Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0ir%20um%20sj%C3%A1var%C3%BAtveg%20og%20fiskeldi

Ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn um úthlutun byggðakvóta.

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru [A], dags. 10. maí 2022, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 26. apríl 2022, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta á Suðureyri í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2021/2022 til bátsins [B]. Kæran var send til Fiskistofu en var framsend til ráðuneytisins með tölvubréfi Fiskistofu, dags. 25. maí 2022, sbr. 2. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

 

 

Kröfur kæranda

Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun Fiskistofu, dags. 26. apríl 2022, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2021/2022 til bátsins [B]og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta byggðakvóta til bátsins í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukæru.

 

 

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 1. apríl 2022, sem birt var á vefsíðu Fiskistofu: www.fiskistofa.is, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2021/2022 í nokkrum byggðarlögum, m.a. á Suðureyri í Ísafjarðarbæ en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 995/2021, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022. Umsóknarfrestur var til og með 15. apríl 2022. Matvælaráðuneytið hafði þá úthlutað 1.091 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Ísafjarðarbæjar samkvæmt umsókn sveitarfélagsins á grundvelli reglugerðar nr. 919/2021, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2021/2022, sem skiptust á eftirfarandi byggðarlög: Flateyri, 300 þorskígildistonn, Hnífsdalur 178 þorskígildistonn, Ísafjörður 149 þorskígildistonn, Suðureyri 192 þorskígildistonn og Þingeyri 281 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Ísafjarðarbæ með bréfi, dags. 21. desember 2021.

Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir bátinn [B] með umsókn til Fiskistofu, dags. 12. apríl 2022.

Hinn 26. apríl 2022 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta á Suðureyri í Ísafjarðarbæ ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa eða höfnun umsókna um úthlutun. Kæranda var tilkynnt að hafnað væri framangreindri umsókn um byggðakvóta. Ákvörðun Fiskistofu var byggð á því að samkvæmt a-lið 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 995/2021 verði fiskiskip að hafa gilt leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests til að koma til greina við úthlutun. Báturinn [B] hafi ekki haft almennt leyfi til fiskveiða við lok umsóknarfrests.

Þá kom þar fram að ákvörðunin væri kæranleg til matvælaráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu um ákvörðunina.

 

 

Málsástæður í stjórnsýslukæru og málsmeðferð

Með stjórnsýslukæru, dags. 10. maí 2022, kærði [A] til matvælaráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 26. apríl 2022, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2021/2022 til bátsins [B].

Í stjórnsýslukærunni segir m.a. að kærandi telji að stjórnvöld hafi átt að upplýsa hann fyrirfram ef einhver ágalli væri á umsókn hans. Kærð sé niðurstaða Fiskistofu um að hafna umsókn kæranda um byggðakvóta vegna þess að bátur kæranda hafi ekki verið með leyfi til veiða í atvinnuskyni þegar umsókninni var skilað til Fiskistofu. Engin gögn fylgdu stjórnsýslukærunni.

Með tölvubréfi, dags. 30. maí 2022, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.

Í umsögn Fiskistofu, dags. 14. júní 2022, segir að bátur kæranda hafi hvorki haft veiðileyfi á umsóknardegi þann 12. apríl 2022 né við lok umsóknarfrests þann 15. apríl 2022. Kærandi hafi sótt um strandveiðileyfi fyrir bátinn [B] 27. apríl 2022 og gildi leyfið frá og með 2. maí 2022. Fiskistofa fallist ekki á að stofnunin hafi ekki sinnt leiðbeiningar- og rannsóknarskyldu sinni við afgreiðslu málsins. Fiskistofa telji að aðilar sem stundi útgerð verði að kynna sér þær reglur sem verði að uppfylla til að eiga kost á að fá úthlutað byggðakvóta og ganga úr skugga um að skip hafi gilt veiðileyfi. Í umsóknargátt Fiskistofu sé umsækjendum ekki gert viðvart ef veiðileyfi er ekki fyrir hendi þegar sótt sé um. Breytingar hafi ekki verið gerðar á umsóknargáttinni í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis í máli nr. 10898/2021. Ástæða þess sé sú að áformað sé að breyta stafrænni stjórnsýslu Fiskistofu og þeim lausnum sem standi til boða nú verði ekki viðhaldið. Stefnt sé að því að útbúa umsóknargátt um byggðakvóta í samstarfi við Stafrænt Ísland. Í nýrri umsóknargátt sé fyrirhugað að veita nauðsynlegar leiðbeiningar og vekja athygli á hugsanlegum mistökum um leið og umsækjandi fylli út umsókn. Þó sé bent á að veiðileyfi geti verið fyrir hendi á umsóknardegi en fallið niður frá þeim tíma fram að lokum umsóknarfrests. Skip geti misst veiðileyfi s.s. vegna þvingunarúrræða eða viðurlaga Fiskistofu en einnig geti útgerðaraðilar gleymt að sækja um veiðileyfi eða veiðileyfið fallið niður, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 116/2006. Vandasamt sé að huga að þessu skilyrði með sérstökum tilkynningum eða leiðbeiningum fyrir lok umsóknarfrests en í tilfelli kæranda hafi verið um að ræða 4 daga. Fiskistofa hafi við afgreiðslu umsókna um byggðakvóta reynt eins og kostur sé að taka mið af þeim sjónarmiðum sem gerð sé grein fyrir í áliti umboðsmanns Alþingis í máli nr. 10898/2021. Með hliðsjón af fjölda umsókna og flækjustigi við úthlutun byggðakvóta sé vandkvæðum bundið að yfirfara umsóknir með hliðsjón af rannsóknar- og leiðbeiningarskyldunni áður en umsóknarfrestur líður nema þess sé óskað sérstaklega, t.d. símleiðis. Fiskistofa hafi því leiðbeint umsækjendum um að laga augljósar villur í umsóknum eftir að umsóknarfrestur er liðinn. Þar sem vandasamt geti verið að uppfylla skilyrði a-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 995/2021, þ.e. um að skip hafi leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, hafi Fiskistofa talið rétt að vekja sérstaka athygli á því skilyrði í auglýsingu sem birt var 1. apríl 2022 en þar komi fram að útgerðir séu beðnar að huga sérstaklega að því að skip verði að hafa gilt veiðileyfi við lok umsóknarfrests. Einnig hafi Fiskistofa sett saman leiðbeiningar og gátlista fyrir byggðakvóta í tengslum við afgreiðslu umsókna um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 sem birtur sé á vefsíðu Fiskistofu. Í gátlistanum á bls. 4 séu m.a. talin upp skilyrði fyrir veitingu vilyrðis fyrir byggðakvóta, m.a. að skipið hafi verið með leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests. Úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa sé úthlutun takmarkaðra gæða sem séu eftirsóknarverð og feli í sér verðmæti. Fiskistofu sé falið að úthluta byggðakvóta samkvæmt reglugerð nr. 995/2021. Samkvæmt lögmætisreglu stjórnsýsluréttarins verði ákvarðanir og athafnir Fiskistofu að eiga sér stoð í lögum og geti Fiskistofa ekki án lagastoðar eða heimildar í stjórnvaldsfyrirmælum vikið frá þeim skilyrðum sem ráðherra hafi sett. Það hafi verið mat Fiskistofu að ekki væri heimilt að úthluta byggðakvóta til báts kæranda þar sem skilyrði um veiðileyfi voru ekki uppfyllt við lok umsóknarfrests þó kærandi hafi síðar fengið strandveiðileyfi. Með hliðsjón af framangreindu telji Fiskistofa að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

Umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins fylgdu eftirtalin gögn í ljósritum: 1) Ákvörðun Fiskistofu, dags. 26. apríl 2022. 2) Yfirlýsing um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2021/2022, dags. 11. apríl 2022. 3) Frétt á vefsíðu Fiskistofu, dags. 1. apríl 2022. 4) Leiðbeiningar og gátlisti fyrir byggðakvóta, febrúar 2021.

Með bréfi, dags. 15. júní 2022, sendi ráðuneytið ljósrit af umsögn Fiskistofu til kæranda og veitti honum kost á að gera athugasemdir við umsögnina, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Frestur til þess var veittur til og með 1. júlí 2022.

Engar athugasemdir bárust ráðuneytinu frá kæranda við umsögn Fiskistofu.

 

Rökstuðningur

I.  Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 og er kærufrestur 2 vikur. Ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta er dags. 26. apríl 2022. Kæra í máli þessu barst matvælaráðuneytinu með tölvubréfi, dags. 10. maí 2022. Kæran er því komin fram innan tilskilins frests.

 

II.  Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2021/2022 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Í 1. mgr. kemur fram að á hverju fiskveiðiári sé ráðherra heimilt að ráðstafa aflamagni í óslægðum botnfiski skv. 5. mgr. 8. gr. sem hér segir: 1. Til að mæta áföllum sem fyrirsjáanleg eru vegna verulegra breytinga á aflamarki einstakra tegunda. 2. Til stuðnings byggðarlögum, í samráði við Byggðastofnun, þannig: a. Til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum eða vinnslu á botnfiski. b. Til byggðarlaga sem hafa orðið fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem hefur haft veruleg áhrif á atvinnuástand í byggðarlögunum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.

Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 995/2021, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2021/2022 sem eru: a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2021 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2021. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.

Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 995/2021.

Sett hafa verið sérstök viðbótarskilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á Suðureyri í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2021/2022 samkvæmt framangreindu ákvæði með auglýsingu nr. 381/2022, um (2.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022, sem ekki hafa áhrif á úrlausn þessa máls.

Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa á Suðureyri í Ísafjarðarbæ fyrir fiskveiðiárið 2021/2022 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, ákvæðum reglugerðar nr. 995/2021 og auglýsingu nr. 381/2022.

Eins og gerð hefur verið grein fyrir hér að framan eru í 1. gr. reglugerðar nr. 995/2021 talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2021/2022 en samkvæmt a-lið 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar eru þau m.a. að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, við lok umsóknarfrests. Báturinn [B] hafði ekki leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests um úthlutun byggðakvóta á Suðureyri sem lauk þann 15. apríl 2022 og hafði því ekki veiðileyfi á þeim tíma sem miðað er við í framangreindu ákvæði reglugerðar nr. 995/2021. Það er mat ráðuneytisins að þær ástæður sem koma fram í stjórnsýslukærunni fyrir því að báturinn hafði ekki slíkt leyfi á umræddu tímamarki geti ekki haft þýðingu fyrir niðurstöðu þessa máls.

Einnig heldur kærandi því fram að Fiskistofu hafi borið að eigin frumkvæði að upplýsa hann fyrirfram um ef ágalli væri á umsókn hans. Þar sem það hafi ekki verið gert telur kærandi að Fiskistofa ekki sinnt leiðbeiningar- og rannsóknarskyldu sinni í málinu. Bent er á að aðilum sem stunda útgerð, sem ber að uppfylla íslensk lög og stjórnvaldsfyrirmæli á sviði fiskveiðistjórnar, er skylt að kynna sér og þekkja vel þær reglur sem um útgerðina og úthlutun aflaheimilda gilda. Leiðbeiningar- og rannsóknarskylda stjórnvalds gildir um meðferð stjórnsýslumáls og eftir atvikum umsókna. Almenn lögfræðiráðgjöf um leyfismál og aðrar forsendur heimildar til að stunda atvinnustarfsemi fellur þar utan enda ekki hluti stjórnsýslumáls. Það er ekki á ábyrgð Fiskistofu að eiga frumkvæði að því að sjá til þess að einstakir aðilar eða skip uppfylli skilyrði fyrir úthlutun. Það er mat ráðuneytisins að þessar málsástæður kæranda séu haldlausar og fellst ráðuneytið ekki á að við málsmeðferð Fiskistofu hafi ekki verið gætt að leiðbeiningar- og rannsóknarskyldu samkvæmt 7. og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Þá er það mat ráðuneytisins að aðrar málsástæður kæranda í stjórnsýslukærunni og öðrum gögnum málsins geti ekki haft áhrif á úrlausn þessa máls.

Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að ekki séu skilyrði fyrir að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 26. apríl 2022, um að hafna umsókn kæranda, [A], um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2021/2022 til bátsins [B] en samkvæmt því verður ákvörðunin staðfest.

Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

 

 

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 26. apríl 2022, um að hafna umsókn kæranda, [A], um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2021/2022 til bátsins [B].

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum