Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 87/2018 Úrskurður 20. nóvember 2018

Mál nr. 87/2018                    Eiginnafn:     Yrena (kvk.)

 

 

Hinn 20. nóvember 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 87/2018 en erindið barst nefndinni 1. nóvember.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Eiginnafnið Yrena (kvk.), sem ritmynd nafnsins Írena, er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og ekki er hefð fyrir þessum rithætti. Nafnið uppfyllir þannig ekki skilyrði 5. gr. laga nr. um mannanöfn og er hafnað.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Yrena (kvk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum