Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 274/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 8. maí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 274/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23040058

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […]

 

Málsatvik

Hinn 5. apríl 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. janúar 2023, um að umsókn einstaklings er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Palestínu, um alþjóðlega vernd hér á landi, yrði ekki tekin til efnismeðferðar og að hann yrði endursendur til Spánar. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 11. apríl 2023 og 17. apríl 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 24. apríl 2023 barst kærunefnd greinargerð aðila.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hann fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Aðili byggir á því að hann hyggist höfða mál fyrir íslenskum dómstólum til ógildingar á úrskurði kærunefndar frá 5. apríl 2023. Aðili telji að aðstæður hans á Spáni verði ekki þess eðlis að hann hafi tækifæri eða getu til að gæta hagsmuna sinna hér á landi. Það sé aðila þess vegna nauðsynlegt að geta dvalist hér á landi þar til dómstólar hafi fengið tækifæri til að fjalla um málsástæður tengdar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi. Aðili vísar til meginreglunnar um réttláta málsmeðferð og telur hana ekki tryggða nema hann geti gætt hagsmuna sinna hér á landi. Aðili telji verulegt álitamál uppi þegar komi að málsmeðferð stjórnvalda á umsókn hans um alþjóðlega vernd. Álitamál sem hafi áhrif umfram hans eigið mál. Aðili vísar til túlkunar kærunefndar á hugtakinu sérstök tengsl í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga en aðili telji að kærunefnd og Útlendingastofnun hafi ákveðið að þrengja mjög þennan möguleika. Aðila sé ekki kunnugt um að nokkur lagabreyting eða reglugerðarbreyting skýri þessa breyttu framkvæmd. Aðili vísar til þess að þegar stjórnvöld ákveði að eigin frumkvæði að breyta lagaframkvæmd beri þeim að fylgja ákveðnum meginreglum stjórnsýsluréttarins svo aðilar mála geti gætt hagsmuna sinna, þ. á m. verði stjórnvöld að gæta að réttmætum væntingum aðila. Þá þurfi stjórnvöld einnig að gæta að jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 en reglan seti stjórnvöldum þröngar skorður þegar komi að breyttri framkvæmd. Að lokum verði stjórnvöld að gæta að því hvaða málefnalegu sjónarmið þau geti stuðst við, þannig sé stjórnvöldum ekki frjálst að velja sér hvaða sjónarmið sem þeim sýnist við túlkun laga og þá sérstaklega ekki þegar ákvörðun snýr að því að þrengja réttindi.

Aðili telur að afar brýn álitaefni tengd réttmætum væntingum, jafnræðisreglu og málefnalegum sjónarmiðum hafi komið upp við þessa nýju framkvæmd. Aðili telji að uppi sé nokkur óvissa um túlkun og svigrúm stjórnvalda í þessu sambandi sem mikilvægt sé að dómstólar veiti leiðbeiningar um. Þannig hafi væntanlegt dómsmál aðila mikla þýðingu.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hans að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hann skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hans til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hann höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hann sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hans fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem honum eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017 og E-6830/2020.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hans um efnismeðferð. Fyrir liggur að stjórnvöld í viðtökuríkinu hafa viðurkennt skyldu sína til þess að taka við aðila og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að honum sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar bera stjórnvöld viðtökuríkis ábyrgð á umsókn aðila um alþjóðlega vernd og er skylt að tryggja að hann verði ekki endursendur í slíkar aðstæður annars staðar. Í samræmi við framangreint er það mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hann aftur til viðtökuríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram varðandi málsmeðferð og efnislegt mat kærunefndar í málinu séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Í greinargerð aðila kemur fram að hann telji að um sé að ræða nýja framkvæmd Útlendingastofnunar og kærunefndar þegar komi að mati á sérstökum tengslum. Kærunefnd fellst ekki á með aðila að um nýja framkvæmd sé að ræða. Kærunefnd tekur fram að við mat á sérstökum tengslum fer fram einstaklingsbundið mat í hverju tilviki fyrir sig. Aðili færði ekki fram frekari rökstuðning fyrir framangreindri fullyrðingu því telur kærunefnd ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemd aðila.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hans.

 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

 

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum