Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 425/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 425/2020

Fimmtudaginn 28. janúar 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 8. september 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. ágúst 2020, um að synja umsókn hennar um atvinnuleysisbætur á þeirri forsendu að umbeðin gögn hefðu ekki borist.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 8. september 2020. Með erindi, dags. 14. september 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum frá Vinnumálastofnun um stöðu á umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Svar barst 17. september 2020 þar sem fram kom að ný gögn hefðu borist frá kæranda 11. september 2020 og að umsóknin væri í endurskoðunarferli. Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 5. október 2020, var óskað eftir upplýsingum frá kæranda um stöðu umsóknar hennar. Sú beiðni var ítrekuð 10. nóvember 2020. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. ágúst 2020, um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur á þeirri forsendu að umbeðin gögn hefðu ekki borist. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun skilaði kærandi nýjum gögnum til stofnunarinnar 11. september 2020, eða eftir að kæra barst til úrskurðarnefndarinnar, og var umsóknin því tekin til endurskoðunar. Ljóst er að Vinnumálastofnun hefur því afturkallað hina kærðu ákvörðun. Úrskurðarnefndin óskaði eftir upplýsingum frá kæranda um stöðu umsóknar hennar en engin svör bárust frá henni.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum