Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 39/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 25. janúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 39/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU22110050

 

Kæra  [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 15. nóvember 2022 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...]og vera ríkisborgari Afganistan (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 4. nóvember 2022, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 6. september 2022. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Austurríki. Hinn 14. september 2022 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Austurríki, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá austurrískum yfirvöldum, dags. 22. september 2022, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 4. október 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 4. nóvember 2022 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 4. nóvember 2022 og kærði hann ákvörðunina 15. nóvember 2022. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 24. nóvember 2022.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að austurrísk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Austurríkis ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Austurríkis.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi sé giftur konu í heimaríki en kærandi hafi yfirgefið heimaríki árið 2021 og farið til Austurríkis þar sem hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd. Kærandi hafi dvalið í Austurríki í um tvær vikur í sóttkví en yfirgefið Austurríki áður en niðurstaða hafi fengist í mál hans. Kærandi hafi farið til Þýskalands og þaðan flogið til Íslands þar sem hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd.

Kærandi vísar til þess að í Austurríki séu til staðar fordómar gagnvart múslimum og öðrum minnihlutahópum. Þá geti reynst umsækjendum um alþjóðlega vernd erfitt að fá lagalega aðstoð fyrr en á síðari stigum málsmeðferðar þar í landi. Auk þess hafi umsækjendur um alþjóðlega vernd í Austurríki ekki nægilega greiðan aðgang að ráðgjöf og aðstoð frá félagasamtökum. Þá hafi innanríkisráðuneyti Austurríkis gefið út yfirlýsingu þess efnis að yfirvöld myndu hefja endursendingar til Afganistan að nýju. Vísar kærandi til tiltekinna skýrslna máli sínu til stuðnings.

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann hafi sérstök tengsl við Ísland í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til athugasemda í greinargerð með frumvarpi laganna þar sem fram kemur að um geti verið að ræða tilfelli þar sem flóttamaður eigi ættingja á Íslandi en ekki í því landi sem hann yrði sendur til. Einnig geti þetta átt við þegar tengsl eru ríkari við Ísland en viðtökuríki. Kærandi eigi frænku hér á landi sem hann hafi alist upp með og þau búið í sama húsi alla sína barnæsku. Feður þeirra séu bræður svo ljóst sé að um afar náin fjölskyldutengsl sé að ræða. Kærandi tali um frænku sína sem systur en hann hafi búið hjá henni og fjölskyldu hennar og aðstoðað við uppeldi barna hennar. Ljóst sé að kærandi og frænka hans séu náskyld, hafi alist upp saman og séu afar náin. Kærandi eigi hins vegar enga ættingja í Austurríki, þekki þar enga og hafi engin tengsl við landið, enda aðeins dvalið þar í um tvær vikur.

Samkvæmt framangreindu beri íslenskum yfirvöldum að líta til þess að kærandi hafi sérstök tengsl við Ísland. Í þessu tilviki sé ekki aðeins um að ræða heimild heldur skyldu íslenskra yfirvalda að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til meðferðar. Samkvæmt viðmiðum um hvaða aðildarríki skuli bera ábyrgð á umsókn einstaklings um alþjóðlega vernd sem fram komi í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar beri Ísland ábyrgð á umsókn kæranda. Í 9. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar komi skýrt fram að eigi umsækjandi um alþjóðlega vernd aðstandanda sem aðildarríki hafi veitt leyfi til dvalar, skuli það ríki bera ábyrgð á meðferð umsóknar viðkomandi. Af framangreindum sökum telur kærandi það ljóst að hann hafi fullt tilefni til að sækja um alþjóðlega vernd hér á landi. Kærandi telji að Útlendingastofnun verði að rannsaka málið betur, einkum sérstök tengsl hans við Ísland. Kærandi vísar til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1933 og telur að verulega skorti á að mál hans sé nægjanlega upplýst.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]sem kom einsamall hingað til lands. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hann eigi eiginkonu í heimaríki. Þá hefur kærandi greint frá því að eiga frænku hér á landi. Kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd í Austurríki í desember 2021. Kærandi hafi dvalið í Austurríki í um tvær vikur en hann hafi þaðan farið til Þýskalands með lest. Kærandi hafi dvalið í flóttamannabúðum í Þýskalandi þangað til hann kom hingað til lands og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd í september 2022. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að eiga frænku sem væri með dvalarleyfi hér á landi. Þá greindi kærandi frá því að hann vilji ekki vera í Austurríki þar sem hann vilji dvelja hér á landi með fjölskyldu sinni. Kærandi kvaðst ekki þekkja til flóttamannakerfisins fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Austurríki. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað kærandi líkamlega og andlega heilsu sína vera góða.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Austurríkis á umsókn kæranda er byggð á b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi er með umsókn um alþjóðlega vernd til meðferðar þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja austurrísk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Austurríki

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Austurríki, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2021 Country Report on Human Rights Practices - Austria (United States Department of State, 12. apríl 2022);

  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2022 (European Asylum Support Office, 28. júní 2022);
  • Austria Country Security Report (Overseas Security Advisory Council, U.S. Department of State, 17. desember 2021);
  • Asylum Information Database. Country Report: Austria (European Council on Refugees and Exiles, 25. apríl 2022);
  • Amnesty International Report 2021/22 - Austria (Amnesty International, 29. mars 2022);

  • Deserving Shelter: Conditional Access to Accommodation for Rejected Asylum Seekers in Austria, the Netherlands, and Sweden (Journal of Immigrant & Refugee Studies, 10. febrúar 2019);
  • ECRI Conclusions on the Implementation of the Recommendations in Respect of Austria subject to interim follow-up (European Commission against Racism and Intolerance, 15. maí 2018);
  • ECRI report on Austria (sixth monitoring cycle), 2. júní 2020.
  • Euro Health Consumer Index 2018 (Health Consumer Powerhouse, janúar 2018);
  • Freedom in the World 2022 – Austria (Freedom House, febrúar 2022);

  • Report in immigration detention (legal context and practices; detention infrastructure) (DGP – Global Detention Project, maí 2017);
  • The Return of Rejected Asylum Seekers from Austria (International Organization for Migration, júní 2016);
  • Your Social Security Rights in Austria (European Commission, 2016);
  • Universal Periodic Review – Austria (United Nations, Human Rights Council, 22. janúar 2021);
  • Upplýsingar af vef austurríska heilbrigðisráðuneytisins (www.bmgf.gv.at);
  • Upplýsingar af vef Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (https://help.unhcr.org/austria/rights-and-obligations/asylum-seekers/, sótt 25. janúar 2023);
  • Upplýsingar af vef austurríska innanríkisráðuneytisins (www.bmi.gv.at) og
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (http://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 25. janúar 2023).

Samkvæmt framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá apríl 2022 tekur austurríska útlendingastofnunin (a. Bundesamt für Fremdenwesen und Asyl (BFA)) ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjandi um alþjóðlega vernd á þess kost að bera synjun stofnunarinnar á umsókn sinni undir stjórnsýsludómstól (a. Bundesverwaltungsgericht) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (a. Verwaltungsgerichtshof). Umsækjendur um alþjóðlega vernd sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá útlendingastofnun Austurríkis. Umsækjandi sem leggur fram viðbótarumsókn á rétt á viðtali sem á m.a. að leiða í ljós hvort nýjar upplýsingar eða gögn liggi fyrir eða hvort aðstæður hafi breyst í máli hans. Fái umsækjandi synjun á viðbótarumsókn sinni getur hann kært niðurstöðuna til stjórnsýsludómstóls. Þá eru engin takmörk á því hversu oft umsækjandi geti lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga þess einnig kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt skýrslunni hafa umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á lögfræðiráðgjöf en oft getur reynst erfitt að nálgast slíka þjónustu, aðallega vegna skorts á starfsfólki og fjármögnun. Þá eiga umsækjendur einnig rétt á túlkaþjónustu í viðtölum sínum. Ef austurríska útlendingastofnunin synjar umsókn umsækjanda um alþjóðlega vernd fær umsækjandi skipaðan lögfræðing þegar ákvörðun stofnunarinnar er birt honum, vilji hann bera synjunina undir stjórnsýsludómstól. Þegar umsækjandi leggur fram viðbótarumsókn á hann rétt á lögfræðiráðgjöf bæði hjá útlendingastofnun og stjórnsýsludómstólnum og er slík lögfræðiráðgjöf kostuð af ríkinu. Þá kveða stjórnsýslulög í Austurríki á um að ákvarðanir á stjórnsýslustigi skuli almennt liggja fyrir innan sex mánaða frá því að umsókn barst.

Austurríki er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt framangreindri skýrslu ECRE eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á grunnþjónustu, s.s. húsnæði, heilbrigðisþjónustu, mataraðstoð og dagpeningum á meðan umsókn þeirra er til meðferðar hjá yfirvöldum. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd í Austurríki rétt á grunnþjónustu, m.a. húsnæði, mataraðstoð og heilbrigðisþjónustu til jafns á við austurríska ríkisborgara, sama hvar umsókn þeirra er stödd í umsóknarferlinu. Samkvæmt skýrslu International Organization for Migration frá því í júní 2016 og skýrslu Deserving Shelter: Conditional Access to Accommodation for Rejected Asylum Seekers in Austria, the Netherlands, and Sweden, sem birt var í tímaritinu Journal of Immigrant & Refugee Studies hinn 10. febrúar 2019, er aðgengi að grunnþjónustu í Austurríki eftir að umsækjandi hefur fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd byggð á samvinnu umsækjandans við yfirvöld. Umsækjendur eiga því rétt á grunnþjónustu eftir að synjun á umsókn þeirra liggur fyrir þar til þeim er vísað frá landi eða þeir fara af landi brott sjálfviljugir, svo lengi sem sú þjónusta er ekki afturkölluð vegna háttsemi umsækjandans sjálfs, t.d. ef umsækjandi neitar að skrifa undir nauðsynleg skjöl eða neitar að afhenda nauðsynleg gögn. Þá á umsækjandi rétt á grunnþjónustu ef ekki er hægt að vísa honum frá landi, s.s. vegna ófullnægjandi ferðaskilríkja, svo lengi sem ástæðan er ekki af völdum háttsemi umsækjandans sjálfs. Þó að þetta sé almenna reglan á þetta ekki við í öllum sveitarfélögum en sveitarfélögin geta lagt mismunandi mat á það hverjir eigi rétt á grunnþjónustu og hvenær tilefni sé til að afturkalla slíka þjónustu. Þegar umsækjandi leggur inn viðbótarumsókn innan sex mánaða frá því hann fékk síðast synjun á umsókn sinni getur hann átt á hættu að fá ekki aðgang að grunnþjónustu. Hafi hann ekki aðgang að grunnþjónustu er umsækjandi settur í varðhald eða beitt minna íþyngjandi úrræðum eins og að halda sig í tilteknu þjónustuúrræði. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Austurríki sem hafa aðgang að grunnþjónustu eru sjúkratryggðir. Ef heilbrigðisþjónusta fellur utan sjúkratrygginga er hægt að sækja um að fá hana greidda af ríkinu. Hafi umsækjandi ekki aðgang að grunnþjónustu hefur hann þó alltaf aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Þá veitir heilbrigðisstofnunin Amber-Med í Vín þeim sem ekki eru sjúkratryggðir heilbrigðisþjónustu á nokkrum tungumálum.

Jafnframt kemur fram í skýrslu ECRE að umsækjendur sem sendir eru til Austurríkis á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti í sumum tilvikum verið settir í varðhald. Varðhaldi sé þó sjaldan beitt í framkvæmd. Ákvörðun um varðhald er tekin af austurrísku útlendingastofnuninni, m.a. í þeim tilvikum ef óttast er að einstaklingur sé talinn ógn við almannaöryggi eða þegar nauðsyn krefur vegna ótta um að umsækjandi muni fara af landi brott. Ákvörðun um varðhald er þá endurmetin á fjögurra vikna fresti en eftir fjóra mánuði fer hún sjálfkrafa til dómstóla til endurskoðunar. Þá er einnig hægt að kæra ákvörðun um varðhald strax til dómstóla sem tekur þá ákvörðun um lögmæti hennar innan sjö daga ef einstaklingur er í varðhaldi og nýtur þá einstaklingur lögfræðiaðstoðar án endurgjalds. Þá kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu samkvæmt austurrískum lögum óháð því hvort þeir séu í varðhaldi eða ekki.

Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022 eru lögregluyfirvöld í Austurríki skilvirk og fagleg og veita einstaklingum sem staddir eru í Austurríki vernd gegn hvers konar afbrotum. Þá hafa austurrísk stjórnvöld samkvæmt skýrslu framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins frá því árið 2018 gripið til aðgerða til að sporna við margvíslegri mismunun þar í landi, þ. á m. á grundvelli kynþáttar með því að veita fórnarlömbum hatursglæpa frekari stuðning og upplýsingar um hvernig megi leitar réttar síns.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beita] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera við góða líkamlega og andlega heilsu. Í málinu liggur fyrir vottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 13. október 2022, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun 4. október 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 16. nóvember 2022, um framlagningu uppfærðra heilsufarsgagna. Engin frekari heilsufarsgögn bárust. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Austurríki verður ráðið að kærandi geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verið fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem skapast hafa vegna Covid-19 faraldursins. Með vísan til framangreinds, þ.m.t. þeirra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, telur nefndin ljóst að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem til staðar var í upphafi Covid-19 faraldursins og að ekkert bendi til þess að þjónusta til umsækjenda um alþjóðlega vernd í Austurríki hafi skerst á síðustu mánuðum þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá er bólusetning langt á veg komin í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi telur að taka beri mál hans til efnismeðferðar hér á landi með vísan til þess að hann hafi sérstök tengsl við landið. Kærandi hefur vísað til þess að hann eigi frænku hér á landi. Hefur kærandi lagt fram m.a. afrit af skjölum sem hann telur að staðfesti ætterni þeirra og ljósmyndir af kæranda og frænku hans auk annarra fjölskyldumeðlima.

Lög um útlendinga veita ekki skýrar leiðbeiningar um hvernig hugtakið sérstök tengsl skv. 2. mgr. 36. gr. skuli túlkað. Í athugasemdum sem fylgdu ákvæðinu í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga kemur fram að ákvæðinu sé ætlað að taka m.a. til þeirra tilvika þegar umsækjendur eiga ættingja hér á landi en ekki í því ríki sem þeir yrðu aftur sendir til. Þetta geti einnig átt við í öðrum tilfellum þar sem tengsl eru ríkari en við viðtökuríkið, svo sem vegna fyrri dvalar. Í athugasemdunum kemur jafnframt fram að með ákvæðinu sé stjórnvöldum eftirlátið mat og hafi heimild til að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiðir af sérstökum reglum, svo sem reglum Dyflinnarreglugerðarinnar. Af því má m.a. leiða að þau tengsl sem ákvæðið vísar til geta verið fjarlægari en þau nánu fjölskyldutengsl sem Dyflinnarreglugerðin mælir fyrir um, sbr. m.a. g-lið 2. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Samkvæmt framansögðu verður að leggja til grundvallar að eigi umsækjandi um alþjóðlega vernd sannanlega ættingja hér á landi sem hefur heimild til dvalar hér og umsækjandi hefur raunveruleg og sérstök tengsl hér á landi en ekki í viðtökuríki, geti umsókn hans verið tekin til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli sérstakra tengsla hans við landið. Kærunefnd telur að við mat á sérstökum tengslum í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sé stjórnvöldum heimilt að líta til 16. tölul. 3. gr. laga um útlendinga en hafa verður í huga að hugtakið er annað og þrengra en hugtakið ættingi sem fram kemur í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga. Þannig geta önnur fjölskyldutengsl fallið undir 2. mgr. 36. gr., en gera verður ríkari kröfur til þess að sýnt sé fram á að þau tengsl séu sérstök og rík.

Þá leiðir af dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 164/2015 frá 8. október 2015 að tengsl sem myndast eftir að umsækjandi sækir um alþjóðlega vernd hér á landi, hvers eðlis sem þau tengsl séu, hafi takmarkað vægi við mat á því hvort umsækjandi teljist hafa sérstök tengsl við landið

Af framangreindu er ljóst að meta þarf tengsl kæranda við Ísland m.t.t. fyrirliggjandi gagna. Við meðferð máls kæranda hefur hann greint frá því að eiga frænku sem sé með dvalarleyfi hér á landi. Feður þeirra séu bræður og því sé um náin fjölskyldutengsl að ræða. Þá hafi kærandi búið hjá frænku sinni hér á landi og kærandi aðstoðað við uppeldi tveggja barna hennar. Máli sínu til stuðnings hefur kærandi lagt fram fæðingarvottorð og ýmis skjöl frá heimaríki. Þá hefur kærandi sem fyrr segir lagt fram ljósmyndir af sér og frænku sinni.

Ljóst er af framangreindu að frænka kæranda er nokkuð frá því að teljast vera náin ættingi kæranda í skilningi 16. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Verður því að gera ríkar kröfur til þess að sýnt sé fram á að tengsl þau sem um ræðir séu sérstök og rík til að uppfyllt sé skilyrði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þegar málið er metið heildstætt er það mat nefndarinnar að leggja verði til grundvallar ættartengsl kæranda við frænku sína. Á hinn bóginn hafa þau gögn sem kærandi hefur lagt fram um samskipti þeirra á milli og ljósmyndir ekki sýnt fram á að þar séu um að ræða ríkari tengsl en gerast almennt á milli ættingja með samskonar ættartengsl eða kunningja. Eins og á stendur í þessu máli varðar það tengsl milli ættingja sem ekki eru nánsustur aðstandendur og eru fullorðinir einstaklinga sem eru ekki hvor öðrum háðir. Verður jafnframt að horfa til þess að túlka verður ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga varðandi sérstök tengsl þannig að það nái til atvika þar sem það yrði talið ósanngjarnt gagnvart kæranda eða ættingja hans að endursenda hann til annars ríkis. Eins og á háttar í þessu máli verður ekki séð að það sé ósanngjarnt gagnvart kæranda eða frænku hans að endursenda hann til Austurríks, enda geta þau ræktað tengsl sín áfram þrátt fyrir það.

Af heildarmati á aðstæðum kæranda og fyrirliggjandi gögnum málsins er það því niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að hann sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 6. september 2022.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Enn fremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af ofangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná mjög háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Austurríki, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Austurríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar og reglur stjórnsýsluréttar

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann telji að Útlendingastofnun hafi borið að rannsaka mál hans betur, einkum sérstök tengsl hans við Ísland. Kærandi vísar til 10. gr. stjórnsýslulaga og telur að verulega skorti á að mál hans sé nægjanlega upplýst. Jafnframt vísar kærandi til 9. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem fram kemur að eigi umsækjandi um alþjóðlega vernd aðstandanda sem aðildarríki hafi veitt leyfi til dvalar, skuli það ríki bera ábyrgð á meðferð umsóknar viðkomandi.

Með vísan til umfjöllunar kærunefndar um sérstök tengsl kæranda við landið telur kærunefnd að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst. Þá tekur kærunefnd fram að samkvæmt g-lið 2. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar falla frændsystkini ekki undir hugtakið aðstandandi. Hefur kærunefnd farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Í ljósi framangreinds telur kærunefnd að Útlendingastofnun hafi uppfyllt rannsóknarskyldu sína samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga.

Frávísun

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 6. september 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda bendir allt til þess að hann hafi verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Austurríkis innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Ljóst er að austurrísk stjórnvöld bera ábyrgð á afgreiðslu umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda hann til Austurríkis með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.


Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                Sandra Hlíf Ocares


 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum