Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtbo%C3%B0sm%C3%A1la

Mál nr. 16/2020. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 11. maí 2020
í máli nr. 16/2020:
Ístak hf.
gegn
Vegagerðinni og
Óskataki ehf.

Lykilorð
Stöðvun aflétt. Fjárhagslegt hæfi. Ársreikningar.

Útdráttur
Fallist var á kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun útboðs um vegagerð yrði aflétt þar sem skilyrði 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup voru ekki talin uppfyllt.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 30. apríl 2020 kærir Ístak hf. útboð Vegagerðarinnar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. Vg2020-023 auðkennt „Suðurlandsvegur, tvöföldun, Vesturlandsvegur - Bæjarháls“. Kærandi krefst þess að hið kærða útboð verði stöðvað um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru. Þá er þess krafist að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Óskataks ehf. í hinu kærða útboði. Jafnframt er krafist málskostnaðar. Í þessum hluta málsins verður tekin afstaða til kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun hins kærða innkaupaferlis, sem komst á með kæru í máli þessu, verði aflétt.

Í mars 2020 óskaði varnaraðili eftir tilboðum í tvöföldun Suðurlandsvegar frá Vesturlandsvegi að Bæjarhálsi. Í grein 1.8 í útboðsgögnum komu fram kröfur til fjárhagslegs hæfis bjóðenda. Þar var meðal annars gerð sú krafa að eigið fé bjóðenda skyldi vera jákvætt samkvæmt ársreikningi „endurskoðuðum af löggiltum endurskoðanda“ og skyldi ársreikningurinn vera án athugasemda um rekstrarhæfi. Í grein 1.9 kom fram að velja skyldi tilboð á grundvelli lægsta verðs. Tilboð voru opnuð 21. apríl 2020. Fimm tilboð bárust í útboðinu og var tilboð Óskataks ehf. lægst en tilboð kæranda næstlægst að fjárhæð. Af gögnum málsins verður ráðið að varnaraðili hafi kallað eftir endurskoðuðum ársreikningum frá Óskataki ehf. með tölvubréfi 22. apríl 2020. Samdægurs sendi kærandi varnaraðila tölvubréf þar sem hann lýsti efasemdum um að Óskatak ehf. uppfyllti kröfur útboðsgagna um jákvætt eigið fé samkvæmt endurskoðuðum ársreikningi. Með tölvubréfi 27. apríl 2020 ítrekaði varnaraðili beiðni um að Óskatak ehf. legði fram endurskoðaða ársreikninga. Óskatak ehf. sendi umrædda ársreikninga með tölvubréfi síðar þennan sama dag. Með bréfi 28. apríl 2020 var bjóðendum tilkynnt að varnaraðili hygðist leita samninga um verkið við Óskatak ehf. á grundvelli tilboðs þess og að áformað væri að bindandi samningur yrði gerður að fimm dögum liðnum.

Kærandi byggir á því ársreikningur Óskataks ehf. fyrir árið 2018 sé án endurskoðunar og könnunar, og uppfylli því ekki skilyrði útboðsgagna sem gert hafi kröfu um að sýnt væri fram á jákvætt eigið fé bjóðenda með ársreikningum endurskoðuðum af löggiltum endurskoðanda. Því hafi varnaraðila verið óheimilt að taka tilboði fyrirtækisins.

Varnaraðili vísar til þess að Óskatak ehf. hafi lagt fram óendurskoðaða ársreikninga með tilboði sínu sem hafi sýnt að fyrirtækið fullnægði kröfum útboðsgagna um fjárhagslegt hæfi. Kallað hafi verið eftir endurskoðuðum ársreikningum eftir opnun tilboða á grundvelli 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Hafi endurskoðaðir ársreikningar verið lagðir fram að liðnum þremur virkum dögum frá því að fyrst var kallað eftir þeim. Þar sem Óskatak ehf. hafi átt lægsta tilboðið og fullnægt kröfum útboðsgagna hafi varnaraðila verið skylt að taka tilboði fyrirtækisins.

Niðurstaða

Í máli þessu krefst kærandi þess að hið kærða útboð verði stöðvað þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru. Kæra barst á biðtíma samkvæmt 1. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og verður að miða við að hún hafi haft í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sbr. 1. mgr. 107. gr. sömu laga. Í ákvörðun þessari verður því tekin afstaða til þeirrar kröfu varnaraðila að sjálfkrafa stöðvun hins kærða útboðs verði aflétt, sbr. 2. mgr. 107. gr. laganna.

Það liggur fyrir að Óskatak ehf. lagði fram með tilboði sínu óendurskoðaða ársreikninga vegna áranna 2017 og 2018, en gerð var krafa um að ársreikningar hefðu verið endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda í grein 1.8 í útboðsgögnum. Gögn málsins bera með sér að varnaraðili hafi óskað eftir endurskoðuðum ársreikningum með tölvubréfum 22. og 27. apríl 2020 og að Óskatak ehf. hafi sent umrædda ársreikninga með tölvubréfi síðarnefnda daginn. Telja verður að varnaraðila hafi verið heimilt að kalla eftir umræddum gögnum og taka tillit til þeirra samkvæmt 5. mgr. 66. gr. laga um opinber innkaup, enda verður ekki talið að með því hafi grundvallarþáttum í tilboði Óskataks ehf. verið breytt eða samkeppni raskað. Eins og mál þetta liggur fyrir nú verður því að miða við að Óskatak ehf. hafi fullnægt kröfum útboðsgagna um fjárhagslegt hæfi og að varnaraðila hafi verið rétt að taka ákvörðun um að ganga til samninga við fyrirtækið á grundvelli tilboðs þess. Hefur kærandi því ekki leitt verulegar líkur að broti gegn lögum um opinber innkaup við framkvæmd útboðsins sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila, sbr. 2. mgr. 107. gr., sbr. 1. mgr. 110. gr. laga um opinber innkaup. Verður því fallist á kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun hins kærða útboðs, sem komst á með kæru í máli þessu, verði aflétt.

Ákvörðunarorð:

Stöðvun útboðs varnaraðila, Vegagerðarinnar, nr. Vg2020-023 auðkennt „Suðurlandsvegur, tvöföldun Vesturlandsvegar - Bæjarháls“, er aflétt.

Reykjavík, 11. maí 2020

Ásgerður Ragnarsdóttir

Sandra Baldvinsdóttir

Auður Finnbogadóttir




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum