Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 31/2018 Úrskurður 22. maí 2018

Mál nr. 31/2018                    Eiginnafn:     Eldmey (kvk.)

 

 

 

Hinn 22. maí 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 31/2018 en erindið barst nefndinni 9. maí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

·         Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

·         Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

·         Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

·         Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

·         Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Eldmey (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli,Eldmeyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Eldmey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum