Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 556/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 556/2020

Fimmtudaginn 28. janúar 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 7. október 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. september 2020, um að synja beiðni hennar um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. júní 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 19. júní 2020 og óskaði samhliða eftir greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. júní 2020 í stað umsóknardags með vísan til þess að hún taldi sig hafa skilað umsókn þann dag. Með ákvörðun, dags. 2. september 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 100%. Beiðni kæranda um að umsókn tæki gildi 1. júní 2020 var synjað með vísan til 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. október 2020. Með bréfi, dags. 3. nóvember 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 2. desember 2020. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. desember 2020, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur 25. maí 2020 ásamt vini sínum. Þann 19. júní 2020 hafi hún hringt í Vinnumálastofnun til að vera viss um að allt væri í lagi með umsóknina. Kærandi hafi þá fengið þær upplýsingar að engin umsókn hafi borist, hún þurfi að sækja um aftur og útskýra af hverju hún hafi ekki sótt um 1. júní 2020 þegar hún hafi orðið atvinnulaus. Í kjölfarið hafi umsókn kæranda verið samþykkt en einungis frá 19. júní 2020. Eftir samtöl við Vinnumálastofnun og afhendingu frekari gagna hafi umsókn um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. júní 2020 verið synjað með vísan til þess að bætur séu greiddar frá umsóknardegi. Kærandi skilji það vel en hennar tilfelli sé öðruvísi, hún hafi sótt um 25. maí 2020 en sú umsókn hafi ekki farið í gegn. Þess vegna hafi hún sótt aftur um þann 19. júní 2020. Að mati kæranda eigi hún rétt á greiðslu fyrir tímabilið 1. til 19. júní 2020 þar sem hún hafi sannað að hún hafi sótt um og hætt að vinna 1. júní 2020.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar er vísað til 1. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem fram komi að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun bendir á að það sé grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt til stofnunarinnar. Stofnunin telji sér ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur lengra aftur en frá dagsetningu umsóknar atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi verið skráð í minnkað starfshlutfall þann 17. apríl 2020, þ.e. á hlutabótaleiðinni, en þann 25. maí 2020 hafi hún afskráð sig af hlutabótum. Kærandi virðist hafa opnað umsókn um atvinnuleysisbætur þann 25. maí 2020 en virðist ekki hafa lokið við gerð hennar. Þegar kæranda hafi orðið það ljóst með símtali til stofnunarinnar 19. júní 2020 hafi hún gert nýja umsókn og sent inn til stofnunarinnar. Þar sem Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn kæranda þann 19. júní 2020 telji stofnunin að kærandi eigi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. fortakslaust skilyrði laga nr. 54/2006, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt frá 1. júní 2020.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja vottorð fyrrverandi vinnuveitanda, staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Kærandi opnaði umsókn um atvinnuleysisbætur þann 25. maí 2020 en lauk ekki við gerð hennar og sendi stofnuninni því ekki umsóknina. Þegar kæranda varð það ljóst, eða 19. júní 2020, gerði hún nýja umsókn og sendi inn til stofnunarinnar. Því er ljóst að Vinnumálastofnun tók við umsókn kæranda 19. júní 2020 og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006. Ákvæði 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna eru fortakslaus að þessu leyti. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. september 2020, um að synja beiðni A, um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. júní 2020, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum