Hoppa yfir valmynd
K%EF%BF%BD%EF%BF%BDrunefnd%20%EF%BF%BD%EF%BF%BDtlendingam%EF%BF%BD%EF%BF%BDla

Nr. 375/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 22. september 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 375/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22080019

 

Beiðni  [...]  um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Hinn 2. desember 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. október 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fædd [...], og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa henni frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 6. desember 2021.

Hinn 13. desember 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar og var þeirri beiðni synjað með úrskurði kærunefndar, dags. 4. janúar 2022. Hinn 18. ágúst 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Hinn 18. ágúst 2022 bárust upplýsingar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun um málsmeðferð í máli kæranda.

Beiðni kæranda um endurupptöku málsins byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar til þess að hún hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 18. ágúst 2021. Byggir beiðni kæranda um endurupptöku á því að þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir frá umsókn hennar og tafir á meðferð málsins séu ekki hennar ábyrgð skuli taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

III.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þótt 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi 18. ágúst 2021 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 18. ágúst 2022. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hennar sjálfrar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá Útlendingastofnun 18. ágúst 2022, varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð og flutning kæranda, kemur fram að hún hafi ekki tafið mál sitt við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Af svari stoðdeildar vegna beiðni kærunefndar, dags. 18. ágúst 2022, má ráða að kærandi hafi ekki tafið mál sitt. Engar nánari upplýsingar liggja fyrir í málinu hvort stoðdeild greip til einhverra ráðstafanir í því skyni að tryggja að flutningur kæranda gæti farið fram áður en umræddur 12 mánaða frestur rann út.

Samkvæmt framangreindum upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun ber kærandi ekki ábyrgð á þeim töfum sem hafa orðið á málsmeðferð og flutningi hennar. Að auki hefur kærunefnd farið yfir málsmeðferð í máli kæranda og er að mati kærunefndar ekkert sem bendir til þess að kærandi verði talin bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsóknar sinnar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreinds og samfelldrar dvalar kæranda hér á landi síðan hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 18. ágúst 2021, er fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hún eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.


 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hennar.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant´s request for re-examination of her case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

Sandra Hlíf Ocares                                                     Bjarnveig Eiríksdóttir


 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum