Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 72/2015 Úrskurður 30. september 2015

Mál nr. 72/2015                     Millinafn:       Thor

 

Hinn 30. september 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 72/2015 en erindið barst nefndinni 28. september:

Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, eru nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð í íslensku máli sem annaðhvort eiginnöfn karla eða kvenna, ekki heimil sem millinöfn. Nafnið Thor hefur verið notað sem eiginnafn karla í íslensku. Á millinafnið Thor er því ekki heimilt að fallast.

 

 

Úrskurðarorð:

Hafnað er beiðni um millinafnið Thor.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum