Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 24/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 24/2023

Fimmtudaginn 23. mars 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 12. janúar 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. nóvember 2022, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. apríl 2022 og var umsóknin samþykkt 3. maí 2022. Þann 4. nóvember 2022 var kærandi boðaður á námskeið hjá Vinnumálastofnun sem fara ætti fram 8. nóvember 2022. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kærandi hvorki mætti á námskeiðið né boðaði forföll. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 14. nóvember 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki mætt á boðað námskeið. Skýringar bárust frá kæranda daginn eftir. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. nóvember 2022, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Þann 16. nóvember 2022 barst Vinnumálastofnun læknisvottorð þar sem fram kom að kærandi hefði verið með öllu óvinnufær vegna sjúkdóms dagana 7. til 9. nóvember 2022. Í kjölfarið óskaði kærandi eftir endurumfjöllun á ákvörðun Vinnumálastofnunar um viðurlög. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. nóvember 2022, var kæranda tilkynnt að ákvörðunin hefði verið tekin til endurumfjöllunar og í ljósi þess að kærandi hefði ekki tilkynnt tafarlaust um veikindi sín væri bótaréttur hans felldur niður á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. janúar 2023. Með bréfi, dags. 13. janúar 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 9. febrúar 2023 og var hún kynnt kæranda sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að honum finnist Vinnumálastofnun ekki virða það að hann sé með ADHD og kvíða en einnig les- og skrifblindu. Kærandi eigi mjög erfitt með að skrifa útskýringar á blað. Það sé verið að refsa honum fyrir að vera með andlega fötlun og lítið sé gert úr því að hann sé með ADHD sem sé ekki alltaf létt að lifa með. Kærandi hafi ekki alltaf fulla stjórn þegar hann sé ekki á lyfjun eins og þegar hann hafi orðið veikur mánudaginn 7. nóvember 2022. Þá hafi hann ekki tekið nein lyf því að hann hafi bara sofið í þrjá daga.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 1. apríl 2022. Með erindi, dags. 3. maí 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 4. nóvember 2022 hafi kærandi verið boðaður á vinnustofu fyrir ferilskrárgerð á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík þann 8. nóvember klukkan 11:00. Kærandi hafi verið boðaður á umrætt námskeið því að hann hafi ekki verið með skráða ferilskrá í kerfum stofnunarinnar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans yrðu stöðvaðar. Umrædd boðun hafi verið bæði send á uppgefið netfang kæranda og með smáskilaboðum í síma. Þá hafi tilkynning einnig verið send á „Mínar síður“ kæranda. Kærandi hafi síðar verið minntur á umrætt námskeið með tölvupósti, tilkynningu á „Mínum síðum“ og smáskilaboðum í síma þann 7. nóvember 2022. Aftur hafi verið ítrekað fyrir kæranda að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kærandi hafi hins vegar hvorki mætt á umrætt námskeið né boðað forföll.

Með erindi, dags. 14. nóvember 2022, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs námskeiðs. Áréttað hafi verið hann gæti þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysistrygginga hefði hann hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna. Vinnumálastofnun hafi borist skýringar kæranda þann 15. nóvember 2022. Kærandi hafi sagst hafa gleymt að tilkynna forföll á námskeiðið sökum veikinda.

Með erindi, dags. 21. nóvember 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hafi hvorki mætt né boðað forföll á umrætt námskeið. Vinnumálastofnun hafi borist læknisvottorð, dagsett 16. nóvember 2022. Þar segi að kærandi hafi verið með öllu óvinnufær vegna sjúkdóms dagana 7. til 9. nóvember 2022. Þann 23. nóvember 2022 hafi kærandi óskað endurumfjöllunar á ákvörðun Vinnumálastofnunar um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi sagst hafa verið veikur og gleymt að láta Vinnumálastofnun vita að hann myndi forfallast á umrætt námskeið. Kærandi hafi jafnframt greint frá því að hann væri með athyglisbrest en sökum veikindanna hefði hann ekki tekið lyfin sín. Lyfin haldi honum vakandi en hann hafi þurft að hvílast og ná heilsu að nýju.

Með erindi, dags. 25. nóvember 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að ákvörðun stofnunarinnar hefði verið tekin til endurumfjöllunar með tilliti til nýrra gagna. Í ljósi þess að kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun tafarlaust um veikindi sín væri það hins vegar nú niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skyldi sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Sama dag, eða þann 25. nóvember 2022, hafi kærandi óskað eftir að ákvörðun stofnunarinnar yrði tekin til endurumfjöllunar að nýju. Kærandi hafi áréttað að hann hefði sökum veikinda ekki tekið lyf sín. Hann hafi af þeirri ástæðu sofið í þrjá daga og ekki haft rænu á að hafa samband við Vinnumálastofnun. Hann hafi hringt í Vinnumálastofnun í kjölfar þess að honum hafi borist erindi stofnunarinnar, dags. 14. nóvember 2022, og fengið þau svör frá starfsmanni stofnunarinnar að nóg væri að afhenda stofnuninni læknisvottorð. Kærandi hafi óskað eftir því að honum yrði sýnt tillit. Með erindi, dags. 28. nóvember 2022, hafi kæranda verið greint frá því að ákvörðun stofnunarinnar hefði verið tekin til endurumfjöllunar. Það væri hins vegar mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hans frá 25. nóvember 2022, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist í máli hans.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðað námskeið þann 8. nóvember 2022. Kærandi hafi veitt þær skýringar að hann hafi ekki mætt sökum veikinda. Meðal gagna í máli þessu sé jafnframt læknisvottorð, dags. 16. nóvember 2022, þar sem fram komi að kærandi hafi verið með öllu óvinnufær dagana 7. til 9. nóvember 2022.

Með ákvörðun, dags. 25. nóvember 2022, hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindi sín án ástæðulausrar tafar. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Þannig sé meðal annars í 3. mgr. 9. gr. laganna kveðið á um að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum. Upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé einnig ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar sé atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði.

Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum þeirra að öðru leyti samkvæmt 1. mgr. 14. gr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segi í 4. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindi sín fyrr en stofnunin hafi sjálf leitað eftir skýringum á fjarveru hans á námskeið hjá stofnuninni, eða rúmlega viku eftir að námskeið hafi farið fram. Að mati Vinnumálastofnunar geti tilkynningar um veikindi sem berist stofnuninni mörgum dögum eftir upphaf veikinda ekki talist fullnægjandi tilkynningar í skilningi 14. gr. laganna, enda sé sérstaklega áréttað í 2. mgr. og 4. mgr. 14. gr. að tilkynna beri um tilfallandi veikindin án ástæðulausrar tafar. Jafnframt árétti Vinnumálastofnun að kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um veikindi sín af sjálfsdáðum heldur hafi það ekki verið fyrr en Vinnumálastofnun hafi óskað eftir ástæðum þess að hann hafi ekki mætt á umrætt námskeið sem stofnuninni hafi borist þær skýringar að hann hefði verið óvinnufær vegna sjúkdóms.

Í ljósi þess að kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindi sín án ástæðulausrar tafar hafi hann verið beittur viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi veitt þær skýringar að hann hafi í veikindum sínum ekki tekið lyf sín við athyglisbresti en það hafi haft áhrif á getu hans til að skipuleggja tíma sinn. Af þeim sökum hafi hann ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrr um veikindin sín. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Það að kærandi glími við athyglisbrest valdi því ekki að skyldur hans samkvæmt lögunum falli niður. Kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um veikindi sín fyrr en rúmri viku eftir upphaf þeirra og ekki fyrr en stofnunin hafi leitað eftir skýringum á því hvers vegna hann hafi ekki sinnt skyldu sinni til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum á vegum Vinnumálastofnunar. Slíkt uppfylli augljóslega ekki áskilnað 2. mgr. og 4. mgr. 14. gr. um að tilkynna beri veikindi án ástæðulausrar tafar. Af þeim sökum sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kæranda beri að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki á boðað námskeið hjá Vinnumálastofnun vegna veikinda. Þá liggur fyrir að kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um veikindin fyrr en rúmri viku eftir upphaf þeirra og ekki fyrr en stofnunin hafði leitað eftir skýringum á því hvers vegna hann hafi ekki mætt á boðað námskeið.

Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki strax um veikindi sín. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um viðurlög við slíku broti. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. nóvember 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum