Hoppa yfir valmynd
%EF%BF%BD%EF%BF%BDrskur%EF%BF%BD%EF%BF%BDarnefnd%20um%20lei%EF%BF%BD%EF%BF%BDr%EF%BF%BD%EF%BF%BDttingu%20ver%EF%BF%BD%EF%BF%BDtrygg%EF%BF%BD%EF%BF%BDra%20fasteignave%EF%BF%BD%EF%BF%BDl%EF%BF%BD%EF%BF%BDna

Úrskurður nr. 324/2015

ÚRSKURÐUR ÚRSKURÐARNEFNDAR UM LEIÐRÉTTINGU VERÐTRYGGÐRA FASTEIGNAVEÐLÁNA

 nr. 324/2015

Ár 2015, fimmtudaginn 18. júní, er tekið fyrir mál nr. 328/2015; kæra A, dags. 19. mars 2015. Í málinu úrskurða Eva Dís Pálmadóttir, Ingi Tryggvason og Kristján Jónasson. Upp er kveðinn svofelldur

 

ú r s k u r ð u r :

I.

Málavextir eru þeir að kærandi sótti um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána þann 20. maí 2014. Kæranda var birt ákvörðun um útreikning leiðréttingarfjárhæðar og ráðstöfun hennar sitt í hvoru lagi. Útreiknuð leiðréttingarfjárhæð kæranda var 924.109 kr. og var sú fjárhæð birt henni 11. nóvember 2014.

Með kæru, dags. 19. mars 2015, er kærð fjárhæð leiðréttingar, sbr. 9. gr. laga nr. 35/2014, um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána og framkvæmd leiðréttingar, sbr. 11. gr. sömu laga. Í kæru mótmælir kærandi því að fyrrum sambýlismaður hennar eigi rétt á 50% leiðréttingarinnar þar sem einungis kærandi hafi alla tíð verið eini skuldari og greiðandi af lánum sem hvíli á þeirri fasteign sem leiðréttingin byggir á. Með kæru kæranda fylgdi með bréf þar sem fram kom sambærilegur rökstuðningur fyrir kæru hennar og jafnframt tók kærandi þar fram að hún hafi slitið sambúð við fyrrverandi sambýlismann sinn árið 2010. Í bréfinu lýsti kærandi jafnframt furðu sinni á því að einstaklingur gæti átt rétt á 50% leiðréttingu þegar lán hafi verið óskuldbindandi gagnvart honum og jafnframt benti kærandi á að mótsögn fælist í því að í niðurstöðu leiðréttingarinnar væri hægt að skilgreina aðila sem sambúðaraðila á grundvelli niðurstöðu leiðréttingar en ekki sem sambúðaraðila á grundvelli umsóknar.       

 

II.

Ágreiningsefni máls þessa snýr að fjárhæð leiðréttingar. Samkvæmt forsendum ríkisskattstjóra var kærandi á tímabilinu 1. janúar 2008 til 31. desember 2009, þ.e. öllu leiðréttingartímabili 1. gr. og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 35/2014, í sambúð með B. Samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár Íslands hófst formleg sambúð ekki fyrr en í byrjun októbermánaðar 2008. Fjárhæð leiðréttingar fyrrverandi sambýlismanns kæranda er ekki til umfjöllunar í máli þessu.

Ljóst er að leiðrétting kæranda miðast við að tilkall hennar til leiðréttingar lána hafi verið 50% vegna sambúðar eða 1.164.064 kr. Frá þeirri fjárhæð dragast frádráttarliðir, sbr. 8. gr. laga nr. 35/2014, samtals að fjárhæð 239.955 kr. Nánar tiltekið er um að ræða sérstaka vaxtaniðurgreiðslu, sem ekki hefur sætt sérstökum andmælum af hálfu kæranda. Ákvörðuð leiðréttingarfjárhæð kæranda er því 924.109 kr.

Í 3. gr. laga nr. 35/2014 er fjallað um afmörkun leiðréttingar samkvæmt lögunum. Þar segir í 2. mgr. að leiðrétting samkvæmt lögunum taki til heimila, þ.e. einstaklinga, hjóna og sambýlisfólks sem uppfyllti skilyrði til samsköttunar innan leiðréttingartímabils skv. 1. mgr. Taki leiðrétting til áhvílandi lána á sameiginlegu heimili hjóna eða sambýlisfólks, óháð því hvor aðilinn var skráður fyrir lánunum á tímabilinu. Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 35/2014 segir að leiðrétting einstaklings og hámark hennar ráðist af hjúskapar- eða heimilisstöðu eins og hún var á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins.

Í athugasemdum við 3. gr. frumvarps, er varð að lögum nr. 35/2014, kemur fram að afmörkun og þar með tilkall til leiðréttingar byggist á nokkrum þáttum. Síðan segir: „Í fyrsta lagi afmarkast leiðrétting við ákveðið tímabil, í öðru lagi þarf að hafa verið áhvílandi verðtryggt lán á heimili á sama tímabili, í þriðja lagi er það skilyrði að vaxtagjöld af lánunum hafi verið viðurkennd sem grundvöllur útreiknings vaxtabóta. Síðastgreinda atriðið felur nánar í sér kröfu um að til lána hafi verið stofnað vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota, þ.e. til heimilishalds viðkomandi, en hvorki til útleigu, né annarra nota eða sem fjárfesting einvörðungu. Réttur til vaxtabóta hefur þannig víðtæka skírskotun í þessu sambandi því annars vegar er um að ræða staðfestingu á nýtingu láns og hins vegar afmörkun á rétti til annars vegar vaxtabóta við einstaklinga og hins vegar hjóna og sambúðarfólks óháð því hver skráður er fyrir láni á þeim tíma sem um sameiginlegt heimilishald var að ræða. Á þessum forsendum er litið svo á að tilkall til leiðréttingar vegna lána til öflunar húsnæðis til sameiginlegs heimilishalds eigi jafnt við um hjón og einstaklinga sem höfðu sambærilega fjárhagslega samstöðu vegna sambúðar óháð því hvort viðkomandi var formlega skráður fyrir lánum á því tímabili sem leiðréttingu er ætlað að taka til. Réttur eða tilkall til leiðréttingar kann þannig að ráðast af hjúskaparstöðu á tímabilinu eða innan áranna 2008–2009. Skilnaður hjóna eða samvistarslit hefur þannig ekki í för með sér brottfall réttar til leiðréttingar, enda ræðst útreikningur leiðréttingar skv. 7. gr. af stöðu lána sem hvíldu á hverjum tíma á sameiginlegu heimili á tímabilinu.“

Nánar er fjallað um útreikning leiðréttingar og ráðstöfun í 4. gr. reglugerðar nr. 698/2014, um samræmt verklag og viðmið við leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána. Þar segir í 3. mgr. að fjárhæð leiðréttingar einstaklings og hámark hennar ráðist skv. 5. mgr. 7. gr. laga nr. 35/2014 af hjúskapar- eða heimilisstöðu eins og hún var á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins, 1. janúar 2008 til 31. desember 2009. Ef breytingar hafi orðið á högum umsækjanda, einu sinni eða oftar, sbr. 1. málsl., á leiðréttingartímabilinu skuli útreikningur leiðréttingar miða við að breytingin taki gildi í sama mánuði. Í 4. mgr. segir að heildarsamtala fjárhæðar útreiknaðrar leiðréttingar hvers heimilis geti að hámarki orðið 4 milljónir kr. Við útreikning á hámarki leiðréttingar hvers heimilis skuli, eftir atvikum, skipta fjárhæð leiðréttingar í samræmi við breytingar á hjúskapar- eða heimilisstöðu hvers einstaklings á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins.

Í tilviki kæranda hefur ekki verið byggt á því að hún hafi ekki verið í sambúð á leiðréttingartímabili 1. gr., sbr. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 35/2014, þ.e. frá 1. janúar 2008 til 31. desember 2009. Við ákvörðun leiðréttingarfjárhæðar byggði ríkisskattstjóri á því að sambúð kæranda hefði varað allt leiðréttingartímabilið en samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár Íslands hóf kærandi sambúð í byrjun októbermánaðar 2008. Leiðrétting einstaklings ræðst af hjúskapar- eða heimilisstöðu eins og hún var á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins, sbr. 5. mgr. 7. gr. laga nr. 35/2014. Fjárhæð leiðréttingar og hámark hennar tekur mið af hjúskapar- og heimilisstöðu leiðréttingartímabilsins, óháð því hvor aðili var skráður fyrir leiðréttum lánum á tímabilinu og óháð því hvor er nú ábyrgur fyrir skuldum ef sambýlisfólk uppfyllir skilyrði samsköttunar. Ljóst er af skattframtölum kæranda og fyrrverandi sambýlismanni hennar að þau uppfylltu skilyrði samsköttunar á tekjuárunum 2008 og 2009. Af þessu leiðir að fyrrverandi sambýlismaður kæranda átti sjálfstæðan rétt á hluta leiðréttingar lána sem um ræðir í þessu máli meðan hann og kærandi uppfylltu skilyrði samsköttunar, sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 35/2014 og 3. mgr. 62. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Tilkall kæranda til leiðréttingarfjárhæðar er því réttilega ákvarðað 50% og er útreiknuð fjárhæð leiðréttingar kæranda því í samræmi við þau lagafyrirmæli sem um hana gilda.

Með vísan til framangreinds er ljóst að leiðréttingarfjárhæð kæranda er í samræmi við framangreind laga- og reglugerðarfyrirmæli sem um hana gilda. Ákvörðun ríkisskattstjóra verður ekki hnekkt. Kröfu kæranda er því hafnað.  

  

Ú r s k u r ð a r o r ð :

 Kröfu kæranda er hafnað


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum