Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 193/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 5. apríl 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 193/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23020025

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Hinn 9. júní 2022 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. apríl 2022, um að taka umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Venesúela (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa henni frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 13. júní 2022.

Hinn 21. júní 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa. Hinn 22. júlí 2022 var beiðni kæranda vísað frá. Hinn 9. febrúar 2023 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra 15. febrúar 2023. Þá bárust andmæli kæranda 27. mars 2023.

Af beiðni kæranda um endurupptöku má ráða að hún byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda um endurupptöku er byggt á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hennar ábyrgð. Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 skuli taka umsókn til efnismeðferðar ef meira en 12 mánuði hafi liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs. Sé litið til stjórnsýsluframkvæmdar um framangreint ákvæði laganna hafi afgreiðsla umsóknar miðast við umsóknardag annars vegar og hins vegar þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda sé framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis. Þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir og kærandi enn stödd á Íslandi, telur hún að stjórnvöldum sé skylt að taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 8. febrúar 2022 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 8. febrúar 2023. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hennar sjálfrar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Hinn 15. febrúar 2023 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svör Útlendingastofnunar og stoðdeildar bárust kærunefnd þann sama dag. Í svari Útlendingastofnunar kom fram að Útlendingastofnun teldi að kærandi hefði ekki tafið mál sitt en vísaði á stoðdeild um frekari svör varðandi framkvæmd.

Í svari stoðdeildar kom fram að 20. október 2022 hafi stoðdeild farið í búsetuúrræði kæranda sem skráð hafi verið samkvæmt búsetuskjali til að reyna ná sambandi við hana. Þegar þangað hafi verið komið hafi enginn íbúi verið þar og ljóst að enginn byggi þarna. Stoðdeild hafi sent tölvubréf á Vinnumálastofnun en þar hafi engar upplýsingar legið fyrir um hvert hún væri flutt. Hinn 24. október 2022 hafi stoðdeild borist tölvubréf frá Vinnumálastofnun þar sem tilkynnt hafi verið hvar kærandi væri búsett. Stoðdeild hafi farið í það búsetuúrræði til að reyna ná sambandi við kæranda en hún ekki verið við. Stoðdeild hafi hringt í kæranda og hún greint frá því að vera ekki heima en ætla að vera við daginn eftir. Stoðdeild hafi síðar haft samband við kæranda og ákveðið fund í búsetuúrræði kæranda 27. október 2022, klukkan eitt. Stoðdeild hafi svo borist textaskilaboð frá kæranda þar sem hún hafi óskað eftir að fundurinn yrði færður til 28. október 2022. Hinn 28. október 2022 hafi stoðdeild farið í búsetuúrræði kæranda eins og ákveðið hefði verið en hún ekki verið heima og ekki svarað símanum. Hinn 31. október 2022 hafi stoðdeild reynt að ná í kæranda símleiðis án árangurs. Hinn 11. janúar 2023 hafi stoðdeild hringt í kæranda og hún hafi talað litla ensku en ákveðið að hún myndi hitta stoðdeild með aðstoð Language Line 17. janúar 2023 í búsetuúrræði sínu. Það hafi verið staðfest með textaskilaboðum stoðdeildar sem kærandi hafi svarað. Hinn 30. janúar 2023 hafi textaskilaboð verið send til kæranda og hún spurð hvort hún gæti hitt stoðdeild í vikunni.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 24. mars 2023, var kæranda send þau gögn sem bárust frá stoðdeild og henni veittur frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Í tölvubréfi kæranda, dags. 27. mars 2023, kemur fram að hún mótmæli því að hafa með einhverjum hætti tafið mál sitt. Í raun virðist sem eina tilraun stoðdeildar til að flytja kæranda hafi falist í því að ræða með almennum hætti við kæranda um hugsanlega brottvísun, en af gögnum málsins megi ráða að engar frekari aðgerðir hafi verið fyrirhugaðar til þess að undirbúa flutning. Kærandi byggir á því að ávallt hafi verið hægt að ná sambandi við hana símleiðis. Þegar stoðdeild hafi mætt í búsetuúrræði hennar hafi verið haft samband við hana símleiðis og hún greint frá því að vera ekki við þessa stundina. Næstu daga hafi kærandi verið í stöðugu símasambandi við stoðdeild en síðast hafi hún verið spurð 30. janúar 2023 hvort hún gæti hitt lögreglumann í þeirri viku. Þá séu engar frekari upplýsingar skráðar hjá stoðdeild vegna málsins. Aðgerðir stoðdeildar og framkvæmdin sé því ómarkviss en ekkert í málinu bendi til þess að kærandi hafi tafið mál sitt með nokkrum hætti. Það sé ekki óeðlilegt að einstaklingur í slíkri stöðu óski eftir aðstoð í samskiptum sínum við stjórnvöld og lögreglu, enda halli verulega á slíkan einstakling vegna uppruna og tungumálaörðugleika. Þá sé heldur ekki búið að leggja fram gögn sem staðfesti að kærandi hafi verið meðvituð um skyldur sínar gagnvart stjórnvöldum eða að það hafi verið búið að undirbúa flutning með einhverjum hætti, t.d. með því að bóka flugmiða eða útbúa ferðaskilríki. Kærandi telur að stoðdeild beri skylda til að tryggja sönnun um slíkt en annað myndi brjóta gegn góðum stjórnsýsluháttum. Kærandi telur að stoðdeild hafi ekki rökstutt með hvaða hætti hún á að hafa tafið mál sitt eða með hvaða hætti hún hafi komið í veg fyrir flutning sinn úr landi. Í öllu falli telji kærandi að hún hafi ekkert gert sem hafi komið í veg fyrir að íslenskum stjórnvöldum væri kleift að vísa henni frá landinu. Jafnvel þó komist væri að þeirri niðurstöðu að kærandi hafi með einhverjum hætti tafið mál sitt byggir hún á því að þær tafir séu minni háttar og óverulegur hluti málsmeðferðartímans. Kærandi vísar til dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-1545/2022 í þessu samhengi.

Af framangreindum upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild má ráða að tafir hafi orðið á framkvæmd úrskurðar kærunefndar í máli kæranda. Þrátt fyrir að einhverjar tafir kunni að hafa verið af hálfu kæranda í október þá liggur fyrir að stoðdeild aðhafðist ekki frekar í málinu fyrr en í janúar. Af bókunum stoðdeildar er ljóst að kærandi svaraði símtali stoðdeildar og voru frekari samskipti fyrirhuguð 17. janúar en ekkert er bókað um hvort sá fundur fór fram eða ekki. Verður þessi framkvæmd að teljast ófullnægjandi og miðað við gögn málsins er ekki hægt að fullyrða að kærandi hafi tafið mál sitt eftir samskipti sín við stoðdeild í janúar 2023.

Í ljósi alls framangreinds og samfelldrar dvalar kæranda hér á landi síðan hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 8. febrúar 2023, er það mat kærunefndar að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hún eigi rétt á endurupptöku mál síns, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga, og er það niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hennar.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                Gunnar Páll Baldvinsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum