Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 49/2014, úrskurður 30. júlí 2014

Mál nr. 49/2014

Eiginnafn: Amil

Hinn 30. júlí 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 49/2014 en erindið barst nefndinni 26. júní:

Eiginnafnið Amil (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Amils, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Amil (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum