Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 485/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 7. október 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 485/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21090009

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.          Málsatvik

Þann 4. mars 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. desember 2020, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sýrlands (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Grikklands. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 8. mars 2021. Kærandi óskaði eftir frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar þann 15. mars 2021. Beiðni kæranda var synjað af kærunefnd þann 23. mars 2021.

Þann 2. september 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd þann 6. september 2021 frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og þann 7. september 2021 frá Útlendingastofnun.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.            Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda kemur fram að samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga eigi aðili máls rétt á því að fá mál sitt tekið til meðferðar á ný þegar íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem hafi breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin. Kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi þann 26. ágúst 2020. Vegna þess tíma sem nú hafi liðið frá því að kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hafi atvik í málinu breyst verulega frá því að kærunefnd kvað upp úrskurð sinn þann 4. mars 2021, því beri kærunefnd að endurupptaka mál hans. Kærandi fjallar í þessu samhengi um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og vísar til þess að samkvæmt stjórnsýsluframkvæmd hafi afgreiðsla umsókna í skilningi ákvæðisins miðast við umsóknardag annars vegar og hins vegar við endursendingu til viðtökuríkis. Þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir og kærandi sé enn hér á landi beri stjórnvöldum, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi.

III.          Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 26. ágúst 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti þann 26. ágúst 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þann 6. september 2021 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og snéri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svar Útlendingastofnunar barst kærunefnd þann 7. september 2021. Var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hefði ekki tafið mál sitt að nokkru leyti. Í upplýsingum frá stoðdeild sem bárust kærunefnd þann 6. september 2021, kemur fram að kærandi hafi verið boðaður í viðtal þann 7. apríl 2021 og hann spurður að því hvort hann vildi fara til Grikklands. Kærandi hafi greint frá því að hann væri ekki með alþjóðlega vernd í Grikklandi og ekki nein skilríki, hann gæti því ekki farið til Grikklands. Þá hafi stoðdeild haft samband við kæranda þann 23. apríl 2021 og hann óskað eftir að fá vegabréf frá Grikklandi til að fara sjálfur til Grikklands. Grísk yfirvöld hafi ekki verið tilbúin að gefa út ferðaskilríki handa honum því hafi þann 27. apríl 2021 verið tekin ákvörðun um að fylgja kæranda til Grikklands með ferðabréfi (e. Laissez-Passer). Kærandi hafi svo mætt til viðtals þann 7. maí 2021 til að ræða stöðu mála. Kærandi hafi neitað að mæta í Covid-19 sýnatöku og greint frá því að hann vildi ekki fara til Grikklands. Þar sem afstaða kæranda hafi legið fyrir hafi stoðdeild ekki haft samband við hann frekar.

Af svari frá stoðdeild má ráða að þau samskipti sem hafi átt sér stað milli kæranda og stoðdeildar hafi einungis snúið að því að kanna afstöðu kæranda almennt til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands. Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu hér á landi í máli sínu er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Þá má sjá af samskiptum stoðdeildar við kæranda að síðasta tilraun til að koma kæranda í Covid-19 sýnatöku var í viðtali við hann þann 7. maí 2021 en líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda þann 26. ágúst 2021. Eins og að framan greinir kom fram í svari frá stoðdeild að þar sem afstaða kæranda lá fyrir þann 7. maí 2021 um að hann ætlaði sér ekki að fara til Grikklands þá hafi stoðdeildin ekki haft meira samband við hann. Kærunefnd telur að líta verði svo á að yfirlýsing kæranda á því að hann vilji ekki snúa aftur til Grikklands eða undirgangast Covid-19 sýnatöku til þess að gera íslenskum stjórnvöldum kleift að flytja hann þangað, geti ekki eitt og sér talist vera töf á afgreiðslu málsins. Kærunefnd telur að framkvæmd stoðdeildar á undirbúningi flutnings kæranda hafi því verið ómarkviss.

Með hliðsjón af framangreindu er því ekki grundvöllur fyrir kærunefnd til að ákvarða að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er uppfyllt og ber að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreinds er því fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                     Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum