Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 544/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 544/2022

Fimmtudaginn 12. janúar 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 17. nóvember 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. nóvember 2022, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 20. júlí 2022 og var umsóknin samþykkt 22. júlí sama ár. Þann 3. nóvember 2022 var kærandi boðaður í símaviðtal á vegum Vinnumálastofnunar sem fara átti fram daginn eftir. Kæranda var greint frá því að um væri að ræða úrræði sem væri skylda til að sinna og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Einnig var tekið fram að ef ekki næðist í kæranda á tilgreindum tíma gæti það valdið stöðvun greiðslna. Kærandi svaraði ekki þegar hringt var í hann á áður boðuðum tíma. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 7. nóvember 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki svarað í síma á áður boðuðum tíma. Skýringar bárust frá kæranda 15. nóvember 2022. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dagsettri sama dag, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi óskaði eftir endurupptöku málsins og með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. nóvember 2022, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun væri staðfest þar sem hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 17. nóvember 2022. Með bréfi, dags. 23. nóvember 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 1. desember 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. desember 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að ástæða þess að ekki hafi verið hægt að ná í hann símleiðis þann 4. nóvember 2022 hafi verið sú að hann hafi verið að laga til og mála í kjallara hjá frænda sínum sem búi við B. Frændi hans hafi fótbrotnað í kjölfar skíðaslyss í Austurríki og hafi af þeim sökum ekki haft tök á að sinna kjallaranum sjálfur. Hann hafi beðið kæranda um aðstoð þar sem kærandi væri atvinnulaus og nýbyrjaður í endurhæfingu.

Kærandi hafi séð smáskilaboðin frá Vinnumálastofnun og hafi búist við símhringingu en hún hafi ekki borist þar sem ekki sé símasamband í kjallaranum. Kærandi hafi ekki áttað sig á því umræddan dag að ekki væri símasamband í kjallaranum en annars hefði hann hringt og látið vita og pantað annan tíma eða verið á svæði þar sem væri símasamband. Ekki séu margir staðir þar sem ekki sé símasamband svo að kærandi hafi ekki áttað sig á því að kjallari frænda hans væri einn af þeim fáu stöðum.

Um leið og kæranda hafi borist bréf um að bætur hans yrðu lagðar niður hafi hann hringt í ráðgjafa og pantað annan tíma. Kærandi biðji um að bætur hans verði ekki felldar niður. Hann sé í endurhæfingu og sé að bíða þangað til að hann komist á lífeyri og geti ekki verið tekjulaus á meðan. Um sé að ræða klúður af hálfu kæranda og biðjist hann afsökunar á því. Ef hann missi tekjurnar sé hann í slæmum málum.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 20. júlí 2022. Með erindi, dags. 22. júlí 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Klukkan 09:40 þann 3. nóvember 2022 hafi kærandi fengið tölvupóst og smáskilaboð í farsíma sinn frá Vinnumálastofnun þar sem hann hafi verið boðaður í símaviðtal hjá stofnuninni þann 4. nóvember 2022. Í skilaboðunum hafi verið tekið fram að hringt yrði í kæranda á milli klukkan 10:00 og 10:30. Kæranda hafi verið bent á að um væri að ræða úrræði sem honum bæri skylda til að sinna og öll forföll þyrfti að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Forföll bæri að tilkynna á netfangið [email protected]. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ef ekki myndi nást í hann gæti það valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna.

Kærandi hafi ekki svarað símtölum Vinnumálastofnunar en ráðgjafi stofnunarinnar hafi reynt að hringja í farsíma kæranda. Ráðgjafinn hafi reynt að hringja í kæranda klukkan 10:02 og 10:13 en kærandi hafi svarað í hvorugt símanúmeranna sem hann hafi gefið upp til stofnunarinnar. Slökkt hafi verið á báðum farsímum kæranda.

Þann 7. nóvember 2022 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda bréf þar sem stofnunin hafi óskað eftir skýringum frá kæranda á því hvers vegna hann hafi ekki svarað þegar ráðgjafi stofnunarinnar hafi reynt að hringja í hann. Í erindi til kæranda hafi verið vakin athygli á 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í kjölfarið hafi borist skýringar frá kæranda sem hafi ekki verið metnar gildar. Vinnumálastofnun hafi fjallað um mál kæranda á fundi þann 15. nóvember 2022. Á grundvelli fyrirliggjandi gagna hafi bótaréttur kæranda verið felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hafi skilað inn frekari gögnum. Engar nýjar upplýsingar hafi borist frá kæranda um ástæðu þess að hann hafi ekki svarað símanum þegar reynt hafi verið að hafa samband við hann vegna boðaðs símaviðtals hjá stofnuninni. Fyrri ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 15. nóvember 2022 hafi því verið staðfest með bréfi, dags. 17. nóvember 2022.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslu atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hann hafi ekki sinnt boðuðu eftirliti hjá Vinnumálastofnun.

Samkvæmt a-lið 13. gr. og g-lið 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit. Samkvæmt h-lið 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi svo:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Ákvæðið eigi einnig við ef atvinnuleitandi mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma.

Fyrirliggjandi sé að kærandi hafi ekki svarað í síma í kjölfar þess að Vinnumálastofnun hafi boðað kæranda í símaviðtal á milli klukkan 10:00 og 10:30 þann 4. nóvember 2022 en honum hafi verið send boðun í símaviðtal með tölvupósti og í uppgefin símanúmer þann 3. nóvember 2022. Kærandi hafi gefið þær skýringar að þann 4. nóvember 2022 hafi hann verið að aðstoða frænda sinn í kjallara þar sem ekki hafi verið símasamband og hann hafi ekki áttað sig á að ekkert símasamband væri á staðnum.

Vinnumálastofnun hafi reynt að hafa samband við kæranda í bæði símanúmerin sem hann hafi gefið upp til stofnunarinnar og hafi tvær tilraunir verið gerðar í hvort símanúmer án árangurs. Slökkt hafi verið á báðum farsímum kæranda. Kærandi hafi þegar fengið tilkynningu um að stofnunin myndi hafa samband við hann á þessum tíma. Gera verði þær kröfur til atvinnuleitanda að þegar búið sé að boða hann í viðtal á ákveðnum tíma að hann svari símtölum Vinnumálastofnunar og gangi úr skugga um að unnt sé að ná í hann á þeim tíma sem hann sé boðaður í símaviðtal. Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum þeirra sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að með því að svara ekki boðuðu símaviðtali telji stofnunin kæranda hafa brugðist skyldum sínum samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Niðurstaða Vinnumálastofnunar sé því sú að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Afstaða Vinnumálastofnunar sé sú að ákvörðun stofnunarinnar frá 15. nóvember 2022 skuli standa.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðaður í símaviðtal á vegum Vinnumálastofnunar þann 3. nóvember 2022 sem fara átti fram þann 4. nóvember 2022 á milli klukkan 10:00 og 10:30. Kæranda var greint frá því að um væri að ræða úrræði sem skylda væri að sinna og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfangið [email protected]. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ef ekki næðist í hann á tilskildum tíma gæti það valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi hefur borið því við að hafa verið utan símasambands og því ekki haft tök á að svara símtölum frá ráðgjafa Vinnumálastofnunar.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í boðað símaviðtal hjá Vinnumálastofnun. Í framangreindri boðun var sérstaklega tekið fram á hvaða tíma símaviðtalið færi fram og kæranda hefði því átt að vera ljóst á hvaða tíma hann ætti að vera í símasambandi til að hafa tök á því að mæta í viðtalið.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. nóvember 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum