Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 350/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 7. september 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 350/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22070021

 

Beiðni um endurupptöku í máli [...]

  1. Málsatvik

    Með úrskurði kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU21090048, dags. 4. nóvember 2021, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. ágúst 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 8. nóvember 2021. Hinn 7. júlí 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun 17. ágúst 2022 og frá stoðdeild ríkislögreglustjóra 18. ágúst 2022.

    Beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans er reist á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

  2. Málsástæður og rök kæranda

    Í beiðni kæranda um endurupptöku kemur fram að vegna þess tíma sem nú hafi liðið frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi sé ljóst að tímafrestur 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 sé liðinn. Samkvæmt stjórnsýsluframkvæmd hafi afgreiðsla umsókna í skilningi ákvæðisins miðast við umsóknardag annars vegar og hins vegar við endursendingu til þess ríkis sem veitt hafi viðkomandi alþjóðlega vernd. Kærandi telji því að atvik í máli hans hafi breyst verulega en ákvörðun um frávísun frá landinu teljist íþyngjandi ákvörðun fyrir hann. Kærandi hafi engin samskipti átt við lögreglu frá því að nefndur úrskurður kærunefndar hafi verið kveðinn upp. Hann hafi allan sinn tíma hér á landi dvalið í húsnæði á vegum Útlendingastofnunar. Hann hafi því aldrei verið beðinn um að sæta líkamsrannsókn eða Covid-19 sýnatöku af hálfu lögreglu eða verið tilkynnt um mögulegan brottflutning.

    Með hliðsjón af vinnubrögðum lögreglu og þess að kærandi sé enn á Íslandi telji hann ljóst að 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leggi þá skyldu á íslensk stjórnvöld að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar. Atvik í máli hans hafi breyst verulega frá því að úrskurður kærunefndar útlendingamála hafi verið birtur honum og beri kærunefnd því að endurupptaka mál hans á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Vegna sama ákvæðis beri nefndinni jafnframt að fella ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans úr gildi og fela stofnuninni að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

  3. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi 6. júlí 2021 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 6. júlí 2022. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Hinn 8. ágúst 2022 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í svari Útlendingastofnunar, dags. 17. ágúst 2022, kemur fram að kærandi hafi ekki tafið mál sitt á meðan það hafi verið til meðferðar hjá stofnuninni. Í svari stoðdeildar, dags. 18. ágúst 2022, kemur fram að stofnuninni hafi ekki borist verkbeiðni í máli kæranda og hann hafi því ekki tafið mál sitt hjá stofnuninni.

Með hliðsjón af framangreindu er því ekki grundvöllur fyrir kærunefnd til að ákvarða að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er uppfyllt og ber að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreinds er því fallist á atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Úrskurðarorð:

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decisions of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant’s application for international protection in Iceland.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                       Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum