Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 70/2015 Úrskurður 30. september 2015

Mál nr. 70/2015                     Eiginnafn:      Ólaf

 


Hinn 30. september 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 70/2015 en erindið barst nefndinni 25. september:

Eiginnafnið Ólaf (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ólafs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Til samanburðar má vísa til eiginnafna á mannanafnaskrá sem eru án nefnifallsendingar, s.s. Olaf, Ásberg, Erling og Rögnvald.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ólaf (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum