Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 201/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 5. apríl 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 201/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23020035

 

Beiðni […] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Með úrskurði nr. 204/2022, dags. 25. maí 2022, staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. apríl 2022, um að taka umsókn […], fd. […], ríkisborgara Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 30. maí 2022.

Hinn 5. júní 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa og endurupptöku. Hinn 9. júní var beiðni kæranda um endurupptöku hafnað. Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa var jafnframt hafnað með úrskurði kærunefndar, dags. 30. júní 2022. Hinn 15. febrúar 2023 barst kærunefnd öðru sinni beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra 24. og 28. mars 2023. Með tölvubréfi kærunefndar til kæranda, dags. 28. mars 2023, voru kæranda kynntar framangreindar upplýsingar og veittur frestur til andmæla í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærunefnd bárust andmæli kæranda 30. mars 2023.

Af beiðni kæranda um endurupptöku má ráða að hún byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda um endurupptöku er byggt á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hans ábyrgð. Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skuli taka umsókn til efnismeðferðar ef meira en 12 mánuðir hafi liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs. Sé litið til stjórnsýsluframkvæmdar um framangreint ákvæði laganna hafi afgreiðsla umsóknar miðast við umsóknardag annars vegar og hins vegar þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda sé framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis. Þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir og kærandi enn staddur á Íslandi, telur hann að stjórnvöldum sé skylt að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 16. febrúar 2022 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 16. febrúar 2023. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Hinn 24. mars 2023 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svör Útlendingastofnunar bárust kærunefnd þann sama dag. Svör stoðdeildar bárust 28. mars 2023. Í svari Útlendingastofnunar kom fram að samkvæmt skráningum stofnunarinnar yrði ekki séð að kærandi hafi tafið mál sitt við meðferð málsins hjá stofnuninni.

Í svari stoðdeildar kom fram að 17. ágúst 2022 hafi stoðdeild farið að skráðu búsetuúrræði kæranda og bankað á herbergisdyr hans en hann hafi ekki verið í herberginu sínu. Hinn 14. september 2022 hafi stoðdeild knúið dyra á herbergi kæranda og hafi herbergisfélagi hans komið til dyra og greint frá því að kærandi hafi farið til Reykjavíkur um morguninn. Hinn 22. september hafi stoðdeild hringt í farsíma kæranda en símanúmerið hafi ekki lengur verið virkt. Því næst hafi verið hringt í vaktmann búsetuúrræðis kæranda sem hafi greint frá því að kærandi hafi ekki nýtt úrræðið í marga mánuði og að hann væri hvergi annars staðar á skrá hjá Útlendingastofnun. Stoðdeild hafi fengið uppgefið símanúmer kæranda sem hafi verið skráð á hann hjá Útlendingastofnun. Sama dag hafi stoðdeild hringt í kæranda en það hafi hringt út í talhólf og hafi kærandi verið beðinn um að hringja til baka í lögreglumann stoðdeildar. Hinn 28. október 2022 hafi kæranda verið leitað vegna fyrirhugaðrar ferðar með leiguflugvél til Grikklands 3. nóvember 2022. Leitað hafi verið á tveimur stöðum en kærandi hafi ekki fundist og ekki hafi náðst í hann í síma. Sama dag hafi kærandi verið skráður eftirlýstur í LÖKE. Leitað hafi verið í G-kerfi og launabókhaldi en engin samsvörun hafi fundist og ekki hafi verið vitað um dvalarstað hans. Hinn 30. janúar 2023 hafi textaskilaboð verið send í farsíma kæranda og hann spurður hvort hann gæti hitt lögreglumann stoðdeildar í vikunni til að ræða mál hans.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 28. mars 2023, voru kæranda send þau gögn sem bárust frá stoðdeild og honum veittur frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Í tölvubréfi kæranda, dags. 30. mars 2023, kemur fram að hann mótmæli því alfarið að hann hafi verið í felum. Kærandi kveðst hafa tilkynnt Útlendingastofnun 27. júlí 2022 að hann væri fluttur í […] í Garðabæ. Hann hafi farið í móttöku Útlendingastofnunar ásamt vitni.

Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd hér á landi er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda 16. febrúar 2023. Ljóst er að kærandi hafði ekki verið búsettur í skráðu búsetuúrræði hjá Útlendingastofnun í marga mánuði þegar stoðdeild kom tvívegis þangað í þeim tilgangi að ræða við kæranda um flutning hans úr landi til Grikklands. Þá var búseta hans ekki annars staðar á skrá hjá Útlendingastofnun. Var kæranda m.a. leitað á þeim stað sem hann kvaðst í andmælabréfi sínu hafa verið búsettur á undanfarna mánuði. Með því að vera ekki í búsetuúrræði sínu þegar stoðdeild reyndi að hitta kæranda fyrir og svara ekki síma eða textaskilaboðum þegar stoðdeild gerði tilraun til að hafa samband við kæranda telur kærunefnd að kærandi hafi komið í veg fyrir flutning sinn úr landi og tafið málsmeðferðina. Með háttsemi sinni gerði kærandi framkvæmd endanlegrar ákvörðunar á stjórnsýslustigi ómögulega innan tilgreindra tímamarka.

Með hliðsjón af framangreindu telur kærunefnd að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki uppfyllt.

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á máli hans er þar með hafnað.

 

Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda um endurupptöku er hafnað.

The appellant‘s request to re-examine the cases is denied.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                Gunnar Páll Baldvinsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum