Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtbo%C3%B0sm%C3%A1la

Mál nr. 26/2021. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 24. september 2021
í máli nr. 26/2021:
Ístak hf.
gegn
Nýjum Landspítala ohf. og
Ríkiskaupum

Lykilorð
Ógilt tilboð.

Útdráttur
Varnaraðilar buðu út í alútboði hönnun og byggingu bílastæða- og tæknihúss. Kærunefnd útboðsmála taldi að tilboð kæranda í útboðinu hefði ekki verið í samræmi við kröfur útboðsgagna og það hafi því verið ógilt, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Var því öllum kröfum kæranda í málinu hafnað.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 15. júlí 2021 kærði Ístak hf. alútboð Nýs Landspítala ohf. og Ríkiskaupa (hér eftir sameiginlega vísað til sem varnaraðila) nr. 21250 auðkennt „Nýr Landspítali við Hringbraut. Bílastæða- og tæknishús“. Kærandi krefst þess að ákvörðun um höfnun tilboðs kæranda í hinu kærða útboði verði felld úr gildi en að öðrum kosti verði lagt fyrir varnaraðila að auglýsa útboð á nýjan leik. Þá er óskað eftir því að kærunefnd veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila. Einnig er krafist málskostnaðar.

Varnaraðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Með greinargerð 23. júlí 2021 var þess krafist að öllum kröfum kæranda yrði hafnað og auk þess að kæranda yrði gert að greiða málskostnað. Kærandi skilaði andsvörum með tölvubréfi 2. september 2021.

Með ákvörðun kærunefndar útboðsmála 12. ágúst 2021 var kröfu kæranda, um að hið kærða útboð yrði stöðvað um stundarsakir á meðan leyst væri úr kæru, hafnað.

I

Í september 2021 auglýstu varnaraðilar eftir umsóknum til þátttöku í lokuðu alútboði um hönnun og byggingu bílastæða- og tæknihúss sem yrði hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut. Í grein 0.1.1 í forvalsgögnum kom fram að fyrir lægi tillaga að skipulagi byggingarinnar og væri stærð hennar áætluð 19.500 fermetrar sem skiptast ætti á átta hæðir, þar af þrjár hæðir neðanjarðar. Í grein 0.2.1 kom fram að gert væri ráð fyrir bílastæðum á átta hæðum hússins. Aka ætti inni í húsið á jarðhæð þannig að það yrðu þrjár hæðir af stæðum neðan jarðhæðar og fjórar ofan hennar. Í forsögn sem fylgdi forvalsgögnum kom fram að bílageymslan væri samtals á átta hæðum, þremur neðanjarðar og fimm ofanjarðar og sams konar upplýsingar komu fram í kafla um burðarvirki. Í viðauka við forvalsgögn var auk þess að finna skissur að grunnmyndum átta hæða. Þá kom einnig fram í forvalsgögnunum að það væri ætlun verkkaupa að loknu forvali að velja fimm fyrirtæki úr hópi hæfra umsækjenda til þátttöku í lokuðu útboði. Í kjölfar forvalsins voru fimm fyrirtæki valin til þátttöku í lokuðu útboði, þ.á m. kærandi.

Í apríl 2021 fór fram útboð á hönnun og byggingu umrædds húsnæðis. Í grein 0.1.1. útboðsgögnum kom fram að verkið innifæli hönnun og byggingu bílastæðahúss á átta hæðum, þar af þremur hæðum neðanjarðar. Í grein 0.3.1 kom fram að verkefnið skyldi meðal annars vinna í samræmi við forsögn byggingarinnar og nánar tilgreindar kröfulýsingar þar sem sams konar ákvæði var að finna. Í fylgigögnum útboðsgagna var einnig að finna lýsingar á tæknirýmum, m.a. hvar þau skyldu vera staðsett. Í grein 0.4.5 kom fram að við mat tilboða skyldi viðhaft „tveggja umslaga kerfi“, þar sem fyrst væri lagt mat á innsenda tillögu og að loknu mati hennar yrðu verðtilboð opnuð. Skyldi gefin einkunn fyrir bæði tillögu og verð samkvæmt nánar tilgreindum forsendum, þar sem verð gat mest gefið 70 stig en framlögð tillaga 30.

Kærandi skilaði tilboði í útboðinu og var tilboð hans lægst að fjárhæð. Með bréfi 7. júlí 2021 tilkynntu varnaraðilar að tilboð kæranda hefði ekki verið í samræmi við alútboðsgögn þar sem tillaga hans að hönnun byggingarinnar gerði ráð fyrir húsi á sjö hæðum, þar af tveimur neðanjarðar, á meðan útboðsögn hefði gert kröfu um hús á átta hæðum, þar af þremur neðanjarðar. Frávikstilboð hefðu ekki verið heimil og því væri tilboð kæranda ógilt, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Þar að auki væri fyrirkomulag tæknirýma í húsinu ófullnægjandi og dygði bersýnilega ekki, án verulegra breytinga, til að mæta þeim þörfum verkkaupa sem fram komi í útboðsgögnum. Komi þar helst til að varaaflsvél sé ekki tryggð greið leið inn og út úr tæknirými eins og mælt hafi verið fyrir um í útboðsgögnum. Tilboðið væri því ekki aðgengilegt, sbr. 2. mgr. 82. gr. laga um opinber innkaup.

II

Kærandi byggir á því að ekki hefði verið gerð krafa um það í útboðsgögnum að fyrirhugað hús skyldi vera átta hæða, þar af þrjár hæðir neðanjarðar. Þá hafi ekki komið fram að um sé að ræða kröfu sem leiði til þess að tilboð teljist ógilt sé hún ekki uppfyllt. Í forvalsskilmálum hafi komi fram að fyrir lægi tillaga að skipulagi byggingar sem væri átta hæðir og þar af þrjár neðanjarðar, en ekki hafi verið um kröfu að ræða. Af dómaframkvæmd verði ráðið að skilmálar verði að vera skýrir um slíkar kröfur svo að þær varði höfnun tilboðs. Meginmarkmiði varnaraðila um fjölda bílastæða hafi verið náð. Þá sé tilboð kæranda ekki óaðgengilegt, enda megi koma þeim vélum og tækjabúnaði sem um ræði fyrir í tæknirýmum eins og útboðsgögn hafi gert ráð fyrir.

III

Varnaraðilar byggja á því að skilmálar útboðsgagna hafi verið skýrir. Óskað hafi verið eftir tilboðum í fullnaðarhönnun og byggingu bílastæða- og tæknihús sem væri átta hæðir, þar af þrjár neðanjarðar. Tilboð kæranda hafi ekki fullnægt þessum kröfum, en það hafi gert ráð fyrir sjö hæðum, þar af tveimur neðanjarðar. Auk þess geri tillaga kæranda að hönnun hússins það að verkum að flóknara og kostnaðarsamara sé að koma nauðsynlegum tæknibúnaði fyrir en ella.

IV

Hér á undan hefur forvals- og útboðsskilmálum verði lýst, þ.á m. ákvæðum þeirra um fjölda hæða. Miða verður við að í skilmálum þessum hafi falist skýr áskilnaður um að hið útboðna bílastæða- og tæknihús skyldi vera alls átta hæðir, þar af þrjár neðanjarðar. Fyrir liggur að tilboð kæranda gerði ráð fyrir alls sjö hæðum, þar af tveimur neðanjarðar. Verður því að miða við að tilboð kæranda hafi ekki verið í samræmi við kröfur útboðsgagna að þessu leyti og hafi því verið ógilt, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Verður þegar af þessari ástæðu að hafna öllum kröfum kæranda í málinu.

Ekki eru fyrir hendi skilyrði svo unnt sé að gera kæranda að greiða málskostnað, sbr. 3. mgr. 111. gr. laga um opinber innkaup. Rétt þykir að málskostnaður falli niður.

Úrskurðarorð:

Öllum kröfum kæranda, Ístaks hf., vegna alútboðs varnaraðila, Nýs Landspítala ohf. og Ríkiskaupa nr. 21250 auðkennt „Nýr Landspítali við Hringbraut. Bílastæða- og tæknishús“, er hafnað.

Málskostnaður fellur niður.


Reykjavík, 24. september 2021


Reimar Pétursson

Kristín Haraldsdóttir

Auður Finnbogadóttir

 



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum