Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 77/2018 úrskurður 20. september 2018

Mál nr. 77/2018                    Millinafn:       Ká

 

 

 

Hinn 20. september 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 77/2018 en erindið barst nefndinni 19. september.

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

 

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.

  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.

  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Millinafnið er dregið af íslenskum orðstofni, sbr. bókstafsnafnið og sagnorðið sem meðal annars merkir ‚róta í‘ eða ‚snúa e-u við‘. Millinafnið telst einnig að öðru leyti uppfylla skilyrði 6. gr. laga um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum