandel (1.0) (Migrationsverket, 16. desember 2019);
  • Nigeria Police Effectiveness (Ireland - Refugee Documentation Centre (RDC), 9. september 2019);
  • Nigeria – Security situation (EUAA, júní 2021);

  • Nigeria – Trafficking and re-trafficking (Ireland – Refugee Documentaion Centre (RDC)), 16. júní 2019);
  • Nigeria: Whether women who head their own household, without male or family support, can obtain housing and employment in Abuja, Lagos, Ibadan and Port Harcourt; government support services available to female-headed households (2017-November 2019) (Immigration and Refugee Board of Canada, 29. nóvember 2019);
  • Ninth Report on Violence in Nigeria (Nigeria Watch, 2019);
  • Nigeria. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organisation for Economic Co-operation and Development (OECD), 7. desember 2018);
  • Nigeria: The Black Axe confraternity, also known as the Neo-Black Movement of Africa, including their rituals, oahts of secrecy, and use of symbols or particular signs; whether they use force to recruit individuals (2009-November 2012) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. desember 2012);
  • Prevalence and management of child sexual abuse cases presented at Nigerian hospitals: A systematic review (Journal of Health and Social Sciences, janúar 2018);

  • Stakeholders canvass support strategies for Autism Spectrum Disorder (https://guardian.ng/news/stakeholders-canvass-support-strategies-for-autism-spectrum-disorder/, 5. ágúst 2021);
  • Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ng/ng014en.pdf);
  • Taking Action and Finding Safe Spaces: Supporting Child Survivors of Sexual Abuse (https://nigeriahealthwatch.com/taking-action-and-finding-safe-spaces-supporting-child-survivors-of-sexual-abuse/, 28. júlí 2021);
  • Targeting of individuals - Nigeria (EUAA, nóvember 2018);

  • The Law and FGM (28 Too Many, júní 2018);
  • The ultra-violent cult that became a global mafia (https://www.bbc.com/news/world-africa-59614595, 13. desember 2021);
  • The World Factbook - Nigeria (CIA, uppfært 21. desember 2022) og
  • World Report 2022 – Nigeria (Human Rights Watch, 13. janúar 2022).

Nígería er sambandslýðveldi með um 225 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2022 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2018 eru nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá sé talið að allt að 80% lögreglumanna einblíni á að veita efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu, auk þess sem þjálfun á lögreglumönnum sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar, t.d. mannréttindanefndin NHRC. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 að yfirvöld í Nígeríu hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa meðlimum lögreglu- og öryggissveita sem ásakaðir hafi verið um brot. Þó hafi refsileysi og spilling verið áframhaldandi vandamál.

Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021, að töluverð spilling sé innan dómskerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2021 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu hafi yfirvöld almennt getu og vilja til að veita vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Commission (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmannsins í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigeria Police Council) og framkvæmdastjórn lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar. Í skýrslu Amnesty International fyrir árið 2021 kemur fram að í Lagos hafi sérstakt viðbragðsteymi gegn heimilis- og kynferðisofbeldi verið gert að sérstakri stofnun til þess að efla baráttu í fylkinu gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Stofnunin (e. Domestic and Sexual Violence Agency (DSVA)) fari með rannsókn, eftirlit og stuðning vegna mála er lúta að ofbeldi.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá júní 2021 er öryggisástand landsins hvað verst í norðurhluta Nígeríu þar sem hryðjuverkahópurinn Boko Haram ber ábyrgð á morðum mörg þúsund íbúa. Öryggisástand í norðurhluta og norðausturhluta Nígeríu hafi farið versnandi á árunum 2019 og 2020 og yfirvöld á viðkomandi svæðum geti einungis veitt takmarkaða vernd. Átök og árásir af hálfu hryðjuverkahópa hafi jafnframt farið að gera vart við sig í norðvesturhluta Nígeríu frá árinu 2019. Helstu átök í suðurhluta Nígeríu megi rekja til ágreinings í tengslum við olíuauðlindir á svæðinu. Samkvæmt skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2021 hafa öryggissveitir Nígeríu sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki tekist að útrýma hættunni sem stafi af Boko Haram, en talið sé að til þess þurfi öryggissveitir landsins meiri mannafla, vopn, þjálfun og fjármagn. Yfirvöld hafi þó gripið til ýmissa aðgerða í þeim tilgangi að útrýma hryðjuverkahópum, þ. á m. Boko Haram, en með takmökuðum árangri.

Samkvæmt framangreindum gögnum, þ. á m. skýrslum breska innanríkisráðuneytisins og EASO frá 2019, er umskurður á konum og stúlkubörnum útbreiddur í Nígeríu en talið sé að um 10% umskurða í Afríku eigi sér stað í Nígeríu. Algengast sé að stúlkur yngri en fimm ára séu þolendur umskurða. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-25%. Eftir 15 ára aldur minnki líkurnar á því að þær verði þolendur umskurða. Samkvæmt nígerískum alríkislögum er umskurður á konum og stúlkum þó refsiverður verknaður. Lögin gildi hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en 13 fylki í Nígeríu hafi samþykkt svipuð lög sem leggi bann við verknaðinum, m.a. Edo-fylki þar sem kærandi hafði búsetu. Þá mæli lög fyrir um a.m.k. þriggja ára fangelsisvist, sekt sem samsvari rúmlega 8 þúsund bandaríkjadollurum eða hvoru tveggja ef fólk framkvæmir umskurð á konum eða stúlkum. Fram kemur að í sumum tilvikum álíti lögreglan í Nígeríu umskurð kvenna vera einkamál fjölskyldunnar og í öðrum tilfellum styðji lögreglufulltrúar jafnvel aðgerðina. Aftur á móti hafi lögregluyfirvöld í Nígeríu hafið samstarf bæði með stjórnvöldum og frjálsum félagasamtökum við að bæta viðhorf og viðbrögð lögreglu við umskurði kvenna og öðrum hættulegum hefðum. Meðal annars hafi verið stofnuð sérstök deild innan lögreglunnar sem rannsaki kynbundið ofbeldi, komið hafi verið á fót athvörfum fyrir konur, auk þess sem gerendur hafi verið ákærðir. Þá séu flestir íbúar Nígeríu andsnúnir umskurði á konum og stúlkum og hafi m.a. ýmsir leiðtogar í Nígeríu hvatt til afnáms á hefðinni. Komið hafi verið á fót aðgerðaráætlun, The National Policy and Plan of Action for the Elimination of FGM in Nigeria (2013-2017), með það að markmiði að afnema umskurð kvenna en aðgerðirnar hafi m.a. falið í sér fræðslu innan heilbrigðisstofnana, stjórnvalda, skóla, mismunandi samfélaga og víðar um bann gegn umskurði. Þá geti konur leitað til lögreglu, umboðsmanns, kirkna eða moska, frjálsra félagasamtaka og athvarfa eigi þær á hættu umskurð. Þá sé afnám umskurðar kvenna eitt af markmiðum 2030 Agenda for Sustainable Development sem samþykkt var árið 2015. Þrátt fyrir framfarir sé erfitt að afnema umskurð kvenna og stúlkna í Nígeríu, m.a. vegna þess að verknaðurinn sé enn löglegur í sumum fylkjum, skortur sé á fræðslu meðal íbúa og á eftirliti með framkvæmd laganna. Fram kemur að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra en ömmur og afar stúlknanna, ásamt elstu konunni í ætt fjölskyldu föður stúlkunnar, geti einnig haft áhrif á þá ákvörðun. Þó sé mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra hennar og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis.

Þá kemur fram í framangreindum gögnum að Nígería hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991 og stofnskrá Afríkusambandsins um velferð og réttindi barnsins (e. The African Charter on the Rights and Welfare of the Child) árið 2000. Hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt árið 2003 lög um réttindi barnsins (e. The Child Rights Act) og tóku þau gildi sama ár. Þar sem Nígería sé sambandslýðveldi sé ekki nóg að þjóðþingið lögfesti reglurnar heldur þurfi bæði fylkisþing og landstjóri hvers fylkis einnig að færa regluverkið í fylkislöggjöf svo löggjöfin taki gildi í hverju fylki. Árið 2016 hafi 24 af 36 fylkjum tekið lögin í gildi og séu flest þeirra í suðurhluta Nígeríu m.a. Edo fylki. Lögin kveði á um að allar ákvarðanir eða ráðstafanir er varða börn skuli byggðar á því sem sé barninu fyrir bestu. Í lögunum komi einnig fram að öll börn eigi rétt á að njóta menntunar. Árið 2004 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt löggjöf sem kveði á um ókeypis grunnskólagöngu (e. The Universal Basic Education (UBE) Programme). Hafi þessi nýjung verið leidd í lög með því markmiði að fjölga nemendum í grunnskóla og koma á fót ókeypis og skyldubundnu skólakerfi fyrir öll börn í Nígeríu.

Samkvæmt skýrslu UNICEF frá 2022 sætir ein af hverjum fjórum stúlkum í Nígeríu kynferðisofbeldi. Talið sé að tæplega eitt prósent gerenda kynferðisbrota, sem tilkynntir séu til lögreglu, endi á að verða leiddir fyrir dóm og nánast engin mál endi með sakfellingu þeirra. Þolendur treysti margir hverjir ekki réttarkerfinu í Nígeríu og tilkynni því ekki brotin. Algengara sé að málin séu leyst utan réttarkerfisins. Ástæðu þess megi m.a. rekja til þekkingarskorts þolenda á lögunum og réttindum sínum, auk þess sem samfélagsleg viðhorf réttlæti misnotkun, ofbeldi og skömm þolenda. Slíkt leiði til refsileysis gerenda. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Nigeria Health Watch skorti sálfræðinga og annað fagfólk til að styðja við börn sem séu þolendur kynferðisofbeldis í Nígeríu.

Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna sem gefin var út í mars 2022 kemur fram að þótt konur og karlar njóti sömu réttinda samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu sé raunin ekki alltaf sú og ógiftar konur eigi sérstaklega undir högg að sækja. Konur verði fyrir margskonar mismunun þegar komi að efnahagslegum réttindum, en til að mynda tryggi lög konum ekki jöfn laun og körlum fyrir sambærileg störf. Auk þess sé mismunun byggð á kyni ekki óheimil við ráðningu í störf. Þá sé venjan sú að konur geti ekki eignast land nema í gegnum eiginmann sinn eða fjölskyldu. Venjan sé jafnframt sú í mörgum tilfellum að konur erfi ekki eiginmenn sína og sitji þá uppi allslausar við fráfall þeirra. Þá sé kynbundið ofbeldi gagnvart konum útbreitt vandamál í Nígeríu og séu ógiftar konur enn líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi. Það sé engin alhliða löggjöf sem verndi konur gegn kynbundnu ofbeldi í Nígeríu en einhver fylki, aðallega í suðurhluta Nígeríu, séu með löggjöf sem eigi að veita vernd gegn tilteknu kynbundnu ofbeldi. Heimilisofbeldi í landinu sé útbreitt vandamál og í sumum ríkjum sé það félagslega samþykkt. Þá tíðkist einnig afskiptaleysi meðal lögreglunnar í slíkum málum.

Í skýrslu flóttamannastofnunar Kanada kemur fram að mikið sé um leynileg glæpasamtök og bræðralög í Nígeríu. Algengt sé að slík samtök starfi innan háskóla en þau stundi einnig umfangsmikla glæpastarfsemi fyrir utan háskólasvæðin. Samtökin séu þekktust fyrir ógnandi hegðun og ofbeldi gagnvart nemendum, kennurum, lögreglu og öðrum samtökum. Dæmi séu jafnvel um að stjórnmálamenn ráði slík samtök til þess að beita andstæðinga sína ofbeldi. Eitt alræmdasta bræðralagið séu samtökin […] og sé meginmarkmið samtakanna skipulögð glæpastarfsemi. Bera heimildir með sér að starfsemi þeirra nái til Ítalíu og víðar um Evrópu. Fram kemur að samtök og bræðralög sem þessi séu bönnuð samkvæmt stjórnarskránni. Þá hafi þau einnig verið bönnuð með lögum sem samþykkt hafi verið árið 2004, Secret Cult and Cult Related Activities (Prohibition) Bill. Talið sé að ef aðilar neiti að ganga í slík samtök eða reyni að ganga úr þeim þá geti þeir orðið fyrir ofbeldi.  Heimildir bera þá með sér að lögregla ákæri fyrir glæpi sem framdir séu af hópum og samtökum líkt og fyrir hvern annan glæp. Lögregluyfirvöld hafi í fjölda tilfella handtekið einstaklinga sem séu tengdir slíkum samtökum. Samkvæmt fréttagrein BBC hafa samtökin þó eflst undanfarin ár og bendi tveggja ára rannsókn fréttamiðilsins til þess að […] séu orðin ein af dreifðustu og hættulegustu skipulögðu glæpasamtökum heims í dag. Rannsóknin hafi m.a. leitt í ljós að samtökin hafi tengsl við aðila innan stjórnvalda í Nígeríu.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2020 og skýrslu EUAA frá apríl 2022 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum sveitarfélaga, annað stig sé starfrækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins feli í sér almenna heilbrigðisþjónustu, m.a. mæðra- og ungbarnavernd, fyrir borgara Nígeríu og fái jafnframt minnsta fjármagnið af stigunum þremur. Því sé almenn heilbrigðisþjónusta almennt illa skiplögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.

Samkvæmt skýrslu Asylos frá 2021 er einhverfa oft litin neikvæðum augum af hálfu samfélagsins í Nígeríu og séu einstaklingar sem greindir séu með einhverfu stundum álitnir heimskir eða geðveikir. Foreldrar einhverfra barna upplifi oft skömm og telji einhverfuna skaða orðspor fjölskyldunnar og ættlegg hennar. Börn með einhverfu eigi jafnvel á hættu að vera sökuð um galdra sem leitt geti m.a. til þess að þau sæti ofbeldi, pyndingum, morði eða verði yfirgefin af fjölskyldu sinni. Foreldrar barna með einhverfu glími jafnframt oft við fjárhagsörðugleika þar sem meðferð á vegum hins opinbera sé ófullnægjandi og þau neyðist til að leita til einkarekinna stofnana sem séu mun dýrari. Jafnframt sé erfitt fyrir börn með einhverfu að fá greiningu sökum þekkingarskorts meðal heilbrigðisstarfsfólks. Foreldrar endi oftast á því að leita aðstoðar hjá trúarlegum stofnunum eða skólum. Ólíklegt sé að slík aðstoð styðjist við vísindi og séu dæmi um að börn hljóti skaða af eða láti lífið í slíkri meðferð.

Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningastofnunin (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Nígeríu. Fólksflutningastofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína á því að hún eigi á hættu ofsóknir í Nígeríu sem rekja megi til glæpasamtakanna […] og aðildar hennar að tilteknum þjóðfélagshópi í Nígeríu sem kona og þolandi mansals. Kærandi sé auk þess þolandi ítrekaðs kynferðisofbeldis, m.a. af hálfu meðlima […], og heimilisofbeldis af hálfu barnsföður síns sem hún kveður að sé meðlimur glæpasamtakanna. Barnsfaðir kæranda hafi jafnframt beitt dóttur kæranda kynferðisofbeldi. Þá sé kærandi þolandi kynfæralimlestinga.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hún óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í Nígeríu sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu.

Kærandi greindi frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að barnsfaðir hennar og fyrrum eiginmaður væri meðlimur í glæpasamtökunum […]. Kvað hún þau hafa kynnst í heimaþorpi þeirra beggja, […] í Nígeríu, þegar hún hafi verið sautján ára gömul og að hann hafi sannfært hana um að fara með sér til Ítalíu til að starfa sem barnfóstra fyrir systur hans þar í landi. Kærandi hafi fallist á að fara með honum til Ítalíu þegar hún hafi verið orðin tvítug. Þegar hún hafi komið til Ítalíu hafi barnsfaðir hennar þvingað hana í vændi og hirt peninginn sem hún hafi fengið. Hann hafi einnig beitt hana grófu líkamlegu ofbeldi og kynferðisofbeldi. Kærandi greindi frá því að hinn 20. apríl 2020 hafi hann beitt hana svo alvarlegu ofbeldi að hún hafi næstum því dáið. Kvað hún nágranna líklegast hafa hringt á lögreglu sem hafi mætt á staðinn og komið henni undir læknishendur og handtekið barnsföður hennar. Lagði kærandi m.a. fram ljósmyndir af líkamlegum áverkum, heilsufarsgögn og ljósmyndir af ákæru gagnvart barnsföður kæranda, útgefinni af ítölskum yfirvöldum vegna heimilisofbeldis gagnvart henni. Barnsfaðir kæranda hafi reiðst í kjölfar ákærunnar og setið um hana og börn þeirra og hótað kæranda lífláti. Kvað kærandi aðra meðlimi […] einnig hafa margsinnis beitt sig kynferðisofbeldi. Kærandi kvaðst ekki vita með nákvæmum hætti hvernig barnsfaðir hennar tengdist glæpasamtökunum en kvaðst halda að hann væri einhvers konar leiðtogi þar sem meðlimir samtakanna hafi horft upp til hans og kallað hann „[…]“. Kærandi hafi fengið símtöl frá öðrum meðlimum samtakanna sem hafi sagt henni að fella niður kæruna gagnvart barnsföður hennar. Þeir hafi hótað að hrinda kæranda fram af svölum og sagt henni að lögreglan myndi álíta sem svo að um sjálfsvíg væri að ræða. Þá hafi meðlimir glæpasamtakanna myrt bróður kæranda, rænt öðrum bróður hennar og haft í hótunum við móður hennar sem hafi flúið úr heimaþorpi sínu af þeim sökum.

Kærunefnd sendi kæranda tölvubréf, dags. 7. desember 2022, þar sem nefndin óskaði m.a. eftir gögnum sem styddu frásögn hennar um að barnsfaðir hennar væri meðlimur í […] og að hún hafi sætt hótunum og áreiti af hálfu meðlima samtakanna, svo sem skjáskotum af hótunum, upplýsingum um nöfn meðlima eða ljósmyndum. Einnig óskaði nefndin eftir gögnum sem styddu frásögn kæranda um að bróðir hennar hafi verið myrtur í Nígeríu af mönnum á vegum barnsföður kæranda, svo sem dánarvottorð, lögregluskýrslur eða fréttagreinar. Kærandi kvaðst ekki hafa aðgang að neinum slíkum gögnum nema stuttu myndbandi af bróður sínum eftir árásina. Myndbandið, sem barst kærunefnd 19. desember 2022, sýndi mann liggja á sjúkrarúmi með mikla áverka í andliti. Í myndbandinu má heyra mann segjast hafa fundið hinn slasaða úti á götu þar sem hann hafi verið grýttur. Myndbandið hefur að mati kærunefndar takmarkað sönnunargildi í málinu þar sem ekki er sannað að hinn slasaði í myndbandinu sé bróðir kæranda og að þeir sem réðust á hann hafi verið meðlimir […]. Í ljósi almenns trúverðugleika kæranda er það þó mat kærunefndar að myndbandið renni vissum stoðum undir frásögn kæranda.

Með vísan til þess sem fram hefur komið telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi sé þolandi mansals, vændis, kynferðis- og heimilisofbeldis og kynfæralimlestinga. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem sýna fram á tengsl barnsföður hennar við glæpasamtökin […] eða að bróðir hennar hafi verið myrtur af meðlimum samtakanna. Í ljósi almenns trúverðugleika kæranda og þess stuðnings sem frásögn hennar fær í framlögðum gögnum er það þó mat kærunefndar að ekki verði útilokað að barnsfaðir kæranda hafi tengsl við […].

Fram kemur í ákvæði d-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga að þolendur mansals skuli teljast til sérstaks þjóðfélagshóps. Samkvæmt skýrslu EUAA frá október 2021 geta þolendur mansals átt á hættu athafnir sem eru af slíku alvarleikastigi að þær jafngildi ofsóknum, t.d. ofbeldi eða endurtekið mansal. Ekki séu allir þolendur mansals taldir standa frammi fyrir slíkri hættu að þeir geti talist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir. Fram kemur að einstaklingsbundið mat þurfi að fara fram þar sem tekið sé mið af alvarleika og/eða endurtekningu athafna eða hvort um sé að ræða samsafn athafna sem talist geti til ofsókna. Við mat á því hvort líklegt sé að þolandi mansals eigi á hættu ofsóknir beri að taka tillit til ýmissa áhættuþátta, svo sem upphæðar skuldar þolanda gagnvart geranda sínum, þ.e. þeim sem standi að baki mansalinu, hvort þolandi hafi borið vitni gegn geranda sínum, valda og getu geranda, þekkingu geranda á fjölskyldu og bakgrunni þolanda, aldurs þolanda, fjölskylduaðstæðna þolanda, t.d. hvort um sé að ræða einstæða konu, félags- og efnahagslegan bakgrunn þolanda, skilning nærsamfélagsins á aðstæðum þolenda mansals, fjárhagsstöðu og menntunarstigs þolanda, aðgangs þolanda að stuðningsneti í heimaríki og þátttöku fjölskyldu þolanda í mansalinu. Ekki er fjallað um vægi hvers og eins áhættuþáttar við mat á því hvort þolandi mansals geti talist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir eða hversu margir áhættuþættir verði að vera til staðar svo að leggja megi slíkt mat til grundvallar. 

Við mat sitt á því hvort einstaklingsbundnar aðstæður kæranda nái því alvarleikastigi að teljast til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga horfir kærunefnd til þess að kærandi greindi frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að fyrrum eiginmaður hennar og barnsfaðir, ásamt systur hans, hafi staðið að baki mansalinu og vændinu. Kvaðst hún hafa kynnst barnsföður sínum þegar hún hafi verið sautján ára gömul og að þau hafi verið búsett í sama þorpi í Nígeríu. Verður eðli málsins samkvæmt að telja að barnsfaðir kæranda hafi talsverða þekkingu á bakgrunni og fjölskyldu kæranda í heimaríki. Þá horfir kærunefnd til þess að lögð hafi verið fram ákæra á hendur barnsföður kæranda á Ítalíu vegna alvarlegs ofbeldis gagnvart kæranda. Má að mati kærunefndar jafna því saman við vitnisburð í þessu samhengi. Greindi kærandi frá því að barnsfaðir hennar hafi brugðist við ákærunni með því að hóta henni lífláti og sitja um hana og börn þeirra. Telur kærunefnd, með vísan til trúverðugleika kæranda og fyrirliggjandi gagna um ofbeldi barnsföður hennar gagnvart henni, ekki ástæðu til að draga það í efa. Þá telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að A hafi verið beitt kynferðislegu ofbeldi á Ítalíu af föður sínum eða aðilum tengdum honum. Telur kærunefnd þá ljóst af fyrirliggjandi gögnum að líkur standi til þess að barnsfaðir kæranda kunni að beita hana og börn þeirra áframhaldandi alvarlegu ofbeldi hvort sem er í heimaríki þeirra, Nígeríu, eða á Ítalíu þar sem þau hafa rétt til dvalar. Þá er kærandi einstæð móðir tveggja barna, og hefur annað þeirra verið greint með einhverfu á háu stigi og hitt þolandi kynferðisofbeldis, og hefur hún greint frá því að hafa litla menntun og lítið stuðningsnet í heimaríki. Kærandi kveðst ekki vita hvar barnsfaðir hennar sé niðurkominn í dag og liggur því ekki fyrir hvort hann sé ennþá staddur á Ítalíu, í Nígeríu eða öðru landi.

Kærandi hefur greint frá því að hún telji sig ekki geta leitað verndar hjá lögreglu í heimaríki sínu. Greindi hún frá því að lögreglan aðstoðaði einungis þá sem væru efnaðir og að glæpasamtökin […] væru með tengsl við lögreglu. Sú frásögn fær vissa stoð í þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í heimaríki kæranda. Sökum þess að ekki er hægt að útiloka tengsl barnsföður kæranda við glæpasamtökin […] og þess að afskiptaleysi tíðkist hjá lögreglu í heimilisofbeldismálum í Nígeríu verður lagt til grundvallar að kæranda sé ekki kleift að leita til yfirvalda í heimaríki eftir vernd, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Þegar heildaraðstæður kæranda og barna hennar eru metnar með hliðsjón af framangreindum áhættuþáttum telur kærunefnd að kærandi hafi sýnt fram á að hún eigi á hættu ofsóknir sem rekja megi til þess að hún sé kona sem hafi sætt ítrekuðu kynbundnu ofbeldi, m.a. sem þolandi mansals, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, og að yfirvöld geti ekki veitt henni vernd. Vega þar þungt fjölskyldutengsl kæranda við geranda hennar, þ.e. barnsföður, fyrirliggjandi gögn um ofbeldishegðun hans og skortur á stuðningsneti kæranda og barna hennar í heimaríki. Uppfyllir kærandi því skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Mat á möguleika á flutningi innanlands

Þó svo að umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi sýnt fram á ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum á því landsvæði sem hann býr, er heimilt að synja umsókn um alþjóðlega vernd ef umsækjandi getur fengið raunverulega vernd í öðrum landshluta heimalands síns en hann flúði frá, viðkomandi getur ferðast þangað á öruggan og löglegan hátt og hægt er með sanngirni að ætlast til þess af viðkomandi að hann setjist að á því svæði, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga segir að niðurstaða um hvort útlendingur geti fengið raunverulega vernd í öðrum hluta heimalands skuli byggð á einstaklingsbundnu mati á persónulegum aðstæðum útlendingsins og þeim aðstæðum sem séu í því landi. Við mat á því hvort hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að útlendingur setjist að á því svæði sem talið er öruggt samkvæmt ákvæði þessu skuli tekið tillit til ýmissa þátta, svo sem aldurs, kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar sem og möguleika viðkomandi útlendings á vinnu eða menntun. Við mat samkvæmt ákvæðinu skuli m.a. höfð hliðsjón af leiðbeiningum flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Guidelines on International Protection: „Internal Flight or Relocation Alternative“ within the Context og Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees, frá 23. júlí 2003).

Í leiðbeiningunum, sem varða möguleika á flutningi innanlands þegar einstaklingur hefur flúið heimaríki af ástæðuríkum ótta við ofsóknir, er lagt til grundvallar að mat á því hvort möguleiki sé á að einstaklingur geti flust búferlum til annars svæðis í heimaríki sé tvíþætt. Annars vegar verði að kanna hvort flutningur innanlands sé raunhæft úrræði. Kemur í þessu sambandi einkum til athugunar hvort það svæði sem lagt er til að viðkomandi flytjist til sé aðgengilegt á öruggan og löglegan hátt og hvort flutningur hans þangað skapi hættu á að kærandi verði fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða. Hins vegar beri að kanna hvort viðkomandi geti, með hliðsjón af aðstæðum í heimaríki hans, lifað tiltölulega eðlilegu lífi án þess að standa frammi fyrir óþarfa erfiðleikum. Við þann þátt matsins verður m.a. að horfa til persónulegra aðstæðna viðkomandi, t.a.m. félags- og efnahagslegra aðstæðna á því svæði sem lagt er til. Í leiðbeiningunum segir m.a. um síðastnefnt atriði að það sé ósanngjarnt að ætlast til þess lífsviðurværi einstaklings verði lægra en það sem talist geti viðunandi eða að viðkomandi búi við eymd.

Almennt er ekki talið sanngjarnt að ætlast til að einstaklingur setjist að annars staðar í heimaríki sínu nema ljóst sé að hann muni njóta stuðnings fjölskyldu sinnar eða ættbálkar. Kærandi er einstæð móðir tveggja barna og hefur greint frá andlegum erfiðleikum. Þá hefur B verið greindur með einhverfu á háu stigi og hefur mikla þörf fyrir viðeigandi stuðning. Kærandi hefur greint frá því að móðir hennar hafi neyðst til að flýja áreiti og hótanir ótilgreindra aðila í heimaríki. Kærandi kvað móður sína ekki hafa átt eigið heimili heldur búið á heimili vinnuveitenda sinna. Í ljósi skorts á stuðningsneti í heimaríki kæranda og aðstæðna barna hennar er það mat kærunefndar að ekki sé raunhæft eða sanngjarnt að ætlast til þess af kæranda að hún og börn hennar setjist að annars staðar í Nígeríu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga..

Telur kærunefnd ljóst að kærandi og börn hennar uppfylli skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga til að teljast flóttamenn hér á landi.

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu er fallist á aðalkröfu kæranda um að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar og veita henni og börnum hennar alþjóðlega vernd á Íslandi á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðsamnings um stöðu flóttamanna.

Í ljósi þess að kærunefnd útlendingamála hefur fallist á aðalkröfu kæranda verða varakrafa, þrautavarakrafa og þrautaþrautavarakrafa kæranda ekki teknar til umfjöllunar í máli þessu.


 

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Kæranda og börnum hennar er veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 40. gr. s.l. Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga.

 

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellant and her children are vacated. The appellant and her children are granted international protection in accordance with Article 37, paragraph 1, and Article 40, paragraph 1, of the Act on Foreigners. The Directorate is instructed to issue them residence permit on the basis of Article 73 of the Act on Foreigners.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Sindri M. Stephensen                                                Þorbjörg I. Jónsdóttir


 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum