Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 204/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 3. apríl 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 204/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23030081

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […]

 

 

Málsatvik

Hinn 15. mars 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. janúar 2023, um brottvísun og 14 ára endurkomubann […], kt. […], ríkisborgara Póllands, til Íslands. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 17. mars 2023 og 23. mars 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á framangreindum úrskurði nefndarinnar ásamt rökstuðningi.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hann fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Í beiðni sinni um frestun réttaráhrifa kemur fram að aðili uni hvorki niðurstöðu Útlendingastofnunar né kærunefndar útlendingamála þar sem hann telji niðurstöðuna efnislega ranga sem og þær forsendur sem hún byggi á. Aðili hyggist höfða mál fyrir héraðsdómi til ógildingar á ákvörðuninni.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem kærunefnd hefur litið til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi hans að dómstólum eða hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann til Íslands. Kærunefnd ítrekar það sem fram kemur í úrskurði í máli aðila en að mati nefndarinnar eru þær málsástæður sem aðili hefur lagt fram með beiðni um frestun réttaráhrifa ekki til þess fallnar að breyta fyrri ákvörðun nefndarinnar. Kærunefnd tekur fram að tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert bendir til þess að aðstæður aðila hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins eða að tengsl aðila hér á landi séu þess eðlis að hagsmunir hans krefjist þess að úrskurði nefndarinnar um brottvísun aðila verði frestað. Þá er ekkert í gögnum málsins sem gefur til kynna að framkvæmd úrskurðar kærunefndar frá 15. mars 2023 kunni að valda aðila óafturkræfum skaða.

Þá áréttar kærunefnd að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hann höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hann sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hans.

 

ÚRSKURÐARORÐ

 

Kröfu aðila er hafnað.

The applicant’s request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum