Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A9lags%C3%BEj%C3%B3nusta%20og%20h%C3%BAsn%C3%A6%C3%B0ism%C3%A1l

Nr. 77/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 77/2018

Fimmtudaginn 14. júní 2018

A

gegn

Hafnarfjarðarbæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 23. febrúar 2018, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar um að synja henni um fjárhagsaðstoð.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála vísar kærandi til þess að hún sé stödd á meðferðarheimili og hafi sótt um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarbæ. Samþykkt hafi verið að greiða 100.000 kr. meðferðargjald en einungis 30.000 kr. í vasapeninga til hennar á mánuði. Í tölvupósti starfsmanns Hafnarfjarðarbæjar til úrskurðarnefndarinnar kemur fram að formleg ákvörðun hafi ekki verið tekin í máli kæranda, hún hafi einungis spurst fyrir og fengið upplýsingar í síma. Kærandi hafi síðan sent samhljóða kæru til sveitarfélagsins og tekin hafi verið ákvörðun um að veita henni fjárhagsaðstoð að fullu.

II.  Niðurstaða

Samkvæmt 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal nefndin úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. Þannig er grundvöllur þess að unnt sé að leggja fram kæru til úrskurðarnefndar að fyrir liggi stjórnvaldsákvörðun. Um stjórnvaldsákvörðun er að ræða þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um rétt eða skyldur manna í skjóli stjórnsýsluvalds, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Samkvæmt gögnum málsins lá ekki fyrir stjórnvaldsákvörðun í máli kæranda þegar kæra barst úrskurðarnefndinni. Þá er ekki að sjá að uppi sé ágreiningur í málinu. Með vísan til þess er kæru vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum