Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 46/2014, úrskurður 20. júní 2014

Mál nr. 46/2014
Eiginnafn: Gill
Millinafn: Gill

Hinn 20. júní 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 46/2014 en erindið barst nefndinni 19. júní:

Sótt er um eiginnafnið Gill (kk.) og til vara millinafnið Gill. Eiginnafnið Gill (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Gills, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Er því fallist á nafnið sem eiginnafn og óþarft að taka afstöðu til umsóknar málsaðila til vara.

 Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Gill er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum