Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 95/2018 Úrskurður 13. desember 2018

Mál nr. 95/2018                    Millinafn:       Carlsberg

 

 

 

Hinn 13. desember 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 95/2018 en erindið barst nefndinni 22. nóvember.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • ·nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má eki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Millinafnið Carlsberg er ekki dregið af íslenskum orðstofni og uppfyllir því ekki skilyrði 6. gr. laga um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Carlsberg er hafnað.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum