Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 51/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 4. febrúar 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 51/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU20110019

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 9. nóvember 2020 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. október 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, auk 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 12. ágúst 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann 18. ágúst 2020 kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þá kom þar fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi þann 9. nóvember 2018. Við meðferð málsins framvísaði kærandi grísku flóttamannavegabréfi með gildistíma til 6. desember 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 15. september 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 20. október 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 27. október 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 9. nóvember 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 18. nóvember 2020. Viðbótargögn bárust kærunefnd þann 5. janúar 2021.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.Var kæranda veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið og athygli hans vakin á því að yfirgæfi hann ekki landið innan frests væri heimilt að brottvísa honum. Í brottvísun fælist bann við komu til landsins síðar og endurkomubann skyldi að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð vísar kærandi til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og viðtals síns hjá stofnuninni hvað varðar frásögn hans og málsatvik. Þar kemur fram að kærandi hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun mótmælt endursendingu til Grikklands. Kærandi hafi komið til Grikklands í mars 2018 og dvalið í um 10 mánuði á eyjunni Lesbos. Eftir að hann hafi hlotið alþjóðlega vernd þar í landi hafi honum verið vísað úr flóttamannabúðunum og sagt að hann ætti hvorki rétt á fjárhagsstuðningi né húsnæði. Kærandi hafi dvalið á eyjunni í mánuð til viðbótar á meðan hann hafi beðið eftir útgáfu ferðaskilríkis. Kærandi hafi verið heimilislaus og leitað til Rauða krossins og útlendingayfirvalda í von um að fá samastað en honum hafi verið synjað, þar sem hann hafi verið kominn með alþjóðlega vernd. Foreldrar kæranda hafi veitt honum fjárhagsstuðning eftir að honum hafi verið gert að yfirgefa flóttamannabúðirnar. Kærandi hafi því gist á hóteli og stuttu síðar hafi hann yfirgefið Grikkland. Kærandi hafi ekki verið upplýstur um hvort hann væri með atvinnuleyfi en það hafi verið erfitt að fá atvinnu. Þá hafi hann orðið fyrir fordómum og ofbeldi í Grikklandi. Eitt sinn hafi tveir menn í bifreið reynt að aka á hann og hrópað að honum fjandsamleg orð á grísku. Kærandi hafi verið handtekinn og fangelsaður í sjö daga fyrir það eitt að hafa haft í fórum sínum kennikort vinar síns í þeim tilgangi að kaupa símkort fyrir hann. Þá óttist kærandi lögregluna og herinn í Grikklandi og telji sig ekki vera öruggan þar í landi. Hvað varðar heilsufar hafi kærandi greint frá því að hann sé [...]. Þá eigi hann í erfiðleikum með að læra þar sem hann gleymi upplýsingum um leið og hann móttaki þær, hann eigi erfitt með samskipti við annað fólk og hann sé þunglyndur vegna þess. Þá óttist kærandi að fara út úr húsi vegna minnisleysis, hann þurfi á stuðningi að halda til að rata og muna nöfn og kennileiti.

Í greinargerð kæranda er vísað til skjals sem hann kallar fylgiskjals með greinargerð hans til Útlendingastofnunar sem rekur sjónarmið kæranda varðandi almennar aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks í Grikklandi.

Kærandi gerir nokkrar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun, þ. á m. við trúverðugleikamat og rökstuðning Útlendingastofnunar. Kærandi mótmælir afstöðu Útlendingastofnunar hvað varðar mat á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður kæranda í Grikklandi frá því að úrskurður kærunefndar útlendingamála nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020 var kveðinn upp. Kærandi vísar til þess að niðurstaða í fyrrnefndum úrskurði hafi m.a. byggt á samverkandi áhrifum á stöðu kæranda í Grikklandi, áhrifa Covid-19 faraldursins á innviði Grikklands og þeirrar óvissu sem af faraldrinum leiði að öðru leyti. Ljóst sé að aðstæður í Grikklandi hafi ekki breyst til batnaðar frá því fyrrnefndur úrskurður féll, hvorki staða flóttafólks í Grikklandi né hvað varðar áhrif Covid-19 faraldursins sem gæti hrundið fordæmisgefandi gildi hans. Stofnuninni beri því, í ljósi jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, að leggja fyrrgreindan úrskurð til grundvallar ákvarðanatöku í máli kæranda. Kærandi gerir athugasemd við mat stofnunarinnar á að ekkert bendi til þess að það ástand sem nú ríki komi til með að hafa teljandi áhrif á stöðu kæranda í viðtökuríki. Vísar kærandi til þess að víðtækar og íþyngjandi takmarkanir séu í gildi í landinu og stofnuninni beri að meta hvaða afleiðingar þær muni hafa á lífsskilyrði kæranda ásamt því neyðarástandi sem þar ríki vegna Covid-19 faraldursins, komi til endursendingar.

Kærandi gerir athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á aðgengi kæranda að heilbrigðisþjónustu, húsnæði og atvinnumöguleikum í Grikklandi. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og samtaka. Heimildir beri með sér að þrátt fyrir að grísk lög mæli fyrir um óhindraðan aðgang flóttafólks að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi sé raunverulegt aðgengi þessa hóps verulega takmarkað og háð ýmsum skilyrðum, svo sem útgáfu kennitölu (AMKA) sem flóttafólki reynist nær ómögulegt að fá útgefna. Þá vísar kærandi til þess að samkvæmt grískum lögum ætti flóttafólk að njóta sama réttar og grískir ríkisborgarar til nauðsynlegrar félagslegrar aðstoðar en raunin sé önnur og standi flóttafólk frammi fyrir alvarlegri mismunun hvað það varðar í Grikklandi. Einstaklingum með alþjóðlega vernd í Grikklandi sé nær ómögulegt að uppfylla kröfur sem grísk stjórnvöld geri til þeirra sem sæki um félagslega aðstoð, þ.e. t.a.m. kröfu um skattnúmer, kennitölu og bankareikning fyrir alla fjölskyldumeðlimi og sönnur um búsetu. Hvað varðar aðgengi flóttafólks að atvinnumarkaði sé raunin sú að flóttafólk eigi samkvæmt lögum að hafa fullan og sjálfvirkan rétt til atvinnuleitar í landinu en staða flóttafólks í landinu sé allt önnur. Erfiðleikar við útgáfu skattnúmera og gríðarlegar tafir innan grísku stjórnsýslunnar hindri sérstaklega þennan viðkvæma hóp í atvinnuleit. Þá andmælir kærandi mati Útlendingastofnunar á því að hann geti leitað á náðir lögreglu eða annarra yfirvalda telji hann á sér brotið, eða eftir atvikum til sérstaks umboðsmanns, telji kærandi að lögregla hafi brotið á réttindum sínum.

Kærandi vísar þá til þess að í hinni kærðu ákvörðun sé það mat stofnunarinnar að kærandi glími ekki við skyndilegan né lífshættulegan sjúkdóm sem hann fái ekki meðferð við í Grikklandi. Ekki sé að finna umfjöllun um það í ákvörðun Útlendingastofnunar að kærandi sé [...] og taki inn lyfseðilskyld lyf vegna hans eða að kærandi sé í sérstökum áhættuhópi vegna Covid-19. Vegna skorts á umfjöllun Útlendingastofnunar hvað varðar undirliggjandi sjúkdóm kæranda sé þess farið á leit við kærunefnd útlendingamála að bætt verði úr þeim ágalla og að nefndin meti hvaða afleiðingar það kunni að hafa í för með sér að endursenda hann til Grikklands.

Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar hvað varðar kröfur og málsástæður. Þar krefst kærandi þess að mál hans verði tekið til efnislegrar málsmeðferðar með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við í máli kæranda beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður hans og þær afleiðingar sem endursending geti haft í för með sér fyrir hann, líkamlegar og andlegar, auk þess að meta hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga. Viðkvæm staða kæranda skuli hafa vægi við mat á því hvort sérstakar ástæður séu upp í máli, sbr. mat kærunefndar útlendingamála í fyrri úrskurðum er varða einstaklinga með vernd í öðru ríki. Þá vísar kærandi til þess að í reglugerð nr. 276/2018 séu tiltekin viðmið sett fram í dæmaskyni og ekki sé um tæmandi talningu að ræða.

Kærandi vísar til þess að með tilkomu Covid-19 faraldursins hafi aðstæður flóttafólks í Grikklandi versnað til muna. Þann 8. september sl. hafi átt sér stað skæður eldsvoði á eyjunni Lesbos í Moria og í kjölfarið hafi grísk yfirvöld lýst fyrir neyðarástandi og óskað eftir aðstoð annarra Evrópuríkja. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi gefið út ákall til grískra stjórnvalda um að tryggja flóttafólki viðunandi aðstæður, þak yfir höfuðið, auka hreinlætisaðstæður og fyrirbyggja smit. Þá hafi stofnunin einnig kallað eftir samstöðu innan Evrópuríkja um að axla ábyrgð og létta byrðina af Grikklandi og taka á móti flóttafólki sem dvelji þar berskjaldað fyrir smiti og heimilislaust. Í nýlegum úrskurðum kærunefndar útlendingamála hafi nefndin lagt mat á aðstæður í Grikklandi og litið sérstaklega til fordæmalauss ástands vegna Covid-19 faraldursins. Í því sambandi vísar kærandi til fyrrgreinds úrskurðar kærunefndar nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020. Ljóst sé að aðstæður í Grikklandi hafi ekki breyst til batnaðar frá því að fyrrgreindur úrskurður hafi fallið sem hrundið gæti fordæmisgefandi gildi hans.

Kærandi áréttar að hann hafi greint frá erfiðri lífreynslu í Grikklandi, þar hafi hann verið allslaus og orðið fyrir fordómum. Kærandi hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu eftir að hann hafi hlotið vernd [...]. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 15. september 2020, komi fram að [...] og krefjist eftirlits. Vegna undirliggjandi sjúkdóms teljist umsækjandi vera í sérstökum áhættuhópi á að smitast af Covid-19 og í meiri hættu á að veikjast alvarlega og glíma við alvarleg einkenni sjúkdómsins. Þegar litið sé til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda ásamt því neyðarástandi sem ríki í Grikklandi og almennum aðstæðum flóttafólks í landinu sé ljóst að sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga séu uppi í máli hans. Í því samhengi megi jafnframt líta til 32. gr. a reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Kærandi muni verða fyrir alvarlegri mismunun verði honum gert að snúa aftur til Grikklands. Ennfremur sé fullvíst að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í Grikklandi í ljósi stöðu hans sem flóttamanns og kynþáttar.

Verði ekki fallist á að sérstakar ástæður eigi við í máli kæranda byggir hann á því að endursending hans til Grikklands jafngildi broti á grundvallarreglu þjóðarréttar um non-refoulement. Samkvæmt 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skuli taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi þrátt fyrir heimildir 1. mgr. sama ákvæðis ef beiting heimildanna myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr. laga um útlendinga, eða banni við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Lýsingar kæranda á aðstæðum sínum í Grikklandi komi heim og saman við opinberar heimildir um aðstæður þar í landi, m.a. varðandi atvinnu, húsnæði, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu. Með vísan til þess verði að telja að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Endursending kæranda til Grikklands teljist því, vegna aðbúnaðar og aðstæðna einstaklinga með alþjóðlega vernd þar í landi og þeirra ofsókna sem þeir einstaklingar sæta, vera brot á 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki myndi ákvörðunin brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og 7. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Íslenskum stjórnvöldum beri því skylda að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að einstaklingar með alþjóðlega vernd séu oft á tíðum einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu vegna aðstæðna í því ríki sem viðkomandi dveljist. Engin ástæða sé til að greina sérstaklega á milli umsækjenda um alþjóðlega vernd og einstaklinga með vernd við mat á því hvort skilyrðum 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé fullnægt eða ekki. Kærandi vísar til þess að í úrskurðum kærunefndar hafi nefndin slegið því föstu að líta verði til aðstæðna viðkomandi einstaklings í viðtökuríki við mat á sérstökum ástæðum. Hafi kæruefnd þannig fallist á að staða einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd sé ekki í öllum tilvikum sambærileg stöðu ríkisborgara og að meta verði stöðu þeirra sjálfstætt.  

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2019 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 11. mars 2020);
  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2020);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (http://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 4. febrúar 2021) og
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 4. febrúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu undir sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hefur útgáfa kennitalna (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi fengu allir umsækjendur um alþjóðlega vernd svokallað AMKA eða kennitölu (g. Αριθμός Μητρώου Κοινωνικής Ασφάλισης) sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 breyttust skilyrði fyrir útgáfu kennitalna (AMKA) og fá umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin ákveðin heilbrigðisþjónustunúmer (g. Προσωρινός Αριθμός Ασφάλισης και Υγειονομικής Περίθαλψης Αλλοδαπού) sem er tímabundið úrræði, meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fá útgefið kennitölu (AMKA) sem telst varanlegt úrræði. Þegar umsækjandi hlýtur alþjóðlega vernd í Grikklandi verður heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hlýtur dvalarleyfi. Einstaklingar geta þá í kjölfarið sótt um kennitölu (AMKA) í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um kennitölu (AMKA) þurfa einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið kynntar lagabreytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveða á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhafar alþjóðlegrar verndar sem dvelja í svokölluðu ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, er skylt að yfirgefa þau innan 30 daga. Þó eru undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um er að ræða fólk sem glímir við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði uppá gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði eru í Grikklandi eru t.d. bætur fyrir fjölskyldur (e. Family allowance) en skilyrði fyrir slíkum bótum er að sýnt sé fram á tíu ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veita grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk (g. Κοινωνικό Επίδομα Αλληλεγγύης, KEA). Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfa m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá eru engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði í reynd. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki er þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi er hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga ásamt erfiðleikum við að fá skattnúmer (g. Αριθμός Φορολογικού Μητρώου, AFM) útgefið dregur úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Samkvæmt rannsókn frá 2018 hafi þeir flóttamenn sem hafi verið með atvinnu þar í landi venjulega verið í óskráðu starfi sem leiðir m.a. til þess að þeir hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur reiða sig á dreifingu matvæla, muna og fjárhagsaðstoð við grunnþörfum sínum. Þetta leiðir oft til þess að einstaklingar fari út í ólöglega tekjuöflun sem hindrar þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega á Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fer einungis fram á grísku en umsækjendur geta leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála á síðasta ári fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þarf að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir skv. lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku tungumáli. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjá um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu lengdist töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó þurfi enn frekari aðgerðir. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 kemur fram að dæmi eru um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Í skýrslu ECRE kemur fram að handhöfum alþjóðlegrar verndar á Grikklandi sé veitt dvalarleyfi til þriggja ára. Þá fá einstaklingar sem hafa hlotið viðbótarvernd, dvalarleyfi til eins árs sem sé hægt að framlengja að þeim tíma loknum til tveggja ára og sama gildir um þá sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna. Þá kemur fram að umsókn um framlengingu dvalarleyfis skuli fara fram ekki seinna en 30 dögum áður en leyfið rennur út. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint kemur fram að það eitt og sér hafi ekki í för með sér að umsókninni verði synjað. Frá árinu 2017 hefur umsókn um endurnýjun farið fram í gegnum tölvupóst. Þeir einstaklingar sem ekki hafa aðgang að tölvu eða eru ólæsir hafa því mætt hindrunum við að fá endurnýjun á dvalarleyfum sínum. Þá kemur fram í skýrslunni að yfirleitt taki um einn og hálfan mánuð að fá dvalarleyfi endurnýjað þó dæmi séu um að endurnýjun hafi tekið um sex mánuði. Við endurnýjun fer fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins. Ef dvalarleyfi rennur út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun á hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefur til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun og er gilt í fjóra mánuði. Dæmi eru þó um að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Þá sé vinnumálastofnun Grikklands (Manpower Employment Organization, gr. Οργανισμός Απασχόλησης Εργατικού Δυναμικού (OAED)) gjarnan treg til að taka á móti slíkum vottorðum þar sem vottorðin eru m.a. án myndar af einstaklingnum og ekki vatnsmerkt.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hann væri [...]. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 11. og 15. september 2020, kemur fram að kærandi hafi verið [...] og að hann hafi greint frá því að hann hafi orðið fyrir pyndingum í heimaríki árið 2014 eða 2015 þar sem hann hafi m.a. verið barinn í höfuðið. Þá kemur þar fram að skoða yrði vandlega hvort kærandi væri með undirliggjandi sjúkdóm [...]. Ennfremur kemur fram að niðurstaða úr blóðprufu hafi verið eðlileg. Samkvæmt gögnum frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 17. og 24. september 2020, leitaði kærandi á heilsugæslu [...]. [...]. Í gögnum frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 16. og 22. desember 2020, kemur fram að [...]. Þá hafi kærandi verið á lyfjum við mígreni og farið í sneiðmyndatöku á höfði vegna minnisleysis og höfuðverkjar.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hans var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns á vegum Rauða kross Íslands, jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 4. janúar 2021, um framlagningu frekari gagna í málinu. Frekari gögn bárust þann 5. janúar 2021. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra, trúverðugra, nægilega nákvæmra og uppfærðra upplýsinga, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Þar kemur fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja á til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Þá skuli líta til þess, í tilviki þungunar, hvort umsækjanda standi til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til gagna frá heilbrigðisstarfsfólki sem sýna fram á slíkt og, telji kærunefnd að umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, hlutlægra og trúverðugra gagna sem sýna fram á að sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandi þarfnast sé ekki í boði í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun að neðan.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst, og m.a. sú aðstoð rakin sem hann hefur fengið hér á landi. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans vegna slæmra aðstæðna í Grikklandi. Kærandi hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu, félagsaðstoð eða atvinnu í Grikklandi. Þá byggir kærandi á því að samkvæmt framlögðum heilsufarsgögnum hafi hann [...] og að vegna undirliggjandi sjúkdóms teljist hann vera í sérstökum áhættuhópi á að smitast af Covid-19 og sé í meiri hættu á að veikjast alvarlega og glíma við alvarleg einkenni.

Aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi hafa þegar verið raktar. Eins og komið hefur fram hafa einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd að mestu sambærileg réttindi að lögum og grískir ríkisborgarar, m.a. hvað varðar grunnheilbrigðisþjónustu, félagslega aðstoð og rétt til að stunda atvinnu. Aftur á móti, líkt og að framan greinir og fram kom m.a. í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051, virðast vera ýmsar hindranir á möguleikum flóttamanna til þess að sækja réttindi sín, t. a. m. við að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Þá hafi gögn bent til þess að útgáfa kennitalna (AMKA) til flóttamanna hafi falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu í landinu. Það er þó almennt mat kærunefndar, m.a. með vísan til gagna sem kærunefnd aflaði sérstaklega frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd geti mætt ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland ekki til þess að það sé þeim ómögulegt. Þá hefur kærunefnd talið það sama eiga við um útgáfu kennitalna til flóttamanna. Í fyrrgreindum málum var það þó m.a. mat nefndarinnar að í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi, og þeirrar stöðu sem uppi var á þeim tíma vegna átaka við landamærin og fordæmalausrar stöðu vegna Covid-19 faraldursins, að ástæða hafi verið til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu væru í verri aðstöðu en áður til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldu sinni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir barnanna.

Í því máli sem hér er til meðferðar er kærandi einstæður karlmaður sem, samkvæmt framlögðum heilsufarsgögnum, hafi verið greindur með [...] og taki lyf og sé undir eftirliti vegna hans og þá glímir kærandi einnig við önnur heilsufarsvandamál. Í leiðbeiningum embættis landlæknis fyrir einstaklinga með áhættuþætti fyrir alvarlegri Covid-19 sýkingu, dags. 30. nóvember 2020, kemur fram að einstaklingar með [...] séu í aukinni hættu eða mögulega í aukinni hættu á alvarlegri veikindum af völdum Covid-19. Kærandi telst því vera í slíkum áhættuhópi.

Í hinni kærðu ákvörðun fjallaði Útlendingastofnun um aðgengi flóttafólks að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi, m.a. í ljósi Covid-19 faraldursins. Er þar m.a. rakið að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi rétt á heilbrigðiþjónustu til jafns við gríska ríkisborgara. Þá rakti Útlendingastofnun þau heilsufarsgögn sem kærandi lagði fram við meðferð málsins. Er þar m.a. vikið stuttlega að því að kærandi [...]. Með tölvupósti, dags. 25. janúar 2021, óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun um hvort að upplýsingar hafi legið fyrir um hvort kærandi hefði kennitölu og skattnúmer í Grikklandi fyrir ákvarðanatöku í máli hans. Samkvæmt svari frá Útlendingastofnun, sem barst samdægurs, höfðu engar upplýsingar legið fyrir um fyrrgreint í máli kæranda og þá hafi hann ekki verið spurður að því sérstaklega í viðtali hjá Útlendingastofnun.

Kærunefnd telur að í ljósi þess að kærandi sé í hópi þeirra sem geti átt á hættu að glíma við alvarleg veikindi af völdum Covid-19, vegna veikinda sinna, og vegna þeirra aðgangshindrana sem geti verið til staðar hafi verið sérstakt tilefni til að afla upplýsinga um hvort kærandi hefði kennitölu í Grikklandi ásamt því að kanna hvort hann hefði skattnúmer þar í landi. Kærunefnd telur í ljósi framangreinds að upplýsingar um fyrrgreint hafi þurft að liggja fyrir áður en að ákvörðun hafi verið tekin í máli kæranda og telur kærunefnd að rannsókn Útlendingastofnunar sé áfátt að þessu leyti.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra gagna og upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar.

Er það mat kærunefndar að með framangreindum annmörkum á málsmeðferð kæranda hjá Útlendingastofnun hafi stofnunin ekki fullnægt skyldu sinni skv. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Eins og að framan greinir telur kærunefnd að annmarkar hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar í máli kæranda. Kærunefnd telur jafnframt í ljósi aðstæðna að ekki sé unnt að bæta úr þeim annmörkum á kærustigi og því rétt að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Bjarnveig Eiríksdóttir                                              Þorbjörg I. Jónsdóttir  


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum