Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 85/2022 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 85/2022

Fimmtudaginn 28. apríl 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 3. febrúar 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. febrúar 2022, um að samþykkja umsókn hans um atvinnuleysisbætur frá og með umsóknardegi.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 14. janúar 2022. Með ákvörðun, dags. 2. febrúar 2022, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 91%. Atvinnuleysisbætur voru greiddar frá umsóknardegi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. febrúar 2022. Með bréfi, dags. 11. febrúar 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 8. mars 2022, og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. mars 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi verið atvinnulaus frá áramótum en hafi ekki skráð sig fyrr en 14. janúar 2022 vegna þess að hann hafi fengið vilyrði fyrir vinnu sem síðan hafi ekkert orðið af. Hann hafi frestað því að skrá sig atvinnulausan og vonast til að ekki kæmi til þess. Honum þyki fúlt að vera refsað fyrir að reyna að komast hjá því að fara á bætur. Kærandi óski því eftir að fá fullar bætur frá 1. janúar 2022 í stað 14. janúar 2022.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 14. janúar 2022. Með erindi, dags. 2. febrúar 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 91%. Atvinnuleysisbætur hafi verið greiddar frá umsóknardegi.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að samþykkja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá og með umsóknardegi. Kærandi geri kröfu um að atvinnuleysisbætur til hans verði greiddar frá og með 1. janúar 2022.

Í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar komi fram að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslum atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla teljist hluti tímabilsins. Hið sama eigi við þegar greiddar séu hlutfallslegar atvinnuleysisbætur, sbr. 17. eða 22. gr. Í athugasemdum við 29. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Eðli máls samkvæmt sé það grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt til stofnunarinnar. Stofnunin telji sér ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur lengra aftur en frá dagsetningu umsóknar atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur. Ljóst sé að Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn kæranda þann 14. janúar 2022 og því telji stofnunin að kærandi eigi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæði 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna séu fortakslaus að þessu leyti, sbr. fyrri úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála í málum nr. 394/2020 og 472/2021. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi eigi fyrst rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga frá 14. janúar 2022 og að hafna beri kröfu kæranda um geiðslur aftur fyrir umsóknardag.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að samþykkja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá og með umsóknardegi þann 14. janúar 2022. Kærandi hefur farið fram á að fá greiddar atvinnuleysisbætur frá og með 1. janúar 2022 með vísan til þess að hann hafi orðið atvinnulaus þá.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

„Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.“

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur, nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun tók við umsókn kæranda 14. janúar 2022 og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. febrúar 2022, um að samþykkja umsókn A, um atvinnuleysisbætur frá og með umsóknardegi, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum