Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 63/2015 Úrskurður 28. ágúst 2015

Mál nr. 63/2015                       Eiginnafn:    Anya

 


Hinn 28. ágúst 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 63/2015, en erindið barst nefndinni 18. ágúst:

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Hljóðasambandið -ya- ( og einnig -ia-) gengur gegn íslenskum hljóðskipunarreglum, hljóðið i, hvort sem það er táknað með y eða i, kemur ekki fyrir á undan a í ósamsettum orðum. Hljóðskipunarreglur teljast hluti íslenska málkerfisins og slíkur framburður bryti í bág við þær og íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið, 1. mgr., 5. gr. laganna.

Ef litið væri svo á að bókstafurinn y stæði hér fyrir j-hljóð þá væri slíkur framburður í samræmi við íslenska hljóðskipun, enda er hljóðasambandið -ja algengt. Á hinn bóginn j-hljóð aldrei táknað með bókstafnum y í íslenskri stafsetninu. Slík ritun bryti því í bág við almennar ritreglur íslensks máls, sbr. 3. málslið, 1. mgr., 5. gr. laganna.

Samkvæmt þessu er aðeins heimilt að fallast á nafnið Anya ef umbeðinn ritháttur þess telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Í athugasemd með beiðni umsækjenda er bent á að eiginnafnið Tanya sé á mannanafnaskrá en að eiginnafninu Anya hafi verið hafnað. Því er til að svara að með tilliti til fjölda nafnbera telst eiginnafnið Tanya hafa unnið sér hefð í íslensku máli, sbr. úrskurð 69/2004.

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni.

Til stuðnings við mat á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn hefur mannanafnanefnd stuðst við vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og byggðar eru á greinargerð með frumvarpi til laga um mannanöfn og eldri vinnulagsreglum. Er í reglunum byggt á því að hugtakið hefð í lögum um mannanöfn varði einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli 1703 þegar manntal var tekið fyrsta sinni. Vinnulagsreglurnar eru svohljóðandi:

1.      Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.       Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.      Það er nú borið af 10­–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.       Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.      Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.       Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.      Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands eru tvær stúlkur skráðar með eiginnafnið Anya sem uppfylla skilyrði áðurnefndra vinnulagsreglna og eru þær fæddar árin 2002 og 2006. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Eiginnafnið Anya uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og er mannanafnanefnd því samkvæmt lögum skylt að hafna því.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Anya (kvk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum