Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A9lags%C3%BEj%C3%B3nusta%20og%20h%C3%BAsn%C3%A6%C3%B0ism%C3%A1l

Mál nr. 392/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 392/2022

Þriðjudaginn 11. október 2022

A

gegn

Sveitarfélaginu Hornafirði

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. ágúst 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Sveitarfélagsins Hornafjarðar, dags. 2. ágúst 2022, á umsókn hans um fjárhagsaðstoð til framfærslu.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 25. júlí 2022, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir ágúst 2022. Sveitarfélagið leit svo á að umsóknin væri vegna júlímánaðar og þá til greiðslu um mánaðamót júlí og ágúst þar sem fjárhagsaðstoð er greidd eftir á. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun sveitarfélagsins, dags. 2. ágúst 2022, með vísan til þess að tekjur hans síðastliðna þrjá mánuði hefðu verið yfir viðmiðunarmörkun fjárhagsaðstoðar.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 2. ágúst 2022. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. ágúst 2022, var óskað eftir greinargerð Sveitarfélagsins Hornafjarðar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Sveitarfélagsins Hornafjarðar barst úrskurðarnefndinni 5. september 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. september 2022. Athugasemdir bárust ekki. Með tölvupósti, dags. 3. október 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir viðbótarupplýsingum frá sveitarfélaginu og fékk þær samdægurs.

 

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að umsókn hans um fjárhagsaðstoð hafi verið synjað. Hann skilji ekki hvers vegna hann eigi ekki rétt á fjárhagsaðstoð í einn mánuð á meðan hann sé á milli starfa. Kærandi vísi til þess að hann eigi engan rétt hjá Vinnumálastofnun.

III.  Sjónarmið Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Í greinargerð Sveitarfélagsins Hornafjarðar kemur fram að kærandi hafi sótt um fjárhagsaðstoð 25. júlí 2022 fyrir júlímánuð. Þau gögn sem kærandi hafi skilað inn með umsókninni geri grein fyrir tekjum síðastliðna þrjá mánuði sem hafi verið 370.000 kr. hvern mánuð. Samkvæmt reglum Sveitarfélagsins Hornafjarðar um fjárhagsaðstoð eigi viðkomandi ekki rétt þar sem hann sé yfir viðmiðunarreglum mánuðinn á undan og mánuðina þar á undan. Upphæð grunnfjárhæðar fyrir einstakling á mánuði sé 181.433 kr.

Í 7. gr. I. kafla um umsókn um fjárhagsaðstoð segi:

„Umsókn skal fylgja staðfest skattframtal vegna síðastliðins árs, yfirlit yfir allar tekjur og aðrar greiðslur til umsækjanda og maka hans þann mánuð sem umsókn er lögð fram og mánuðinn á undan, þar með taldar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, lífeyrissjóðum, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóðum stéttarfélaga eða öðrum aðilum, barnabætur, mæðra- og feðralaun og meðlög. Þegar umsækjandi er atvinnulaus skal hann framvísa skráningarskírteini frá Vinnumálastofnun er staðfestir atvinnuleysi hans.“

Í tölvupósti frá Sveitarfélaginu Hornafirði, í tilefni af fyrirspurn úrskurðarnefndarinnar, kom fram að fjárhagsaðstoð væri greidd eftir á og kærandi hafi einnig sótt um fjárhagsaðstoð vegna ágústmánaðar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er synjun Sveitarfélagsins Hornafjarðar á umsókn kæranda frá 25. júlí 2022 um fjárhagsaðstoð til framfærslu. Fyrir liggur að sveitarfélagið tók umsóknina til meðferðar sem umsókn um fjárhagsaðstoð vegna júlímánaðar.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr. Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.

Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 1. gr. reglna Sveitarfélagsins Hornafjarðar um fjárhagsaðstoð er kveðið á um inntak fjárhagsaðstoðar. Þar kemur fram í 1. mgr. að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Samkvæmt 9. gr. reglnanna skal við ákvörðun á fjárhagsaðstoð leggja til grundvallar grunnfjárhæð, sbr. 10. gr., og frá henni dregnar heildartekjur, sbr. 11. gr. Samkvæmt 10. gr. tekur fjárhagsaðstoð til einstaklings 18 ára og eldri mið af útgjöldum vegna daglegs heimilishalds og getur á árinu 2022 numið allt að 181.433 kr. á mánuði.

Samkvæmt 1. mgr. 11. gr. er með tekjum átt við allar tekjur og greiðslur til einstaklings og maka með ákveðnum undantekningum. Í 1. mgr. 11. gr. reglnanna segir svo:

„Allar tekjur einstaklings og maka ef við á, í þeim mánuði sem sótt er um og mánuðinum á undan, eru taldar með við mat á fjárþörf. Með tekjum er hér átt við allar tekjur og greiðslur til umsækjanda og maka, þ.e. atvinnutekjur, allar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins nema greiðslur með börnum, greiðslur úr lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, atvinnuleysisbætur, fæðingarorlofsgreiðslur, leigutekjur o.s.frv. og koma til frádráttar. Miða skal við heildartekjur áður en tekjuskattur hefur verið dreginn frá.“

Reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um fjárhagsaðstoð ganga út frá því að allar tekjur, aðrar en greiðslur vegna barna, úr lífeyrissjóðum og sjúkrassjóðum stéttarfélaga, atvinnuleysisbætur, fæðingarorlofsgreiðslur og leigutekjur, sé eðlilegt að nota sér til framfærslu áður en fengin er fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu. Fjárhagsaðstoðin er þannig neyðarúrræði fyrir þá sem hafa ekki aðgang að fjármunum sér til framfærslu.

Samkvæmt gögnum málsins námu tekjur kæranda 370.000 kr. í júnímánuði 2022, eða í mánuðinum á undan umsóknarmánuði. Sú fjárhæð er hærri en framangreind grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar, sbr. 10. gr. reglna Sveitarfélagsins Hornafjarðar um fjárhagsaðstoð. Með vísan til þess er synjun Sveitarfélagsins Hornafjarðar á umsókn kæranda frá 25. júlí 2022 um fjárhagsaðstoð til framfærslu staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Sveitarfélagsins Hornafjarðar, dags. 2. ágúst 2022, um synjun á umsókn A, um fjárhagsaðstoð til framfærslu, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum