Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 47B/2019 úrskurður 15. júlí 2019

Mál nr. 47B/2019                  Endurupptökubeiðni

                                               

Eiginnafn:       Bentley

 

 

 

Mannanafnanefnd hefur borist erindi frá XXX, dags. 1. júlí 2019, þar sem hún óskar eftir endurupptöku máls 47/2019 Bentley (kk.) vegna nýlegra breytinga á lögum, nr. 45/1996, um mannanöfn. Með úrskurði mannanafnanefndar í fyrrgreindu máli 11. júní sl. var umsókn um eiginnafnið Bentley (kk.) hafnað þar sem nefndin taldi að karlmannsnafnið Bentley uppfyllti ekki skilyrði 2. málsl. 1. mgr. 5. gr. mannanafnalaga sem segir að nýtt eiginnafn megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Í úrskurðinum segir m.a.: „Í íslenskum mannanöfnum er almenna reglan sú að nöfn sem enda á –ey eru kvenmannsnöfn. Þess vegna telst karlmannsnafnið Bentley brjóta í bága við íslenskt málkerfi.“

Með nýjum lögum um kynrænt sjálfræði, sem samþykkt voru 18. júní sl. og tóku gildi 5. júlí sl., var 2. mgr. 5. gr. mannanafnalaga felld niður, en þetta ákvæði hljóðaði svo: „Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.“ Breytingin hefur í för með sér að hætt verður að flokka eiginnöfn í opinberri mannanafnaskrá sem kvenmannsnöfn og karlmannsnöfn. Með tilliti til 2. málsl. 1. mgr. 5. gr., um að nafn megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi, þá leiðir af fyrrgreindum lagabreytingum að hvert það nafn, sem samræmist almennum reglum íslensks máls um annaðhvort karlmannsnöfn eða kvenmannsnöfn, telst eftir breytingarnar uppfylla fyrrgreint ákvæði mannanafnalaga.

Í ljósi þess að fyrrgreindar breytingar á mannanafnalögum, sem samþykktar voru mjög stuttu eftir úrskurð mannanafnanefndar í máli 47/2019 frá 11. júní sl., hafa greinilega þýðingu fyrir niðurstöðu í málinu telur nefndin skilyrði fyrir endurupptöku málsins uppfyllt. Nýr úrskurður í málinu fylgir hér á eftir:

Hinn 15. júlí 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 47B/2019, en erindið barst nefndinni 1. júlí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Bentley tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Bentleyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Bentley er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum