Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 11/2022 Úrskurður 26. janúar 2022

Mál nr. 11/2022                    Eiginnafn:     Dylan (kk.)

 

 

Hinn 26. janúar 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 11/2022 en erindið barst nefndinni 12. janúar.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Varðandi almennar ritreglur íslensks máls er vísað til auglýsinga mennta- og menningarmálaráðuneytis, nr. 695/2016 og 800/2018, um íslenska stafsetningu.

Eiginnafnið Dylan (kk.) fullnægir skilyrði nr. eitt hér að ofan, Dylans. Það uppfyllir einnig skilyrði nr. tvö þar sem það brýtur ekki í bág við íslenskt málkerfi. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. þrjú sé miðað við að nafnið sé borið fram með enskum hætti /dɪlən/ en þá væri „eðlileg íslensk stafsetning“ Dillan. Mannanafnanefnd telur hins vegar að ekki sé hægt að gefa sér þær forsendur að framburður nafnsins verði þannig.

Ritháttur nafnsins Dylan (kk.) getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem rittáknið y er ekki ritað í íslenskum orðum nema það styðjist við uppruna. Upphaflega táknaði y í íslensku hljóð sem var svipað y í dönsku og varð til við viss skilyrði. Það á ekki við um það nafn sem hér er sótt um og því ekki í samræmi við ritreglur að rita það með y. Á nafnið er því aðeins heimilt að fallast ef umbeðinn ritháttur þess telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2021 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð: 

  1.  Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
    2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
    5. Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

     

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

     

  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

     

  4. Ritun tökunafns með þeim hætti sem gjaldgengur er í veitimálinu telst hefðbundinn. Frávik eru heimil ef um er að ræða aðlögun að almennum íslenskum ritreglum. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera 10 einstaklingar, sem uppfylla skilyrði ofangreindra vinnulagsreglna, nafnið Dylan í þjóðskrá. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Nafnið uppfyllir því ekki skilyrði 1. liðar vinnulagsreglnanna. Eiginnafnið Dylan er af erlendum uppruna, komið úr velsku, og tíðkast rithátturinn Dylan í velsku og einnig í ensku. Nafnið telst því uppfylla skilyrði 4. liðar ofangreindra vinnulagsreglna.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dylan (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum