Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 64/2018 Úrskurður 14. ágúst 2018

Mál nr. 64/2018                    Millinafn:       Maí

 

 

 

 

Hinn 14. ágúst 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 64/2018 en erindið barst nefndinni 12. júlí.

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Maí telst dregið af íslenskum orðstofni, sbr. mánaðarheitið maí, og uppfyllir að öðru leyti skilyrði 6. gr. laga um mannanöfn.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Maí er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum